Baldvin stundaði nám við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi en þar kviknaði áhugavert áhugamál hjá honum.
„Þegar ég var í náminu þróaði ég með mér dellu fyrir míkrafónasmíði á milli þess sem ég var í skólanum eða að æfa mig.“

Fjölbreytt form út frá sveiflusjá
Verkefnið Tónbil spratt upp úr tilraunum sem Baldvin var að gera með sveiflusjá, sem er tæki sem breytir hljóðbylgjum í myndrænt graf á X og Y ás.
„Ég notaði sveiflusjá til að gera mælingar á míkrafónunum sem ég var að smíða og á einhverjum tímapunkti datt mér í hug að prófa að spila tónbil í gegnum sveiflusjána.
Mér til mikillar furðu urðu til allavegana form. Þessi form voru ekki kringlótt eins og endanlegu formin urðu en engu að síður voru þau symmetrísk og reglubundin.“

Áhugi á samfélagsmiðlum
Baldvin fór í kjölfarið að deila formunum á Instagram hjá sér og segir hann að fólk hafi verið mjög áhugasamt um þetta og spurt ýmissa spurninga.
„Eftir það fór ég að stúdera þetta nánar og fann, eftir töluverða leit, leið til að gera formin kringlótt. Mér fannst það skemmtilegt, þar sem öll tónbilin voru nú eins í laginu en mismunandi að innan.“
Verkin hans Baldvins koma í tveimur mismunandi litapalletum, annars vegar form í lit á svörtum bakgrunni og hins vegar form í svörtu á hvítum bakgrunni.
„Fyrir lituðu verkin valdi ég litinn sjálfur eftir eigin tilfinningu. Þau koma líka í tveimur stærðum en hvert verk er framleitt í takmörkuðu upplagi af sex.
Ég ramma verkin inn sjálfur af mikilli nákvæmni með svokallaðri float mount aðferð, sem felur í sér að verkin fljóta inni í rammanum en ramminn er sérsmíðaður, svartur og spónlagður álrammi.“

Hverri mynd fylgir texti um viðeigandi tónbil sem fjallar um tilfinninguna og hughrifin sem það tónbil hefur þótt vekja í aldanna rás sem og útskýringu á litavalinu og tengsl við viðeigandi lit í listfræðilegu og táknrænu samhengi.
Auk þess fylgir QR kóði með hverri mynd svo hægt sé að sjá og heyra tónbilið birtast á sveiflusjá og rannsaka hvernig það hegðar sér. Eintökin eru númeruð og árituð.