Salah segist vera bestur í heimi í sinni stöðu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. maí 2022 14:00 Mohamed Salah er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni með 22 mörk. getty/John Powell Mohamed Salah, leikmaður Liverpool og egypska landsliðsins, segist vera bestur í heimi í sinni stöðu.
Salah hefur átt frábært tímabil með Liverpool og skorað þrjátíu mörk í öllum keppnum. Hann var nýverið valinn leikmaður ársins á Englandi af samtökum íþróttafréttamanna. Egyptinn segir að enginn leikmaður í heiminum standi honum framar, það er að segja af þeim sem spila sömu stöðu. Og hann segir að tölfræðin styðji þá fullyrðingu. „Ef þú berð mig saman við einhvern annan leikmann í minni stöðu, ekki bara í mínu liði heldur í heiminum, sérðu að ég er bestur,“ sagði Salah. „Ég einbeiti mér alltaf að vinnunni minni, geri mitt besta og tölurnar tala sínu máli. Ég vil alltaf búa til nýja áskorun fyrir mig, vinna á annan hátt, skipta sköpum og það er mitt hlutverk.“ Salah og félagar hans í Liverpool eiga enn möguleika á að vinna fjórfalt. Þeir eru þegar búnir að vinna deildabikarinn, eru komnir í úrslit Meistaradeildar Evrópu og ensku bikarkeppninnar og eru í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liverpool mætir Chelsea í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar á laugardaginn. Salah hefur ekki enn orðið bikarmeistari með Liverpool en getur bætt úr því eftir tvo daga.
Enski boltinn Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Sjá meira