Kristján skoraði fimm í sigri Smári Jökull Jónsson skrifar 19. maí 2023 19:56 Kristján Örn Kristjánsson undirbýr þrumuskot í sigri Íslands gegn Brasilíu á HM í janúar. VÍSIR/VILHELM Kristján Örn Kristjánsson skoraði fimm mörk fyrir lið Aix sem vann sigurorð af Cesson-Rennes í frönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.
Kristján Örn og félagar hans sigla fremur lygnan sjó í deildinni en liðinu gekk afleitlega í upphafi tímabils eftir frábært gengi á síðustu leiktíð. Liðið hefur þó verið að ná í sigra að undanförnu og Kristján Örn verið að spila vel. Í dag mætti liðið Cesson-Rennes sem var örlítið neðar í töflunni og því var búist við spennandi leik. Leikurinn var jafn og spennandi í upphafi en undir lok fyrri hálfleiks náðu heimamenn í Aix góðu áhlaupi og leiddu 13-9 í hálfleik. Aix náði fimm marka forskoti í upphafi síðari hálfleiks en gestirnir í Cesson-Rennes bitu í skjaldarrendur og náðu að minnka muninn í tvö mörk um miðbik hálfleiksins. Þá beit lið Aix frá sér á nýjan leik, náði mest sex marka forskoti þegar tæpar tíu mínútur voru eftir og eftir það var engin spurning hvoru megin sigurinn myndi enda. Lokatölur í kvöld 28-24. Kristján Örn skoraði fimm mörk fyrir Aix í kvöld úr átta skotum og gaf eina stoðsendingu. Grétar Ari Guðjónsson lék í marki Sélestad sem tapaði fyrir St. Raphael á heimavelli í kvöld. Grétar Ari varði 8 skot í markinu en Sélestad vermir botnsæti deildarinnar og fátt sem kemur í veg fyrir fall.
Franski handboltinn Mest lesið „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“ Íslenski boltinn Aftur tapar Liverpool Fótbolti KR vann nýliðaslaginn Körfubolti Grindvíkingar horfa áfram út fyrir landsteinana Körfubolti Tottenham bjargaði stigi í Noregi Fótbolti Meistararnir byrja á góðum sigri Körfubolti Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 3-2 | Aftur mistókst Blikum að tryggja titilinn Íslenski boltinn Uppgjör: Víkingur - Valur 3-0 | Sannfærandi heimasigur í rigningunni Íslenski boltinn „Eina leiðin að segja já og amen við dómaranefndina“ Körfubolti Heimir yfirgefur FH að tímabilinu loknu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Sjá meira