Þetta kom fram í máli Sigurjóns í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Aðspurður hvort gerð Áramótaskaupsins sé ein mesta pressa sem sett sé á fólk innan leiklistar- og gríngeirans segir Sigurjón breytingar hafa orðið á geiranum, fleira fólk starfi nú innan hans sem vinni við það að semja grín allan ársins hring.
„Ég held að þetta skaup og fleiri sem að hafa verið á undanförnum svona tíu, fimmtán árum beri þess merki að þetta er unnið af fagmönnum,“ segir Sigurjón.
Vissi ekki hverju var verið að gera grín að
Þá nefnir hann í viðtalinu að hann hafi verið mjög ánægður með Skaupið og spenntur að sjá hvað fólkinu í kringum hann myndi finnast.
„Allir voru rosa glaðir líka, maður finnur það þegar fólk er ánægt, þá léttir því því að það þarf ekkert að fara að segja mér að þetta hafi verið lélegt. [...] Ég er að tala um fjölskyldu og nágranna. Það kom nágranni til mín sem var búinn að vera með kvíðahnút í maganum,“ segir Sigurjón.
Sigurjón staðfestir að leikarar sem taki þátt í Skaupinu fái almennt ekki að sjá verkið fyrr en þegar það er sýnt á gamlárskvöld. Hann minnist þess þegar hann lék í Skaupi fyrir tveimur áratugum.
„Ég man eftir því sjálfur. Ég lék í Skaupi held ég fyrir tuttugu árum þar sem ég hafði ekki hugmynd um að hverju væri verið að gera grín. En þetta heppnaðist ágætlega og mér var sagt þetta eftir á,“ segir Sigurjón hlæjandi.
Hjólastólasketsinn á sérstökum stað
Aðspurður hvort eitthvað sé í sérstöku uppáhaldi játar hann því að Love-ráðhús sketsinn hafi verið einn af þeim.
„Mér finnst hjólastólasketsinn líka, hann er á sérstökum stað sko. Hann var erfiður eða þú veist það var svona dálítið hugað að fara í loftið með hann.“
Sketsinn sem um ræðir snertir á umdeildri umræðu í kringum leikverkið „Sem á himni“ sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu.
Í sketsinum má sjá Harald Þorleifsson sitjandi í hjólastól sínum á miðju sviði eftir að hafa flutt einræðu. Óþægilegar aðstæður skapast þegar áhorfendur á leikhúsbekknum komast að því að Haraldur notar í raun hjólastól og er ekki að leika. Sketsinn má sjá í tístinu hér að neðan.
Made my TV acting debut last night on The Spoof (Icelandic: Skaupið). A yearly sketch show shown just before midnight on New Years Eve every year.
— Halli (@iamharaldur) January 1, 2023
Already hearing Oscar buzz. pic.twitter.com/3YVeJGSRLp
Verkið „Sem á himni“ var til umræðu í september síðastliðnum fyrir þær sakir að karakter í verkinu var sagður able-ískur og gera lítið úr fötluðu fólki. Þar að auki hafi leikarinn sem lék fatlaðan karakter ekki verið fatlaður sjálfur.
Sviðshöfundurinn Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir taldi að það hefði verið betra að sleppa karakternum.
Þá sagði Embla Guðrúnar- Ágústsdóttir, talskona Tabú, feminískrar fötlunarhreyfingar karakterinn virðast birtast „sem einhverskonar holdgerving staðalmynda um fatlað fólk. Kynlaus, vandræðalegur, barngerður og óaðlaðandi“.
Ekki voru allir sammála þeirri gagnrýni sem kom fram og sagði leikhússtjóri Þjóðleikhúsið ekki krefjast þess að leikarar hafi upplifað þær sögur sem þeir segi á sviðinu.
Viðtalið við Sigurjón í heild sinni má hlusta á í spilaranum hér að ofan.
Fréttin hefur verið uppfærð.