Linda Ásgeirsdóttir hefur verið fastagestur á skjám landsmanna í yfir nítján ár en hana ættu flestir að kannast við sem Skoppu úr hinum geysivinsælu barnaþáttum Skoppu og Skrítlu.
Þær vinkonur hafa brallað ýmislegt saman í gegnum tíðina, verið með sína eigin sjónvarpsþætti og leikrit. Þá hafa þær einnig verið með vinsæl námskeið fyrir börn þar sem þær kenna leik, dans og söng.
Sigurður Gunnar Gissurarson er menntaður viðskiptafræðingur og hefur hann undanfarin sextán ár starfað hjá Össuri, meira og minna í vörustjórnun.
Þau Linda og Siggi voru gestir í 53. þætti af hlaðvarpinu Betri helmingurinn með Ása sem hóf göngu sína síðasta vor og fagnar því eins árs afmæli þessa dagana. Umsjónarmaður þáttanna er Ásgrímur Geir Logason. Hann fær til sín þjóðþekkta einstaklinga ásamt þeirra betri helming og ræðir um ástarsambandið, lífið og tilveruna.
Kynntust í menntaskóla
Í þættinum segja Linda og Siggi frá því hvernig þau kynntust í Menntaskólanum í Reykjavík og urðu góðir vinir.
„Ég var að fara leika í Herranótt og Siggi var þarna ljósamaður,“ segir Linda en þarna var hún á fyrsta ári og Siggi var á öðru ári.
Það var þó ekki fyrr en fimmtán árum síðar sem þau hittust aftur og ástin kviknaði á milli þeirra.
„Siggi hafði búið lengi í Danmörku og ég var bara í mínu leiklistarhoppi hér á Íslandi. Ef við hefðum hist eitthvað fyrr þá hugsa ég að ég hefði ekki haft neinn tíma fyrir hann.“
Spákonan sagði að Linda þyrfti að kaupa sér tölvu
Skömmu áður en leiðir þeirra Lindu og Sigga lágu saman á nýjan leik hafði Linda verið hjá spákonu sem sagði henni að hún sæi mann koma inn í líf hennar, en Linda hélt nú ekki.
„Jú veistu það, hann er bara nánast í hurðargættinni hjá þér,“ segir spákonan við Lindu sem hafði miklar efasemdir. „Og þú þarft að fara fá þér tölvu,“ bætir spákonan svo við.
Linda er afar lítil tölvukona og skildi því ekkert í þessum spádómi, þar til hún hitti Sigga - sem vann þá við það að selja tölvur.
Mikið fjölskyldufólk
Linda og Siggi hafa verið saman allar götur síðan. Siggi átti son úr fyrra sambandi og því ákváðu þau að fara hægt í sakirnar hans vegna. Linda og Gissur, sonur Sigga, urðu hins vegar fljótt perluvinir.
Saman eignuðust þau svo tvo drengi til viðbótar og segjast þau vera mikið fjölskyldufólk. Þau fara mikið í sund með strákunum, hitta vinafólk og ferðast saman.
„Við mættum kannski gera meira bara tvö saman. En núna er Pétur að verða tólf ára og núna fyrst finnst okkur við geta verið að fara til dæmis tvö út að labba snemma á morgnanna og svoleiðis.“
Heilög stund að drekka morgunkaffið saman
Þau eru miklar A-týpur bæði tvö og njóta þess að vakna snemma og drekka kaffi saman.
„Þetta er alveg vandræðalegt því ég get oft ekki beðið eftir því að fá mér kaffi með honum á morgnana. Þetta er svo næs stund. Þetta er bara okkar stund þar sem við erum bara tvö að fara yfir daginn eða vikuna,“ segir Linda.
Þá segjast þau einnig vera með þá reglu sín á milli að ræða ekki þungbær eða leiðinleg málefni eftir klukkan tíu á kvöldin.
„Þegar þú ert orðinn þreyttur og pirraður þá ertu ekkert að fara tala um eitthvað sem er erfitt.“

Ævintýri á Asóreyjum
Í þættinum segja þau skemmtilega sögu af ferðalagi þeirra til Asóreyja hér um árið. Þar voru þau stödd ásamt Karli syni þeirra sem var þá aðeins sex mánaða gamall.
Linda er ekki hrifin af því að fara á hina hefðbundnu ferðamannastaði, heldur vill hún kynnast heimamönnum og menningunni á staðnum.
„Við förum einn morguninn á mest lókal kaffihúsið sem við finnum og fáum okkur gott kaffi. Svo sé ég þar mann sem var að lesa lókal blaðið og ég fer að tala við hann,“ segir Linda sem spurði manninn hvort hann gæti ekki bent þeim á skemmtilega staði til þess að skoða á eyjunni.
„Skemmtilegasta matarboð sem ég hef farið í“
Samtalið endaði svo með því að maðurinn bauð þeim í mat heim til sín. Lindu leist nú aldeilis vel á það en Siggi var ekki alveg á sama máli.
Þau fóru því að spyrjast fyrir um þennan gestrisna mann og komust að því að hann var þekktur meistarakokkur á eyjunni.
„Við fórum í matinn og þar var einn vinur hans, þunglyndur enskukennari. Þetta var svona eitthvað kombó af fólki og þarna vorum við í fimm rétta máltíð. Þeir enda svo á því að reykja einhverja asóríska vindla. Þetta var bara eitthvað skemmtilegasta matarboð sem ég hef farið í.“
Hér að neðan má hlusta á viðtalið við þau Lindu og Sigga í heild sinni.