Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Leikarinn Johnny Depp er í viðræðum við Disney um að snúa aftur sem sjóræninginn Jack Sparrow í kvikmyndaseríuna Sjóræningjar Karabíska hafsins. Depp lék karakterinn síðast í fimmtu mynd seríunnar árið 2017. Disney skar svo á tengsl við leikarann í kjölfar þess að leikkonan Amber Heard sakaði hann um heimilisofbeldi. Bíó og sjónvarp 18.8.2026 10:01
Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lögmenn Duane Keith Davis, sem grunaður er um að hafa skipulagt morðið á tónlistarmanninum Tupac Shakur árið 1996, voru í þeirri undarlegu stöðu í gær að reyna að sannfæra kviðdóm um að skjólstæðingur þeirra væri þekktur lygalaupur. Lífið 18.8.2026 09:07
Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Vladimir Klitschko, barnsfaðir leikkonunnar Hayden Panettiere, segir fjölskylduna í mikilli sorg. Panettiere hafi yfirgefið þessa jörð allt of snemma og að þó svo að þau hafi ekki verið saman hafi hún verið mikilvægur hluti lífs hans og móðir dóttur þeirra, Kayu. Hann biður um frið til að glíma við sorgina og andlát hennar. Lífið 18.8.2026 08:24
„Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Skoski leikarinn Jack Lowden er „sterklega orðaður“ við hlutverk næsta James Bond í spæjaraseríunni vinsælu. Lowden þykir líklegastur af þeim leikurum sem hafa verið orðaðir við hlutverkið og er efstur á blaði hjá veðbönkum. Bíó og sjónvarp 14. ágúst 2026 14:05
Robbie Williams einhverfur Breski popparinn Robbie Williams segist nýlega hafa verið greindur með einhverfu. Hann fagnar greiningunni, segir hana útskýra margt í lífi sínu og noti hana reglulega sem afsökun í félagslegum aðstæðum. Williams hefður áður opnað sig um ADHD-greiningu sína, þunglyndi, víðáttufælni, vímuefnaneyslu og slæma líkamsímynd. Lífið 14. ágúst 2026 11:13
Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hollywood-leikarinn Jon Hamm, sem flestir þekkja úr þáttunum Mad Men, og leikkonan Anna Osceola eiga von á sínu fyrsta barni saman. Sautján ár skilja hjónin að, hún er 38 en hann 55 ára. Lífið 14. ágúst 2026 10:01
Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Leikkonan Nicole Kidman segir síðasta ár lífs síns hafa verið erfitt en hún skildi við kántrístjörnuna Keith Urban í september síðastliðnum. Það hafi engu breytt að hafa skilið einu sinni áður og upplifunin væri alveg jafn ný fyrir henni. Hún giftist Tom Cruise þegar hún var 23 ára gömul og man varla hvernig lífið var fyrir frægðina. Lífið 13. ágúst 2026 16:20
Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Ákærukviðdómur hefur gefið út ákærur á hendur Nick Reiner, sem er sakaður um að hafa myrt foreldra sína, leikstjórann dáða Rob Reiner og eiginkonu hans Michele Singer Reiner. Í ákærunni segir að Nick hafi setið fyrir foreldrum sínum nóttina sem hann myrti þau. Erlent 13. ágúst 2026 12:02
Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Móðir stjörnubloggarans Perezar Hilton hefur sótt um tímabundna forsjá yfir þremur börnum hans eftir að hann var lagður inn á spítala í kjölfar þess að skaða sjálfan sig í beinu streymi á TikTok. Hilton á þrjú ættleidd börn á aldrinum átta til þrettán ára. Lífið 12. ágúst 2026 13:59
Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lucy Davis, sem er hvað þekktust fyrir að leika Dawn Tinsley, ritara í bresku Office, er með ólæknandi krabbamein. Þessu greindi leikkonan, sem er 53 ára gömul, frá í færslu á Instagram í dag og sagðist hún reyna að lifa sínu besta lífi á meðan hún getur það. Lífið 11. ágúst 2026 20:06
Usher þvertekur fyrir klónið Tónlistarmaðurinn Usher segist alls ekki hafa ráðið tvífara eða hannað klón af sjálfum sér til að stíga á svið á tónleikum hans á dögunum. Ásakanirnar fóru á flug á samfélagsmiðlum eftir að tónleikagestur birti myndband af flutningi hans og fjölmargir skrifuðu undir að þetta gæti ómögulega verið Usher. Lífið 11. ágúst 2026 14:31
Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Hollywood-stjarnan Brad Pitt segist byrjaður að drekka áfengi á ný eftir að hafa verið edrú síðustu sjö ár. Hann nýtti sér tólf spora kerfið í kjölfar skilnaðar við leikkonuna Angelinu Jolie fyrir um tíu árum og hefur reglulega talað opinberlega um edrúmennskuna. Hann reyni að gæta hófs í drykkjunni. Lífið 11. ágúst 2026 11:13
Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Nýjasta kvikmyndin um Köngulóarmannin, Spider-Man: Brand New Day, heldur áfram sigurgöngu sinni, hefur halað inn 1,6 milljarði dala og stefnir hraðbyri á að verða ein af aðsóknarmestu myndum sögunnar. Ódysseifur Christophers Nolan er sömuleiðis enn á siglingu, fór um helgina yfir milljarð dala-múrinn og er orðin aðsóknarmesta mynd leikstjórans frá upphafi. Bíó og sjónvarp 10. ágúst 2026 14:46
Ben Jones er látinn Ben Jones, leikari og fyrrverandi þingmaður Demókrata, er látinn, 84 ára að aldri. Jones var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Cooter Davenport í sjónvarpsþáttunum Dukes of Hazzard en var einnig þingmaður í fjögur ár í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Bíó og sjónvarp 10. ágúst 2026 12:11
Aubrey Plaza orðin mamma Grínistinn og leikkonan Aubrey Plaza er orðin móðir. Hún eignaðist frumburð sinn, litla stúlku, í lok júlí með leikaranum Christopher Abbott. Lífið 10. ágúst 2026 12:05
Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Breska tónlistarbomban Raye virðist hafa fundið ástina í örmum leikarans Michael B. Jordan. Þau skelltu sér saman í rússíbanagarð í Los Angeles um helgina og virtust sannarlega njóta samveru hvors annars. Lífið 10. ágúst 2026 10:35
Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Fjölskylda stjörnubloggarans Perez Hilton hefur greint frá því að hann þurfi að gangast undir aðgerð eftir að hafa „misst mikið blóð“ í beinni útsendingu þann 4. ágúst þar sem hann skaðaði sjálfan sig í beinni á samfélagsmiðlinum TikTok. Lífið 9. ágúst 2026 15:12
Euphoria-stjörnur á Íslandi Euphoria-stjörnurnar Alexa Demie og Hunter Schafer eru mættar til landsins til að fagna fjölbreytileikanum og fanga almyrkvann með berum augum. Lífið 8. ágúst 2026 12:05
Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Marciano Brunetti, raunveruleikastjarna úr þáttunum Vanderpump Villa, hefur nú varanlega merkt sig Jessi Draper, úr raunveruleikaþáttunum Secret Lives of Mormon Wives. Draper og Brunetti hafa verið að hittast síðustu vikur, allt frá því að sú fyrrnefnda tilkynnti um skilnað. Það styttist í næstu seríu mormónakvennanna. Bíó og sjónvarp 7. ágúst 2026 20:02
Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Tom Holland og Zendaya giftu sig fyrr á árinu í lágstemmdri leynilegri athöfn og héldu svo annað brúðkaup með stórri veislu á sveitasetrinu Beaverbrook í Surrey í vikunni. Um 250 gestir voru í veislunni sem kostaði víst hálfa milljón sterlingspunda (jafnvirði um 83 milljóna króna) og var strangt símabann á staðnum. Lífið 7. ágúst 2026 13:52
Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Kvikmyndaverið Lionsgate greinir frá því að vinna að framhaldsmynd um popparann Michael Jackson sé hafin. Tökur eigi að hefjast á seinni hluta þessa árs eða á fyrri hluta 2027 og kvikmyndin komi út ári síðar. Ævisögumyndin Michael kom út fyrr á árinu, fékk misjafna dóma hjá gagnrýnendum en skilaði milljarði Bandaríkjadala í kassann. Bíó og sjónvarp 7. ágúst 2026 12:44
Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Mikið er rætt um mögulegt hjónaband Gigi Hadid og Bradley Cooper eftir að þau sáust með hringa á baugfingri vinstri handar á dögunum í París. Cooper bað Hadid í desember í fyrra. Parið hefur verið saman í þrjú ár og eiga hvort um sig eitt barn úr fyrra sambandi. Lífið 6. ágúst 2026 15:00
Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Köngulóarmaðurinn tekst á við einmanaleika, hormónaójafnvægi og dularfullt illmenni í nýjustu kvikmyndinni um kappann. Framan af er um að ræða skemmtilega ofurhetjumynd með sjarmerandi persónum, góðum hasar og spennandi framvindu. Illa tekst þó að hnýta lausa enda saman, hetjan drukknar í flóði hliðarpersóna og ódýr væmni setur strik í reikninginn. Gagnrýni 6. ágúst 2026 07:01
„Hún er í hljóðverinu núna“ Vonir hafa vaknað hjá aðdáendum söngkonunnar Rihönna eftir að eiginmaður hennar viðurkenndi að hún væri í hljóðveri þessa dagana. Rihanna hefur ekki gefið út neina tónlist í fjölda ára en einbeitir sér frekar að fyrirtækjarekstri. Lífið 6. ágúst 2026 07:01