Korda og Brooke Henderson eru á sjö höggum undir pari eftir fyrsta dag en Furue er með eins höggs forskot á þær á toppnum áður en keppni heldur áfram á morgun, í beinni útsendingu á Stöð 2 Golf.
Korda hefur glímt veið veikindi og meiðsli á þessu keppnistímabili svo að það var afar kærkomið fyrir hana að eiga frábæran hring í dag, þar sem hún náði sjö fuglum.
Á átjándu holu vallarins, þegar Korda reyndi að komast inn á flöt í tveimur höggum, lenti hún þó í vandræðum því boltinn fór ofan í vatn, nærri bakkanum. Korda lét það ekki trufla sig heldur fór úr skóm og sokkum, tók sér stöðu í vatninu og sló boltann upp úr, og inn á flötina. Henni tókst meira að segja að fá par!
No pictures on the scorecard.@NellyKorda would go on to save par from here. pic.twitter.com/msW9SvI7hm
— LPGA (@LPGA) July 21, 2022
„Ég hef aldrei gert nokkuð þessu líkt áður,“ sagði Korda eftir að hafa lokið leik. „Ég verð að segja að þetta var mjög ógeðslegt og slímugt,“ bætti hún við.
Korda, sem hóf leik á tíundu braut í dag og lauk því leik á þeirri níundu, fékk tækifæri til að jafna Furue á síðustu holunni. Púttið hennar fór hins vegar aðeins of mikið til hægri og hún varð að sætta sig við par.
Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum.