Tekur við sem þjálfari Kokkalandsliðsins Atli Ísleifsson skrifar 25. maí 2023 09:10 Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumaður. Aðsend Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumaður hefur verið valin þjálfari Íslenska Kokkalandsliðsins sem Klúbbur matreiðslumeistara heldur utan um og rekur.
Í tilkynningu segir að Snædís hafi útskrifast sem matreiðslumaður árið 2018 og hafi alla tíð verið tengd keppnismatreiðslu. „Hún var fyrirliði í landsliðinu sem fór á heimsmeistaramótið 2018 og var einnig fyrirliði í liðinu sem var í þriðja sæti á Ólympíuleikunum í Stutgart 2020. Snædís hefur tekið þátt í keppninni um Kokk ársins og vann nýlega keppnina Nordic Challange sem haldin var á Akureyri. Snædís hóf nám sitt á Apótekinu, þó áhuginn hafi í raun vaknað þegar hún starfaði á Sushi Samba. Náminu lauk hún svo á Hótel Sögu. Aðspurð sagðist Snædís þó ekki hafa gengið með kokkinn í maganum og ætlaði í raun aldrei að læra fagið en þegar sú ákvörðun var síðar tekin þá stefndi hún jafnhliða að því að vera ein að þeim bestu! Með það í huga varð hún fljótlega einn af aðstoðarmönnum landsliðsins og síðar einn af aðstoðarmönnunum á Ólympíuleiknum 2016. Í dag starfar Snædís sem yfirmatreiðslumaður á ION Hótel,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Snædísi að hún vilji vera fyrirmynd fyrir alla sem vinni með henni og vonist hún til að þeim finnist þau geta sótt til hennar ráð bæði nú og í framtíðinni. „Ein af mínum stoltustu stundum var þegar ég gekk upp á svið til að fá afhent brons verðlaun á Ólympíuleikunum 2020 komin fjóra mánuði á leið. Ég á þá ósk að landsliðsfólkið okkar eigi eftir að upplifa þessa sömu tilfinningu og við ætlum okkar á pall 2024 og auðvitað stefnum við á gull,” segir Snædís.
Vistaskipti Kokkalandsliðið Matur Mest lesið Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið