Inga Lind Karlsdóttir er einnig með þeim í þáttunum og er hún þáttastjórnandi. Í þættinum í gær var kíkt við hjá Rögnu Lóu Stefánsdóttur sem býr í fallegri blokkaríbúð á efstu hæð.
Hún er litríkur persónuleiki og vildi fá aðstoð sérfræðinga þegar kemur að því að endurbæta eldhúsið og baðherbergið.
Þeir Kári og Ragnar tóku sannarlega til hendinni og breyttu þessum rýmum og var niðurstaðan einstaklega falleg eins og sjá má hér að neðan. Hægt er að sjá þáttinn í heild sinni á Stöð 2+.