Veltir tekur við Dieci skotbómulyftara umboðinu Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 9. maí 2022 07:01 Dieci Agri-Max. Veltir hefur tekið við sem sölu- og þjónustuaðili fyrir Dieci skotbómulyftara á Íslandi. Dieci hefur áratuga reynslu í framleiðslu á hágæða byggingar- og landbúnaðartækjum síðan 1962 sem hafa reynst afar vel við íslenskar aðstæður. Dieci skotbómulyftarar og liðstýrðir skotbómulyftarar eru gríðarlega öflugir og hannaðir fyrir mikla notkun við erfiðar aðstæður.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Brimborg. Dieci býður breiða línu tækja, yfir 75 gerðir með lyftigetu allt að 23 tonn og lyftihæð allt að 30 metrar. Aukabúnaður er fáanlegur í miklu úrvali svo sem mannkörfur, kranaspil, kranabómur, sópar og margar gerðir af skóflum sem gerir notin einstaklega fjölbreytt og eykur nýtingu tækjanna. Veltir hefur þegar hafið sölu á Dieci skotbómulyfturum og eru fyrstu tækin væntanleg til landsins um mitt sumar en söluráðgjafar Veltis taka vel á móti gömlum og nýjum viðskiptavinum Dieci. Veltir býður þá þjónustu að eldri skotbómulyftarar eru teknir upp í kaup á nýjum. Sala á aukahlutum og fylgibúnaði fyrir Dieci skotbómulyftara er einnig hafin. Veltir tryggir rekstraröryggi Dieci tækja með framúrskarandi varahluta-, ábyrgðar- og viðgerðarþjónustu. Dieci Hercules. Hjá Velti er varahlutalager til staðar fyrir Dieci og verkstæði Veltis þjónusta margvísleg atvinnutæki og þar er því til staðar mikil þekking og reynsla á þjónustu við allar gerðir atvinnutækja. Veltir þjónustar og veitir ábyrgðarþjónustu fyrir Dieci skotbómulyftara og eru verkstæði Veltis búin nýjustu tækjum til viðgerða og þar starfa þaulreyndir starfsmenn með mikla þekkingu sem fá reglulega þjálfun. Aðgengi fyrir stærri tæki er sérlega gott þar sem myndavélavaktað athafnasvæði er rúmgott og stórar stofnbrautir liggja til og frá húsnæðinu.
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Erlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Erlent Fleiri fréttir Tesla Cybertruck og Ferrari í Vestmannaeyjagöngum Sjá meira