Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum en efstu sex sæti listans í Kópavogi voru kynnt á félagsfundi í bænum í kvöld. Framboðslisti í heild verður lagður fram til samþykktar á næstu dögum, eftir því sem fram kemur í tilkynningunni.
Efstu sex á lista VG í Kópavogi:
- Ólafur Þór Gunnarsson, læknir
- Ásta Kristín Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi og formaður VG í Kópavogi
- Anna Sigríður Hafliðadóttir, markaðssérfræðingur
- Ársæll Már Arnarsson, prófessor.
- Ásbjörn Þ. Björgvinsson, ferðamálafrömuður.
- Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri.
Vinstri græn halda sveitarstjórnarráðstefnu á Hótel Natura í Reykjavík á laugardag og þar sem fulltrúar framboða og félagar víða um land ráða ráðum sínum og skipuleggja kosningabaráttuna fram undan.