Spennan í bókabransanum er nánast áþreyfanleg nú um stundir. Höfundar og útgefendur eru á nálum. Bóksalan er þegar öllu er á botninn hvolft helsti barómeterinn á það hvað klukkan slær í hugum bókaþjóðarinnar. Hvað höfðar helst til lesenda, eða kannski öllu heldur, hvað halda þeir sem gefa bækur í jólagjöf að höfði til þeirra sem eiga að fá pakkann?

Að sögn Bryndísar eykst bóksalan venju samkvæmt verulega eftir því sem nær dregur jólum. Veðurfar helgarinnar hefur þó augljóslega haft mikil áhrif á helgarsöluna, aukningin er ekki nema um 15 prósent milli vikna en til samanburðar var hún yfir 40 prósent á milli þessara síðustu vikna fyrir jól í fyrra.
„Góðu fréttirnar eru þó þær að enn eru margir dagar til jóla, færð fer vonandi batnandi um land allt og nóg er til af bókum. Og svo eru bækur svo góðar í laginu og hvorki flókið né tímafrekt að pakka þeim inn. Ég held að við eigum eftir að sjá meiri verslun alveg fram á Þorláksmessu í ár, líkt og alþekkt var fyrir nokkrum áratugum þegar jólainnkaup virtust að stórum hluta fara fram þennan skötulyktandi en þó hátíðlega dag þegar verslunarfólk mætti gjarnan prúðbúnara til vinnu en venja var,“ segir Bryndís í samtali við Vísi.
Glæpasagnahöfundarnir halda sínu
Lítil breyting er á listanum þessa vikuna frá birtingu síðasta Bóksölulista. Ef litið er á skáldverkalistann má sjá óbreytta stöðu á efstu sætum þar sem Katrín Jakobsdóttir og Ragnar Jónasson verma hásætið aðra vikuna í röð.
„Þó má segja að glæpasagnahöfundar hafi heldur verið að sækja í sig veðrið, Stefán Máni læðir Hungri sínu upp í fimmta sæti listans og Eva Björg Ægisdóttir fer upp um tvö sæti með bók sína, Strákar sem meiða sem situr í áttunda sæti. Þá læðir Lilja Sigurðardóttir Drepsvörtu hrauni sínu einnig upp um tvö sæti og er í tólfta sæti listans.“
Þannig má segja að glæpasagnahöfundarnir haldi vinsældum sínum meðal bókaþjóðarinnar og vel svo. Eini maðurinn sem setur strik í þann reikning er Ólafur Jóhann Ólafsson en hann hefur reyndar unnið það mikla afrek að hrifsað til sín metsölukrúnuna. Ólafur Jóhann á sér afar traustan hóp aðdáenda meðal lesenda.
„Á ævisagna- og fræðibókalistanum situr 29. Útkallsbókin í efsta sæti, mér liggur við að segja 29. árið í röð, þó einhverjar undantekningar hafi orðið á því. Þar á bæ eru það Pabbabrandarar Þorkels Guðmundssonar og Keltar Þorvalds Friðrikssonar sem óvæntast hafa skeiðað upp listann og uppskorið góða sölu,“ segir Bryndís og rýnir í bækur sínar.
Árið hans Gunna Helga
Á barnabókalistanum hefur Gunnar Helgason hreiðrað um sig í efsta sæti eins og svo oft áður en þau Birgitta Haukdal, Bjarni Fritzson og Gunnar Helgason teljast að mati Bryndísar barnabókahöfundar ársins ásamt svo auðvitað Íslandsvininum David Walliams.
Gunnar hefur lengi verið einn skeleggasti talsmaður barnabóka og þess að barnabókahöfundum verði gert hærra undir höfði þegar listamannalaunum er úthlutað.
Honum hefur heldur betur orðið að ósk sinni, barnabókahöfundar eru áberandi við síðustu úthlutun úr launasjóði rithöfunda og sjálfur fékk Gunnar 12 mánuði fyrsta sinni. Hann verður því á listamannalaunum allt næsta ár og situr því næstu mánuðina við skriftir en samkvæmt reglum Rannís mega þeir sem þiggja starfslaunin ekki fást við aðra launaða vinnu á meðan. Það mun því væntanlega ekki fara eins mikið fyrir leikaranum og skemmtikraftinum Gunnari og oft áður en hann mætir án vafa tvíefldur til leiks í jólabókaflóðið að ári.

En hver er að stela senunni? Hver er þá svarti folinn í ár?
„Í mínum huga getur það ekki talist neinn annar en meðhöfundur Ragnars Jónassonar, forsætisráðherra landsins, Katrín Jakobsdóttir. Fulltingi hennar hefur tryggt Ragnari fyrsta sætið og enn er ekki útséð um hvort bók þeirra, Reykjavík, hafi betur en Arnaldur Indriðason þegar kemur að ársuppgjöri bóksölunnar,“ segir Bryndís sem sér fram á fjöruga daga í bóksölunni.
Spurt er að leikslokum. Spennan er nú um hvort Arnaldur nái að halda sæti sínu á topplistanum eða hvort nýliðinn Katrín ýti hinum dáða spennusagnahöfundi til hliðar.
Mest seldu bækurnar vikuna 12.-18. desember 2022
1. Reykjavík glæpasaga - Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir
2. Kyrrþey - Arnaldur Indriðason
3. Játning - Ólafur Jóhann Ólafsson
4. Gættu þinna handa - Yrsa Sigurðardóttir
5. Útkall 29 - SOS, erum á lífi! - Óttar Sveinsson
6. Alexander Daníel Hermann Dawidsson : Bannað að ljúga - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
7. Hungur - Stefán Máni
8. Eden - Auður Ava Ólafsdóttir
9. Orri óstöðvandi : Draumur Möggu Messi - Bjarni Fritzson
10. Hamingja þessa heims : Riddarasaga - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
11. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian
12. Salka : Tímaflakkið - Bjarni Fritzson
13. Amma glæpon enn á ferð - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
14. Strákar sem meiða - Eva Björg Ægisdóttir
15. Guli kafbáturinn - Jón Kalman Stefánsson
16. Drengurinn með ljáinn - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Sigurjón Líndal Benediktsson
17. Flói bernsku minnar - Guðni Ágústsson og Guðjón Ragnar Jónasson
18. Tól - Kristín Eiríksdóttir
19. Saknaðarilmur - Elísabet Jökulsdóttir
20. Bréfin hennar mömmu - Ólafur Ragnar Grímsson
Skáldverk
1. Reykjavík glæpasaga - Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir
2. Kyrrþey - Arnaldur Indriðason
3. Játning - Ólafur Jóhann Ólafsson
4. Gættu þinna handa - Yrsa Sigurðardóttir
5. Hungur - Stefán Máni
6. Eden - Auður Ava Ólafsdóttir
7. Hamingja þessa heims : Riddarasaga - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
8. Strákar sem meiða - Eva Björg Ægisdóttir
9. Guli kafbáturinn - Jón Kalman Stefánsson
10. Tól - Kristín Eiríksdóttir
11. Saknaðarilmur - Elísabet Jökulsdóttir
12. Drepsvart hraun - Lilja Sigurðardóttir
13. Útsýni - Guðrún Eva Mínervudóttir
14. Tugthúsið - Haukur Már Helgason
15. Fjällbacka-serían : Gauksunginn - Camilla Läckberg, þýð. Sigríður Eyþórsdóttir og Sigurður Þór Salvarsson
16. Tættir þættir - Þórarinn Eldjárn
17. Jól í Litlu bókabúðinni - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
18. Gratíana - Benný Sif Ísleifsdóttir
19. Opið haf - Einar Kárason
20. Veðurteppt um jólin - Sarah Morgan, þýð. Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
Ævisögur, fræði- og handbækur
1. Útkall 29 : SOS, erum á lífi! - Óttar Sveinsson
2. Guðni – Flói bernsku minnar - Guðni Ágústsson og Guðjón Ragnar Jónasson
3. Bréfin hennar mömmu - Ólafur Ragnar Grímsson
4. Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson
5. Keltar – áhrif á íslenska tungu og menningu - Þorvaldur Friðriksson
6. Tarot-bókin - Handbók og falleg tarot-spil - Claire Goodchild, þýð. Hafsteinn Thorarens
7. Spítalastelpan : Hversdagshetjan Vinsý - Sigmundur Ernir Rúnarsson
8. Uppgjör bankamanns - Lárus Welding
9. Glaðasti hundur í heimi : Biblía hundaeigandans - Heiðrún Villa
10. Viltu finna milljón? Þú átt meiri pening en þú heldur - Hrefna Björk Sverrisdóttir og Grétar Halldórsson
11. Ameríska goðsögnin - Saga Harley-Davidson mótorhjóla á Íslandi - Njáll Gunnlaugsson
12. Þormóður Torfason : Dauðamaður og dáður sagnaritari - Bergsveinn Birgisson þýð. Vésteinn Ólason
13. Bakað meira Með Elenoru Rós - Elenora Rós Georgesdóttir
14. Vegabréf: Íslenskt Frá Afganistan til Bosníu og Búrkína Fasó - Sigríður Víðis Jónsdóttir
15. Líkið er fundið : Sagnatíningur af Jökuldal - Endursögn: Ragnar Ingi Aðalsteinsson
16. Prjónað á börnin – af enn meiri ást - Lene Holme Samsøe, myndh. Katrine Rohrberg, þýð. Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir
17. Hrafninn : Þjóðin - Sagan - Þjóðtrúin - Sigurður Ægisson
18. Stiklur um undur Íslands - Ómar Ragnarsson, myndhöf. Friðþjófur Helgason
19. Sjöl og teppi – eins báðum megin - Auður Björt Skúladóttir, myndh. Auður Björt Skúladóttir og Christine Einarsson
20. Lokakeppni HM í Katar 2022 : HM bókin - Kevin Pettman, þýð. Ásmundur Helgason
Barna- og unglingabækur
1. Alexander Daníel Hermann Dawidsson : Bannað að ljúga - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
2. Orri óstöðvandi : Draumur Möggu Messi - Bjarni Fritzson
3. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian
4. Salka : Tímaflakkið - Bjarni Fritzson
5. Amma glæpon enn á ferð - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
6. Drengurinn með ljáinn - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Sigurjón Líndal Benediktsson
7. Jólaföndur, rauð - Höfundar og þýðanda ekki getið
8. 13 þrautir jólasveinanna : Óveður í aðsigi - Huginn Þór Grétarsson
9. Dagbók Kidda klaufa 16 : Meistarinn - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
10. Leikum með sveinka - Höfundar og þýðanda ekki getið
11. Risaeðlugengið : Fjársjóðsleitin - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer, þýð. Æsa Guðrún Bjarnadóttir og Sverrir Jakobsson
12. Laddi - Snjókorn falla, skemmtilegustu jólalögin - Jón Ólafsson, myndh. Úlfur Logason
13. Litlu börnin læra orðin - Rhea Gaughan, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
14. Bóbó bangsi og jólin : Jólasaga með flipum til að opna! - Hartmut Bieber, þýð. Kolbeinn Þorsteinsson
15. Sofðu rótt, hugljúfar vögguvísur: Friðrik Dór, Hildur Vala og KK - Jón Ólafsson, myndh. Úlfur Logason
16. Bóbó bangsi í sveitinni - Kolbeinn Þorsteinsson
17. Hrekkjavaka með Láru - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
18. Spæjarastofa Lalla og Maju : Fótboltaráðgátan - Martin Widmark, myndh. Helena Willis, þýð. Æsa Guðrún Bjarnadóttir
19. Hva - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
20. Víst getur Lotta næstum allt - Astrid Lindgren, myndh. Ilon Wikland, þýð. Ásthildur Egilson
Mest seldu bækur ársins: 1. janúar til 18. desember 2022
1. Kyrrþey - Arnaldur Indriðason
2. Reykjavík glæpasaga - Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir
3. Játning - Ólafur Jóhann Ólafsson
4. Gættu þinna handa - Yrsa Sigurðardóttir
5. Hrekkjavaka með Láru - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
6. Útkall 29 : SOS, erum á lífi! - Óttar Sveinsson
7. Orri óstöðvandi : Draumur Möggu Messi - Bjarni Fritzson
8. Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian
9. Alexander Daníel Hermann Dawidsson : Bannað að ljúga - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring
10. Hungur - Stefán Máni
11. Amma glæpon enn á ferð - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
12. Eden - Auður Ava Ólafsdóttir
13. Lára fer í útilegu - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan
14. Salka : Tímaflakkið - Bjarni Fritzson
15. Dagbók Kidda klaufa 16 : Meistarinn - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
16. Jólaföndur, rauð - Höfundar og þýðanda ekki getið
17. Hamingja þessa heims - Riddarasaga - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
18. Skólaslit - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Ari H.G. Yates
19. Saknaðarilmur - Elísabet Jökulsdóttir
20. Hva - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson