Frábær dagur: Mario Götze, Rihanna og 26. febrúar 2017 Björn Teitsson skrifar 22. september 2022 08:01 Flest okkar hafa vonandi upplifað alveg einstaklega góðan dag. Þið vitið, þegar allt gengur upp. Þið vaknið hress, lendið eingöngu á grænum ljósum og fáið jafnvel stöðuhækkun í vinnunni eða 10 í einkunn fyrir ritgerð. Kaffið gott og uppáhaldslagið ykkar með Eurythmics er spilað í útvarpinu. Fáið jafnvel falleg skilaboð frá maka eða skotinu ykkar. Kannski lasagna í matinn. Feitt. Einhvern tímann las ég blaðagrein um þýska fótboltamanninn Mario Götze. Hann átti alveg sæmilegan dag í Ríó de Janeiro þann 13. júlí 2014 þegar landslið Þýskalands mætti Argentínu í úrslitaleik HM karla í fótbolta. Götze byrjaði að vísu á bekknum en hann kom inn á og skoraði sigurmarkið. Og ef það er ekki nóg þá mætti sjálf Rihanna, drottningin af Barbados, í sigurpartýið eftir leik til að djamma! Og í greininni sem ég las var sterklega gefið í skyn að ýmislegt hafi gerst… nemum staðar hér. Leyfum dónatalinu að dvelja fyrir norðan. En Götze átti þarna góðan dag. Einhvern tímann átti ég í samræðum við nokkra vinnufélaga og við vorum að ræða þetta. Að eiga virkilega góðan dag. Fólk nefndi hitt og þetta. Stúdentsdagurinn auðvitað eða önnur útskrift, stórir áfangar skapa oftar en ekki góða daga. En svo kom ein uppástunga frá samstarfskonu minni: 26. febrúar 2017. Já, sögðum við, hvað gerðist þá? Það var nú ekkert sérstakt, svaraði hún, nema þennan dag þá vaknaði öll Reykjavík við blankalogn og sólskin og örugglega um 50 sentimetra af nýföllnum snjó. Kyrrðin var alger, engir bílar á ferð enda allir á kafi í snjó, og fyrr en varði var fólk tekið að labba úti á götunum, sömu götum og voru jafnan fullar af bílum og hraðri, háværri umferð, nema nú heyrðist aðeins í hlátrasköllum og marrinu í snjónum, ungir og gamlir Reykvíkingar, ferðafólk, hafði endurheimt göturnar sínar frá bílunum. Við hin sem hlustuðum vissum strax hvaða dag samstarfskona mín var að tala um. Og vorum öll sama sinnis. Auðvitað, 26. febrúar 2017. Það var frábær dagur! Munið þið eftir honum? Ég veit að þið gerið það. Frá 26. febrúar 2017. Því það er nefnilega staðreynd að borgir, sem slíkar, eru ekki háværar. Bílaumferð er hins vegar afar hávær. Og það eru til hundruð ef ekki þúsundir ritrýndra greina á alls konar fræðasviðum sem geta staðfest að bílaumferð, sérstaklega þung bílaumferð, er hættuleg heilsunni, bæði líkamlegri og andlegri. Til dæmis hér. Hér. Hér. Eða hér. En þessi grein á ekki að vera um það. Hún á að vera um hamingjuna, hún á að vera um að fjölga þessum dögum okkar sem eru virkilega góðir. Því rétt eins og það er staðreynd að mikil bílaumferð er óholl, þá er staðreynd að virkir ferðamátar, að labba og að hjóla, eru einstaklega hollir. Ekki aðeins líkamlega, heldur einnig andlega. Þessi tafla er úr doktorsrannsókn bandaríska borgarfræðingsins Olivers Smith frá árinu 2013, einnig birt sem grein í fræðatímaritinu Journal of Transport and Health árið 2016, og sýnir hvernig ferðamátar við daglegar ferðir okkar til vinnu eða skóla, auka eða draga úr hamingju. Rannsóknin var framkvæmd í Portland í Oregon-ríki og er tekið tillit til mismunandi aðstæðna þátttakenda í rannsókn, svo sem aldurs, kyns, tekna og lengd ferða. Á myndinni má sjá að fólk eykur beinlínis við hamingju sína við það að labba eða hjóla í vinnu eða skóla. Að taka strætó í sérrými (Borgarlína) virðist einnig auka nokkuð við hamingju en undir gildinu 1.0 eru ferðir með strætó, léttlest og allra neðst er, jú, einkabíllinn. Það sem er sérstaklega áhugavert er að þessi rannsókn var framkvæmd í janúar og febrúar árið 2012, um hávetur. Samt virtist fólk kunna best að meta það að hjóla og labba. Og hvað þýðir þetta? Eigum við að banna einkabíla? Alls ekki. Bílar eru snilld. En ofnotkun á bílum er ekki snilld. Að láta allt samfélagið standa og falla með bílum, að bílpróf og bílaeign sé einhvers konar aðgöngumiði að eðlilegri mannlegri tilveru, það er einfaldlega of langt gengið. Bíll er lúxus, ekki mannréttindi. Hér er þá tillaga: gerum það sem fólk vill helst gera. Förum eftir vilja fólksins. Hér má sjá niðurstöður úr könnun Maskínu um ferðavenjur sem hefur verið gerð fyrir Reykjavíkurborg undanfarin fjögur ár. Þátttakendur voru þar m.a. spurðir, hvernig þeir myndu helst vilja ferðast til vinnu og skóla, væru aðstæður í lagi og innviðir til þess ákjósanlegir (vel að merkja virtist fólk ekki telja veður vera fyrirstöðu þegar kom að því að ganga eða hjóla). Eins og sjá má vilja flestir enn ferðast með einkabíl. En talan er mjög ásættanleg. Því í raun og veru eru um 74% allra ferða í Reykjavík farnar í einkabíl. Ef talan væri nær því sem fólk myndi helst vilja, væri hún aðeins 49,3% (bílstjórar + farþegar). Það er lækkun um 24% ferða sem farnar eru á einkabíl! Sem myndi þýða miklu umfangsminni og greiðari bílaumferð. Það þarf vart að taka fram að ekkert er betra fyrir bílaumferð en bílstjóri sem ákveður að fara frekar á hjóli eða í strætó. Um leið losnar um meira pláss fyrir alla aðra bíla í umferðinni. Þetta sér allt skynsamt fólk. Í dag er Bíllausi dagurinn. Það er frítt í Strætó og það er fínt. Því er fullkomið tækifæri fyrir það fólk sem getur, að prófa Strætó, prófa að hjóla, prófa að labba til vinnu eða skóla. Og ef ykkur finnst það bærilegt, haldið endilega áfram. Þegar þið getið. Ef þið getið. En ef ykkur finnst innviðir og aðstæður ófullnægjandi, látið í ykkur heyra. Krefjumst þess að fá hágæðaalmenningssamgöngur og betri innviði fyrir gangandi og hjólandi. Það er skynsamlegasta fjárfestingin. Hún er ekki aðeins ódýrust, hún er líka best fyrir heilsuna, fyrir hamingjuna. Til að endurheimta göturnar okkar. Til að eiga fleiri GÓÐA daga. Höfundur er sérfræðingur hjá Skipulagsstofnun. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Björn Teitsson Samgöngur Mest lesið Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Skatta-Grýlan ógurlega Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hvað hafa sjómenn gert Samfylkingunni? Sigfús Karlsson Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Það sem voru „bjartari tímar“ í fyrra eru nú bölvaðar skattahækkanir Þórður Snær Júlíusson Skoðun Myndu ekki þurfa að flytja heim aftur Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Sanna sundrar vinstrinu Guðbergur Egill Eyjólfsson Skoðun Skoðun Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson skrifar Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason skrifar Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslensk ferðaþjónusta í nýju landslagi Ólína Laxdal skrifar Skoðun Sköpum öflugt, hafsækið atvinnulíf á viðskiptalegum forsendum! Gunnar Tryggvason skrifar Skoðun Hefurðu heyrt söguna? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Teygjum okkur aðeins lengra Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Spilakassar í skjóli mannúðar og björgunar Alma Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traustur grunnur, ný tækifæri Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Sanna sundrar vinstrinu Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Myndu ekki þurfa að flytja heim aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar áfengið rænir jólunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Skatta-Grýlan ógurlega Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson skrifar Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hvað hafa sjómenn gert Samfylkingunni? Sigfús Karlsson skrifar Skoðun Framtíð Suðurlandsbrautar Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Pípararnir okkar - Fagstéttin, metfjöldi, átakið, stuðningur Snæbjörn R. Rafnsson skrifar Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson skrifar Skoðun Ég ákalla! Eyjólfur Þorkelsson skrifar Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Samgöngumálið sem ríkisstjórnin talar ekki um Marko Medic skrifar Skoðun Mannréttindaglufur og samgönguglufur Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ólaunuð vinna kvenna Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Stjórnvöld beita sleggjunni og ferðaþjónustan á að liggja undir höggum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Ólögmæt mismunun eftir búsetu öryrkja fest í lög á Íslandi Jón Frímann Jónsson skrifar Sjá meira
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun
Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þingmenn raða sólstólum á Titanic Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Hamarsvirkjun: Þegar horft er framhjá staðreyndum og lýðræði Ásrún Mjöll Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson skrifar
Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Stjórnvöld beita sleggjunni og ferðaþjónustan á að liggja undir höggum Þórir Garðarsson skrifar
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun