Hjólhestaspyrnumarkið draumur sem rættist Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. nóvember 2022 10:01 Samira Suleman skoraði síðasta mark ÍA á tímabilinu 2022 og jafnframt það flottasta. vísir/arnar Samira Suleman, sem er eina konan frá Gana sem er með UEFA B þjálfararéttindi, segir að það styttist í annan endann á leikmannaferlinum. Hún skoraði eitt af flottustu mörkum síðasta sumars.
Samira hefur leikið hér á landi síðan 2015. Hún gekk í raðir ÍA um mitt síðasta tímabil og skoraði tíu mörk í níu leikjum með liðinu. Samira efast þó um að hún spili mikið lengur. „Ég hef ekki hugsað mikið út í þetta en það er örugglega ekki það langt þangað til ég hætti,“ sagði Samira við Vísi. Í 5-0 sigri ÍA á KH í Akraneshöllinni 24. september skoraði Samira eitt af mörkum sumarsins 2022, með hjólhestaspyrnu. „Þetta mark var ótrúlegt, stórkostlegt. Ég elska það. Ég hef reynt þetta nokkrum sinnum, líka á æfingum, dottið og meitt mig,“ sagði Samira. Loftfimleikar hjá @Coach_Mira9 í gær! pic.twitter.com/dMdnhfYyry— ÍATV (@ia_sjonvarp) September 25, 2022 „En þú átt aldrei að gefast upp svo ég hélt áfram að reyna. Ég reyndi þetta í þessum leik en það gekk ekki. Svo reyndi ég aftur og loksins skoraði ég svona mark og þetta var draumur sem rættist. Samherjar mínir í gegnum tíðina vita að ég vildi alltaf skora svona mark. Ég hef stundum sagt að þegar ég skora svona mark muni ég hætta. En loksins tókst það og þetta var frábær tilfinning.“ Samira hefur alls leikið 113 deildar- og bikarleiki á Íslandi og skorað í þeim 67 mörk. Hún hefur einnig leikið með ganverska landsliðinu, meðal annars í Afríkukeppninni.
Íslenski boltinn ÍA Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Lewis Hamilton segist vera fastur í martröð Formúla 1 Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Formúla 1 Bjarni og Guðbjörg endurheimtu bæði Íslandsmeistaratitilinn í CrossFit Sport NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin Körfubolti Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira