Alfa Romeo ætlar óvænt að kynna nýjan sportbíl á næsta ári Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 30. júlí 2022 07:01 Alfa Romeo T33 Stradale frá 1967. Ítalski framleiðandinn, Alfa Romeo hefur gefið út að sportbíllinn sem er búið að bíða eftir lengi verði kynntur á fyrri helmingi næsta árs. Bílinn mun svipa til T33 Stradake, samkvæmt yfirmanni verkefnisins hjá Alfa Romeo, Jean-Philippe Imparato.
Væntanlega verður frumgerðin einhverskonar hugmyndabíll sem þarf að fínstilla fyrir framleiðslu. Markmiðið er að koma Alfa Romeo aftur á réttan kjöl undir eignarhaldi Stellantis. En undanfarin ár hafa verið stormasöm fyrir Alfa Romeo. Enginn sportbíll var væntanlegur frá Alfa Romeo fyrr en undir lok áratugarins, en breyting hefur orðið þar á. Alfa Romeo ætlar eingöngu að framleiða rafbíla eftir árið 2025 en þessi bíll mun hugsanlega koma fram á sjónarsviðið sem brunahreyfilsbíll. „Í augnablikinu eru tvær sviðsmyndir í boði, ICE [brunahreyfill] eða hreinn rafbíll. Ég get sagt þér að það er afar spennandi, sértækt og afar kostnaðarsamt,“ sagði Imparato. Aðspurður hvort bílinn muni svipa til T33 Stradale sagði Imparato „ég get sagt að svo sé, ég get ekki sagt neitt annað. Við erum uppfull af frábærum hugmyndum sem byggja á goðsagnakenndri sögu okkar.“ Engar formlegar myndir eru komnaraf bílnum. Til viðbótar staðfesti Imparato að stór rafbíll bæri væntanlegur árið 2027 frá Alfa Romeo. Sá bíll mun fyrst og fremst vera miðaður á amerískan og kínverskan markað en einnig koma til Evrópu.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent