Sport

„Þurfum að halda á­fram á þessari braut“

Andri Már Eggertsson skrifar
Viktor Marinó Alexanderson, þjálfari Hauka, talar við sínar stelpur í leik kvöldsins
Viktor Marinó Alexanderson, þjálfari Hauka, talar við sínar stelpur í leik kvöldsins Vísir/Pawel

Haukar unnu fimm stiga útisigur gegn Val 85-90. Þetta var annar sigur liðsins á tímabilinu og Viktor Marinó Alexandersson, þjálfari Hauka, var afar ánægður með sigurinn. 

„Þetta var ljúft en kom mér ekki á óvart. Við vissum að við ættum þetta í okkur og við þurfum að halda áfram á þessari braut og við erum á leiðinni upp fjallið.“

„Við fórum á Keili fyrir tímabilið og það er löng gangan að Keili og það er það sem við erum búinn að vera eiga við fyrstu vikurnar og vonandi getum við farið að labba upp núna,“ sagði Viktor í viðtali eftir leik. 

Valsarar voru fjórum stigum yfir þegar haldið var í fjórða leikhluta og Viktor var afar ánægður með hvernig hans lið sneri leiknum sér í hag. 

„Valsarar voru að skjóta svakalega vel og betur heldur en þær hafa verið að gera. Það var frábært að fá leik þar sem liðin eru að keppa af mikilli hörku í 40 mínútur og þær spila fast.“

Aðspurður út í viðsnúninginn í fjórða leikhluta sagði Viktor að hans stelpur hafi þorað að vera til.

„Við leyfðum okkur að vera til og við sýndum öllum hvað við getum. Vonandi er þetta það sem koma skal frekar en einhver undantekning,“ sagði Viktor að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×