Fræðslukvöldin komin í gang hjá SVFR Karl Lúðvíksson skrifar 28. febrúar 2022 09:02 Félagsmenn og aðrir áhugamenn um veiði geta tekið gleði sína á ný enda eru Fræðslukvöld SVFR loksins komin í gang aftur.
Fyrsta kvöldið og reyndar öll kvöldin verða haldin á þeim rómaða stað Ölver í Glæsibæ og verður fyrsta kvöldið haldið næsta fimmtudag þann 3. mars. Hvert kvöld verður með ákveðnu þema og verður sjóbirtingur það sem fyrst verður fjallað um. Húsið opnar kl 20:00. Það eru tveir vaskir og vanir veiðimenn sem þekkja sjóbirtingsveiðar vel sem byrja á þessu fyrsta kvöldi en það eru þeir Pálmi Gunnarsson söngvari og Hrafn H. Hauksson en báðir hafa þeir einstakan áhuga á sjóbirtingsveiðum. Pálmi hefur lengi verið einn ötulasti talsmaður Veitt og Sleppt til að vernda þennan einstaka fisk og hefur á sínum veiðiárum við mörg af vinsælustu sjóbirtingssvæði landsins orðið einn af okkar bestu. Hrafn er einn af þessum veiðimönnum yngri kynslóðarinnar sem er best kallaður undrabarn en þeir eru ekki margir sem hafa jafn góð tök á því að veiða þessa styggu fiska eins og hann.Á kvöldinu verður eins og venjan er glæsilegt happdrætti að í lokin og verða vinningar frá Vesturröst, Veiðivon, Veiðifélaginu, Veiðiportinu, Flugubúllan og Veiðiflugur á hlaðborði vinninga á þessu kvöldi og reyndar öllum kvöldunum sem framundan eru. Á þeim Fræðslukvöldum sem eru framundan verður meðal annars sérkvöld um lax og silungsveiði þar sem er farið almennt yfir aðferðir til betri árangurs í veiði. Það eru allir velkomnir á Fræðslukvöldin.
Stangveiði Mest lesið Hættir að veiða í Skotlandi Veiði Skemmtileg og fræðandi veiðibók Veiði Lax eða sjóbirtingur? Veiði Klaus Frimor kennir fluguköst Veiði Stundum vill hann bara Frigga Veiði Skagaheiðin farin að gefa vel Veiði Horfur í Langá góðar fyrir komandi sumur Veiði Stórlaxar við opnun á Stóru Laxá Veiði Það þarf að koma flugunni niður í miklu vatni Veiði Veiðimenn óhressir með hækkun í Veiðivötnum Veiði