Heimsókn í skóla: Eva vill að Menntaskólinn á Tröllaskaga fái nýtt nafn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. mars 2023 17:16 Eva Margrét Guðnadóttir ræddi við keppendur Menntaskólans á Tröllaskaga í gegnum fjarksiptabúnað. Síðasta viðureign átta liða úrslita Framhaldsskólaleika Rafíþróttasamtaka Íslands, eða FRÍS, fór fram síðastliðinn miðvikudag þar sem Menntaskólinn á Tröllaskaga og Tækniskólinn áttust við. Eins og síðustu ár tók Eva Margrét Guðnadóttir púlsinn á nemendum skólanna fyrir viðureignina.
Eva skellti sér ekki beint í Menntaskólann á Tröllaskaga, en var þó í fjarsambandi við keppendur. Á milli þess sem skólinn var skoðaður og Eva stakk upp á að breyta nafni skólans einfaldlega í „Tröllaskólinn“ ræddi hún einnig við keppendur í gegnum fjarskiptabúnað. Menntaskólinn á Tröllaskafa þurfti þó að lokum að sætta sig við tap gegn ríkjandi meisturum Tækniskólans síðastliðinn miðvikudag og skólinn er því úr leik. Heimsókn Evu í skólann má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Heimsókn í skóla: Eva vill að Menntaskólinn á Tröllaskaga fái nýtt nafn Framhaldsskólaleikarnir halda svo áfram í kvöld þegar Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi mætast í fyrri undanúrslitaviðureign mótsins. Viðureignin verður í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi, en bein útsending hefst klukkan 19:30.
Rafíþróttir Framhaldsskólaleikarnir Mest lesið Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Fótbolti Fimmtíu fótboltastjörnur og Formúlu-ökuþór nýttu sér vændishring Fótbolti „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Enski boltinn Stórslasaður eftir að hafa verið blindfullur á hjóli Sport Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing Körfubolti Baldvin á samningi hjá Nike: „Hélt ég myndi aldrei ná svona langt“ Sport Ronaldo gæti spilað með syni sínum Fótbolti Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Fótbolti Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Enski boltinn