Erfiðleikar og framfarir
Blaðamaður ræddi við Brand um ferlið á bak við myndina og það sem framundan er.
„Ferlið hefur verið fullt af erfiðleikum og framförum. Hugmyndin um að maður fær út úr því það sem maður setur í það á svo sannarlega við hér,“ segir Brandur og bætir við: „Nú er Rahul kominn til að vera með mér og mun vinna áfram að því að koma mér á fætur á ný eftir meira en áratug í hjólastól.“
Myndin var sem áður segir frumsýnd í gærkvöldi en verður aftur sýnd næstkomandi fimmtudag, 6. október, klukkan 22:00. Brandur segist hafa kviðið fyrir að sjá myndina og endurupplifa það sem hann fór í gegnum en hann hlakkaði á sama tíma til. Hann segir samstarfið við Loga hafa verið öflugt.
„Hann Logi er klárlega með einhvern drifkraft og náðargáfu sem er búin að veita mér hvatningu í gegnum þetta allt saman. Það verður gaman að heyra hvað öðrum finnst.“
List og jarðfræði
Brandur er listamaður og vinnur nú að einkasýningunni Erupt! sem verður samhliða listamessunni Torg á Korpúlfsstöðum. Sýningin opnar 15. október næstkomandi.
„Erupt er sýning sem var lengi í mótun en kom svo öll út á stuttum tíma.“

Brandur segist sækja innblástur til foreldra sinna sem bæði eru heimsvirtir jarðfræðingar.
„Sýningin dregur athygli að því magnaða starfi sem íslenskir jarðfræðingar lagt til og aukið þekkingu okkar á jarðfræði og hegðun eldgosa.“
Þetta er fimmta einkasýning Brands en fyrri sýningar hans hafa snúist um leit hans að tengingu við náttúruna og að horfa inn á við til að sjá hvernig allt breytist með tíma og ástundun. Hann segir að lokum að fyrir honum sé myndin Atomy sérstök áminning um akkúrat það.
„Þegar ég horfi á sjálfan mig fyrir þremur árum þá finnst mér ég vera alveg annar maður í dag.“