Ford Bronco sýndur í Brimborg Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 16. desember 2022 07:00 Bronco að glíma við snjóinn. Ford Bronco dagar verða haldnir í Brimborg í dag, föstudaginn 16. desember og á morgun 17. desember í Reykjavík og á Akureyri. Fyrir mörgum er það söguleg stund því glænýr Ford Bronco er að snúa aftur til Íslands eftir um það bil 30 ára hlé. Íslendingar hafa beðið þess með mikilli eftirvæntingu að fá að sjá og prófa goðsögnina sem er nú komin í nýjan og vígalegan búning og hefur aldrei verið öflugri.
Meðfylgjandi er unnið upp úr fréttatilkynningu frá Brimborg. Ford Bronco Wildtrak og Raptor verða til sýnis í sýningarsölum Ford á Íslandi á Bíldshöfða 6 og í Brimborg á Akureyri dagana 16. og 17. desember. Að sjálfsögðu verður hægt að bóka reynsluakstur og skoða skemmtilegan Bronco-varning. Ford Bronco er öflugur jeppi og er sem sniðinn fyrir íslenskar aðstæður • Sjö G.O.A.T akstursstillingar • Öflugt H.O.S.S fjöðrunarkerfi • Rafdrifnar læsingar á fram- og afturdrifi • 330-418 hestöfl, 10 gíra sjálfskipting Ford Bronco Raptor Wildtrak. Ford Bronco er Íslendingum mjög vel kunnugur enda var hann óhemjuvinsæll fyrir nokkrum áratugum og hans helstu aðdáendur hafa engu gleymt. Hönnuðir nýja Ford Bronco sóttu innblástur í gamla útlitið frá árinu 1966 og héldu í hrátt yfirbragð og ævintýraandann sem vissulega liggur yfir jeppanum. Allt frá árinu 1966 þegar Ford Bronco kom fyrst fram á sjónarsviðið hefur jeppinn verið táknmynd frelsis og ævintýra. Líkt og forðum daga er auðvelt fyrir notendur að breyta jeppanum eftir aðstæðum hverju sinni. Til dæmis er hægt að fjarlægja hurðir og þak af bílnum. Ísland hefur forskot á Evrópumarkað Brimborg náði einstökum samningum við Ford í Bandaríkjunum og því komu 30 eintök af Ford Bronco til landsins, langt á undan öðrum mörkuðum í Evrópu. Óljóst er hvort eða hvenær fleiri eintök koma til Brimborgar og örfáir bílar eru enn á lausu.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent