Hitaveitan þarf 1.200 megavött í viðbót Bjarni Bjarnason skrifar 28. nóvember 2022 07:30 Það kemur sumum á óvart, sérstaklega þeim sem halda að orkuskipti snúist bara um rafmagn, að aflið í hitaveitum Veitna er næstum tvöfalt meira en í Kárahnjúkavirkjun. Mælt í megavöttum er afl Fljótsdalsstöðvar 690 MW en samanlagt afl þeirra hitaveitna sem Veitur starfrækja á sunnan- og vestanverðu landinu er nú um 1.200 MW. Og aflþörfin mun vaxa hratt. Uppbygging hitaveitunnar tók hálfa öld Hitaveitan í Reykjavík er orðin 92 ára gömul. Það var snemmvetrar 1930 að Austurbæjarskólinn í Reykjavík var tengdur heitavatnslögn úr Þvottalaugunum og orkuskipti í húshitun voru hafin. Þessi orkuskipti tóku um hálfa öld á höfuðborgarsvæðinu því það var fyrst á áttunda áratug síðustu aldar að segja má að hvert hús í Reykjavík hafi verið tengt hitaveitu. Síðan þá hafa ýmsar byggðir í landinu bæst í hópinn, nú síðast Höfn í Hornafirði. Langmesta viðbótin er þó á höfuðborgarsvæðinu en íbúafjöldinn hefur tvöfaldast frá árinu 1980, úr u.þ.b. 120 þúsund í um 240 þúsund, og öll viljum við hitaveitu. Orkuskiptum í húshitun lýkur ekki meðan fólki fjölgar og nú stendur yfir sérstakt átak ríkisvalds og sveitarfélaganna til að hraða uppbyggingu á nýju íbúðarhúsnæði víða um land. Auðvitað vilja íbúar allra þessara nýju húsa hafa hitaveitu enda er hún mun ódýrari en rafkynding. Hitaveitan eykur lífsgæði allra sem hennar njóta, sérstaklega á Ísalandi þar sem allra veðra er von og veðurfar er hryssingslegt og kalt. Notkun á heitu vatni á bara eftir að aukast. Spá Veitna fram til ársins 2060 gerir ráð fyrir tvöföldun notkunar á heitu vatni. Það þýðir að við þurfum að bæta 1.200 MW við hitaveituna fyrir árið 2060. Þá verða hitaveitur á suðvestanverðu landinu orðnar 2.400 MW að afli sem er ígildi þriggja til fjögurra títtnefndra Kárahnjúkavirkjana. Á efri hluta myndarinnar er afl hitaveitna Veitna og stærstu rafmagnsvirkjunar landsins borið saman. Neðri hlutinn sýnir núverandi hámarksafköst hitaveitnanna og spá um aukna þörf sem byggir á mannfjöldaspá Hagstofu Íslands. Hvar er orkuna að finna? Hvert eigum við að sækja orkuna til að viðhalda orkuskiptum í húshitun? Á höfuðborgarsvæðinu er nærtækt að líta til eldfjallanna í kringum okkur því þar hefur safnast upp varmaorka í þúsundir ára. Við nýtum nú þegar Hengilinn og háhitasvæði þar í kring. Þangað mætti sækja meiri orku, sérstaklega til húshitunar. Lághitasvæðin eru svo annar kostur og sá lang hagkvæmasti. Hitaveitan á höfuðborgarsvæðinu sækir nú vatn frá Reykjum og Reykjahlíð í Mosfellssveit, Laugarnesi og Elliðaárdalnum. Lághitasvæðin sjá höfuðborgarsvæðinu fyrir tæplega helmingi af öllu vatni hitaveitunnar. Rúmur helmingur kemur frá virkjunum OR í Hengli. Það er ljóst að höfuðborgarsvæðið þarf að horfa til allra kosta til þess að auka við hitaveituna. Unnið er að rannsóknum nýrra lághitasvæða og nokkur háhitasvæði í Henglinum eru í nýtingarflokki í Rammaáætlun 3, sem samþykkt var á Alþingi í sumar. Svæðin í Henglinum munu öll fara í að viðhalda afköstum virkjananna á Nesjavöllum og á Hellisheiði og til að auka við afl hitaveitunnar. Lítið sem ekkert nýtt rafmagn mun koma frá þessum svæðum. Háhitasvæðin í Krýsuvík eru einu svæðin í nágrenni höfuðborgarsvæðisins sem eru ónýtt. Rannsóknir eru skammt á veg komnar og því óvissa um niðurstöður. Hitaveitur hafa forgang að jarðhitaauðlindum samkvæmt lögum, enda er um almannaheill að tefla. Því má gera ráð fyrir því að mikið af háhitanum í Krýsuvík fari til hitaveitu. Umframgeta mun nýtast til rafmagnsvinnslu. Einnig er vert að huga að því að Suðurnes kunni að hafa þörf fyrir varaafl í hitaveitu frá Krýsuvík ef virkjunin í Svartsengi verður fyrir truflun í rekstri vegna jarðhræringa eða eldgoss. Varmanýtni virkjana Virkjanir á háhitasvæðum eru af tvennum toga; þær sem einungis vinna rafmagn og þær sem vinna vatn til húshitunar, auk rafmagns. Virkjanir í Svartsengi, Nesjavöllum og Hellisheiði eru af síðari toganum, sem vinna bæði rafmagn og heitt vatn. Nýtni þess varma sem tekinn er úr jarðhitageyminum er einungis 13-16% ef rafmagn er unnið eitt og sér. Nesjavallavirkjun, svo dæmi sé tekið, nýtir hins vegar um 52% þess varma sem tekinn er upp vegna tvívirkni á notkun til húshitunar og rafmagns. Það er því ótvírætt að á háhitasvæðum nærri þéttbýli skuli einnig nýta varmaorkuna til húshitunar. Námavinnsla á háhitasvæðum Ég held að Stefán Arnórsson, prófessor emeritus í jarðefnafræði við Háskóla Íslands, hafi fyrstur manna bent á að nýtingu háhitasvæða mætti líkja við námavinnslu. Jarðhitanáman væri þannig nýtt mun hraðar en endurnýjun hennar úr heitari jarðlögum að neðan gæti staðið undir. Nú hefur komið í ljós að flestar háhitavirkjanir á Íslandi búa við afar þröngan kost þar sem varminn í „námunni“ minnkar hraðar en gert var ráð fyrir. Þetta hefur Orkuveita Reykjavíkur séð á Nesjavöllum en þó einkum á Hellisheiði. Virkjunin þar framleiðir nærri þrefalt meira rafmagn og var byggð upp í núverandi stærð þrefalt hraðar en Nesjavallavirkjun. Enginn tími vannst því til að „hlusta á jarðhitakerfið“ og læra af reynslunni. Það dregur hratt niður í þeim jarðhitasvæðum sem áttu að duga Hellisheiðarvirkjun og við höfum að undanförnu þurft að leiða orku frá öðrum nálægum háhitasvæðum til að halda uppi fullri vinnslugetu virkjunarinnar. Í Rammaáætlun III eru áform um allmikla raforkuvinnslu úr jarðhitanum í kringum höfuðborgarsvæðið. Við Orkuveitufólk teljum að það sé ekki raunhæft og að lítið viðbótarrafmagn muni koma frá þessum svæðum. Forgangur hitaveitna um nýtingu Í lögum um Rannsóknir og nýtingu auðlinda í jörðu frá 1998 segir í 13. grein: „Sveitarfélag skal hafa forgangsrétt til nýtingarleyfa vegna jarðhita innan marka sveitarfélagsins vegna hitaveitu sem rekin er í sveitarfélaginu.“ Það er því ljóst að rafmagnsvinnsla á þeim háhitasvæðum sem liggja nálægt byggð verður ekki stunduð nema hitaveita hafi forgang. Umræðan um orkumál snýst nú einkum um hugsanlegan rafmagnsskort í landinu og að það þurfi jafnvel að tvöfalda raforkuvinnsluna. Í nýtingarflokki Rammaáætlunar, sem eðlilegt er að fyrst sé horft til í leit að öllu þessu rafmagni, koma ⅔ hlutar megavattanna frá jarðhita og mikill meirihluti hans er á suðvesturhorninu. Lífsgæði koma ekki að sjálfu sér og enginn orkugjafi kemst nærri jarðhitanum hvað varðar hagkvæmni til húshitunar. Mikilvægt er að hugsa um orkumál til langs tímaog eins og hér hefur verið rakið þurfum við að hugsa um að háhitasvæðin í nágrenni við þéttbýli verði aðgengileg fyrir hitaveiturnar á næstu áratugum ef komandi kynslóðir eiga að njóta þeirra gæða sem við búum nú við. Meira um rafmagnið í næstu grein. Grein 1 af 3 um orkuskipti. Höfundur er forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Bjarni Bjarnason Vatnsaflsvirkjanir Jarðhiti Vindorka Mest lesið Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun