ÍA sækir FH heim í lokaorð Bestu deildarinnar á morgun. Ef Skagamenn ætla að leika í Bestu deildinni á næsta tímabili þurfa þeir að vinna FH-inga með tíu marka mun. Ekki nema.
FH er þremur stigum á undan ÍA og er með miklu betri markatölu; með níu mörk í mínus en Akurnesingar 28 mörk í mínus. En þar sem liðin mætast í lokaumferðinni dugir Skagamönnum að vinna tíu marka sigur. Lítið mál, ekki satt?
Raunhæfara markmið fyrir ÍA væri bara að vinna í Kaplakrika. Þar hafa Skagamenn nefnilega ekki unnið síðan 2001, síðasta tímabilið sem þeir urðu Íslandsmeistarar.
Þann 15. júlí áttust ÍA og FH við í Kaplakrika. Fyrir leikinn voru Skagamenn í 3. sæti deildarinnar með fjórtán stig, fjórum stigum á eftir FH-ingum, sem voru í 2. sætinu, og sex stigum á eftir toppliði Fylkismanna.
Gestirnir frá Akranesi byrjuðu leikinn af krafti og strax á 3. mínútu skoraði Hjörtur Hjartarson eftir mistök í vörn heimamanna og sendingu Ellerts Jóns Björnssonar.
Þrátt fyrir að hafa 87 mínútur til að jafna varð FH-ingum ekkert ágengt upp við mark Skagamanna. Besta færið fékk Baldur Bett en Ólafur Þór Gunnarsson, markvörður ÍA, varði vítaspyrnu hans í fyrri hálfleik.
Skagamenn fóru á mikið flug eftir sigurinn í Krikanum og unnu fimm næstu leiki sína og héldu hreinu í fjórum þeirra. Þeir tryggðu sér svo Íslandsmeistaratitilinn með því að gera 2-2 jafntefli við Eyjamenn í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni. Það var átjándi og síðasti Íslandsmeistaratitill ÍA.
Frá leiknum 2001 hefur gengi ÍA í Kaplakrika verið ein sorgarsaga. Liðin hafa mæst sextán sinnum. FH-ingar hafa unnið tólf leiki og fjórum sinnum hefur orðið jafntefli.
Leikir FH og ÍA í Kaplakrika síðan 2012
- 2002 FH 1-1 ÍA
- 2003 FH 1-1 ÍA
- 2004 FH 2-2 ÍA
- 2005 FH 2-0 ÍA
- 2006 FH 2-1 ÍA
- 2007 FH 1-1 ÍA
- 2008 FH 2-0 ÍA
- 2012 FH 2-1 ÍA
- 2013 FH 2-0 ÍA
- 2015 FH 4-1 ÍA
- 2016 FH 2-1 ÍA
- 2017 FH 2-0 ÍA
- 2019 FH 1-0 ÍA
- 2020 FH 2-1 ÍA
- 2021 FH 5-1 ÍA
- 2022 FH 6-1 ÍA
ÍA náði síðast í stig í Kaplakrika 2007. Liðin gerðu þá 1-1 jafntefli. Síðan þá hafa FH-ingar unnið tíu heimaleiki í röð gegn Skagamönnum.
FH vann ÍA í Krikanum með fimm mörkum gegn einu í fyrra. Í 21. umferð Bestu deildarinnar gerðu FH-ingar enn betur og unnu 6-1 sigur.
Leikur FH og ÍA hefst klukkan 13:00 á morgun og verður sýndur beint á Bestu deild Sport 3. Fylgst verður með öllum sex leikjunum í lokaumferð Bestu deildarinnar samtímis á Stöð 2 Sport. Klukkan 20:00 er svo komið að uppgjörsþætti Stúkunnar.