Í hlaðvarpinu Happy Sad Confused segist Henry ekki hafa verið afbrýðisamur út í leikarann Robert Pattinson, sem að hlaut hlutverkið. Hann vissi ekki til þess að hann hafi átt möguleika á því að fá það fyrr en eftir að fyrsta myndin kom út. Henry segir netheiminn ekki hafa verið jafn hraðann þá og hann er í dag. „Ég komst bara að því eftir á og hugsaði með mér okei, það hefði verið töff,“ segir hann.

Í bloggfærslunni sem um ræðir sagði rithöfundurinn Stephanie: „Það sem olli mér mestum vonbrigðum var að missa hinn fullkomna Edward,“ en það sagði hún eftir að Summit Entertainment keypti réttinn að bókunum.
„Henry Cavill er núna 24 ára, höfum þögn um stund og syrgjum það,“ sagði hún einnig og reyndi jafnvel að stinga upp á því að fá hann til að leika hlutverk Carlile ef aldurinn væri að trufla.
Reyndi við Cedric Diggory
Þetta er ekki fyrsta hlutverkið sem Henry hefði getað fengið sem endaði hjá Robert. Hann fór í prufur fyrir hlutverk Cedrics Diggory sem kom fram í fjórðu Harry Potter myndinni. „Já ég man eftir því. Ég fór pott þétt í prufur fyrir það og fékk það ekki,“ segir hann.
„Prufan gæti hafa farið vel, hún gæti hafa farið hræðilega. Ég er viss um að einhver þarna úti á myndefni sem er vonandi á bak við lás og slá og mun aldrei sjást.“