Fótbolti

Verð­launa stuðnings­menn sína fyrir að nota ekki símana

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stuðningsmaður Borussia Dortmund sést hér taka af sér sjálfu á leik Borussia Dortmund og Real Madrid í Meistaradeildinni.
Stuðningsmaður Borussia Dortmund sést hér taka af sér sjálfu á leik Borussia Dortmund og Real Madrid í Meistaradeildinni. Getty/Matthew Ashton

Þýska knattspyrnufélagið Borussia Dortmund fer nýjar leiðir til að tryggja það að stuðningsmenn félagsins einbeiti sér að því að styðja á bak við liðið í stað þess að hanga í símunum sínum á leikjum.

Forráðamenn Dortmund ætla að verðlauna þá stuðningsmenn sem nota ekki snjallsímana sína meðan á leikjum liðsins á Signal Iduna Park stendur.

Þýska félagið kynnti nýja „aðdáendastillingu“ (Fan Mode) í opinberu smáforriti sínu, þar sem stuðningsmenn fá stig fyrir hverja mínútu sem líður án þess að þeir taki símann sinn úr lás.

Þeir stuðningsmenn sem safna flestum stigum geta unnið áritaðar keppnistreyjur leikmanna og gjafabréf.

Framtakið kemur í kjölfar rannsóknar í Þýskalandi sem leiddi í ljós að 63 prósent stuðningsmanna nota símann sinn reglulega á meðan á leikjum stendur.

„Þegar Borussia Dortmund tekur á móti Eintracht Frankfurt á laugardaginn (24. október) verða enn á ný yfir 81.000 áhorfendur á Signal Iduna Park. Á pöllunum snýst athyglin ekki aðeins um mörk, tæklingar og söngva. Þar vaknar einnig spurning sem æ oftar ber á góma: Hversu mikil snjallsímanotkun bætir í raun upplifunina á vellinum?“ segir í frétt á miðlum Borussia Dortmund.

„Umræðan leiðir líka í ljós að sífellt fleiri stuðningsmenn eru orðnir þreyttir á sjálfum, streymi og samfélagsmiðlum á pöllunum. Fyrir heimaleikinn gegn Frankfurt kynna Borussia Dortmund og Vodafone því nýja „Fan Mode“-stillingu í BVB-appinu. Þessi eiginleiki verðlaunar stuðningsmenn sem stilla snjallsímann sinn á „Fan Mode“ á heimaleikjum og hafa hann læstan á meðan boltinn er í leik,“ segir í umræddri frétt á miðlum Dortmund.

Þar kemur enn fremur fram að „Fan Mode“ verði í boði á öllum heimaleikjum. Það virkar svipað og flugstilling, sem margir þekkja nú þegar úr daglegu lífi. Með einni snertingu geta stuðningsmenn aftengt sig og sökkt sér algjörlega í leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×