Innlent

Grænn auðlindagarður í Reykholti í Biskupstungum

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar í gróðurhúsinu í Friðheimum í Reykholti í vikunni.
Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar í gróðurhúsinu í Friðheimum í Reykholti í vikunni. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Garðyrkjubændur í Reykholti í Biskupstungum ætla að sameinast um að nýta úrgang, sem verður til í gróðuhúsum þeirra og búa þannig til hringrásarkerfi í formi áburðar, sem nýtist stöðvunum. Í því skyni verður Grænn auðlindagarður stofnaður á svæðinu með þátttöku Bláskógabyggðar.

Skrifað var undir viljayfirlýsingu um stofnun Græns auðlindagarðs í vikunni á Friðheimum í Reykholti að vistöddum ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur.Auk Bláskógabyggðar taka garðyrkjustöðvarnar Espiflöt, Friðheimar og Guðfuhlíð þátt í verkefninu en þessar stöðvar eru með rúmlega 3 hektara undir gleri og nota um 6 MW af uppsettri raforku við framleiðslu á tómötum, gúrkum og blómum. 

Orkídea, sem er samstarfsverkefni um nýsköpun á Suðurlandi á vegum Landsvirkjunar, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Landbúnaðarháskóla Íslands heldur utan um verkefnið.

En um hvað snýst það nákvæmlega?

„Að auðlind eins getur komið frá úrgangi annars, þar að segja, við erum að nýta allar auðlindir sem best. Það getur komið til einhver afgangur frá ylræktinni, sem við viljum nýta þá, til dæmis sem áburð og áburðaverð er mjög hátt núna, eða til orkuframleiðslu, þannig að það eru ótal möguleikar, sem ylræktin býður upp á og við ætlum að nýta það og búa til betra hringrásarhagkerfi hér í Reykholti. Okkur finnst þetta ótrúlega spennandi verkefni,“ segir Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Orkídeu.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sem var viðstödd undirskriftina í Reykholti. Hún er mjög ánægað með hugmyndina um Grænan auðlindagarð á svæðinu.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Sveinn leggur mikla áherslu að nýtingu Grænnar orku, það eigi að vera mál málanna í dag.

„Já, við sjáum það bara þegar olíuverð fer í hæstu hæðir erlendis, þá eykst áhuginn á Grænni orku á Íslandi og við getum framleitt svo ótal miklu meira heldur en við gerum í dag með grænu orkunni okkar,“ segir Sveinn.

Hér er nánar hægt að lesa um viljayfirlýsinguna og um hvað hún snýst

Axel Sæland, formaður deildar garðyrkjubænda hjá Bændasamtökunum er mjög ánægður með viljayfirlýsinguna. Hann er garðyrkjubóndi í Espiflöt í Reykholti.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×