Síðustu ábúendur í Lokinhamradal Aníta Guðlaug Axelsdóttir skrifar 4. júní 2023 07:02 Sigríður á Hrafnabjörgum. RAX Lokinhamradalur er fallegur en afskekktur dalur á Vestfjörðum. Í dalnum bjuggu tveir einbúar, Sigurjón á bænum Lokinhömrum, og Sigríður á Hrafnabjörgum. Aðeins voru 300 - 400 metrar og einn lækur á milli bæjanna. Einhver sagði að þau hefðu ekki talast við seinni árin, sem er ekki alveg rétt. Þau studdu hvort annað. Bæði voru þau fjárbændur og Sigurjón þótti afar fjárglöggur en hann þekkti kindurnar sínar með nafni þegar hann kom auga á þær þar sem þær voru á göngu í fjallshlíðunum í kring. Eitt af fjöllunum, Skeggi, er grasi gróið langt upp í hlíðar og Sigríði var illa við fjallið því að sumar kindurnar fóru of langt upp í hlíðar þess og komu sér í sjálfheldu. Þarna gerast verstu veður sem gerast á vetrum á Íslandi, en líka þau bestu á sumrin. Myndirnar frá heimsókn RAX í hinn fallega Lokinhamradal ásamt rithöfundinum Jóni Kalman má sjá í nýjasta þætti RAX Augnablik í spilaranum hér að neðan. Klippa: RAX augnablik - Síðustu ábúendur í Lokinhamradal Hér fyrir neðan má sjá fleiri þætti úr smiðju RAX. Árið 1986 var RAX í fréttaferð á Ströndum á Vestfjörðum þegar hann rakst á mann að nafni Axel sem bjó á Gjögri. RAX fékk að smella af honum mynd þar sem Axel sat í bátnum sínum og hundurinn hans, Týri, stóð á steini rétt hjá. RAX spjallaði svo við Axel sem hafði frá mörgu ótrúlegu að segja og RAX áttaði sig á því að það þyrfti að skrásetja sögur fólks eins og Axels. Þessi mynd átti eftir að hafa mikil áhrif á ljósmyndaferil RAX. Klippa: RAX Augnablik - Axel á Gjögri Eftir að RAX fór að mynda fólkið í landinu kynntist hann Guðjóni Þorsteinssyni, bónda sem bjó í Mýrdal ásamt bróður sínum Óskari. RAX heillaðist af týpunni sem Guðjón var og heimsótti hann oft til þess að mynda hann. Í einni af þeim ferðum varð myndin til af Guðjóni sem átti eftir að prýða forsíðu bókarinnar Andlit Norðursins, og átti eftir að breyta miklu fyrir feril RAX. Klippa: RAX Augnablik - Guðjón við Dyrhólaey RAX hefur hitt nokkra einbúa sem margir hverjir hafa fullt að segja en heyrist sjaldan í, eins og RAX kemst að orði. Meðal þeirra er Fríða í Dagverðargerði sem stundaði þar fjárbúskap ásamt móður sinni. Þegar RAX heimsótti hana bjó hún ein ásamt kettinum sínum og lá ekki á glettnum skoðunum sínum. RAX hitti líka ekkjumanninn Jón í Gautsdal sem hafði í gegnum tíðina orðið fyrir barðinu á vondum veðrum á bæ sínum innst í dalnum. Hann var ekki draughræddur þó hann byggi afskekkt og hefði ekki sjónvarp sér til félagsskapar, en hræðsluleysið kom sér vel þegar hann upplifið tveggja ára tímabil þar sem hann var skyggn. Klippa: RAX augnablik - Einbúar Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi. RAX Ísafjarðarbær Tengdar fréttir Skelkuð hross í sjálfheldu Í desember árið 2006 flæddu Hvítá, og Litla- og Stóra Laxá yfir bakka sína með þeim afleiðingum að stórt landsvæði á Suðurlandi var þakið vatni. Þá sást að það er engin tilviljun að bæjarstæði á þessu svæði eru jafnan á hæðum og hólum því að bæirnir litu margir út fyrir að standa á litlum eyjum. 28. maí 2023 07:01 „Nautið kom alltaf á fleygiferð“ Á einni af ferðum sínum um Færeyjar kom RAX auga á skjöldótt naut sem hann langaði að mynda. Það stóð við mosagróinn hlaðinn vegg og RAX sá fyrir sér mynd þar sem það liti út fyrir að vera hluti af veggnum. Nautið átti sér hins vegar enga drauma um fyrirsætustörf og brást hið versta við og reyndi að stanga RAX sem flúði upp á vegginn þar sem hann mátti dúsa í hálftíma. 21. maí 2023 07:01 Brotlentu á Eiríksjökli Tveir Bretar ætluðu að fljúga yfir Eiríksjökul á leið sinni til Grímseyjar árið 1984 en flugu á jökulinn og brotlentu á honum í kjölfarið. Hannes Hafstein, sem stýrði Slysavarnarfélaginu á þessum tíma, bað RAX að reyna að ná myndum af slysstað. RAX flaug af stað en þegar hann kom að flakinu leist honum ekki á blikuna. 14. maí 2023 07:00 Bílarnir sem Kaninn skildi eftir Að ramba á stað sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú í eyði er sérstök upplifun. Ikatek flugvöllur á Grænlandi er þannig staður. Hann var byggður af Bandaríkjaher í seinna stríði og notaður sem varaflugvöllur þar sem flugvélar á þessum slóðum gátu fengið olíu. Bílar, olíutunnur og leifar af flugskýlum og skálum standa á svæðinu innan um tignarleg fjöllin í kring og hafa ekki verið hreyfð eða notuð frá því að stríðinu lauk. 7. maí 2023 07:01 Mest lesið Þóttist ólétt, fæddi dúkkubarn og sagði það svo dáið Lífið Einar skipulagði eigin útför og bauð í partí Lífið Óttaðist um líf sitt í Delta-flugi sem nauðlenti á Íslandi Lífið Hver er uppáhalds bókin þín eftir Halldór Laxness? Menning Sextíu fermetrar og fagurrautt Lífið Musk æstur í Reðasafnið Lífið Fokk Laxness! Sjáðu allt hitt sem þú ert að missa Lífið „Loksins er öll fjölskyldan saman komin“ Lífið Plaströrum um að kenna, ekki litlum typpum Lífið Elva fann sjálfa sig aftur Lífið Fleiri fréttir Óttaðist um líf sitt í Delta-flugi sem nauðlenti á Íslandi Þóttist ólétt, fæddi dúkkubarn og sagði það svo dáið Sextíu fermetrar og fagurrautt Einar skipulagði eigin útför og bauð í partí „Loksins er öll fjölskyldan saman komin“ Allur tilfinningaskalinn á Ungfrú Ísland Teen Elva fann sjálfa sig aftur Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Komin með nýjan rappara í sigtið Kosning hafin um sjónvarpsefni ársins Fokk Laxness! Sjáðu allt hitt sem þú ert að missa „Svo gaman að ég steingleymdi að ég væri með annan kjól“ Líf, fjör og einmanaleiki Plaströrum um að kenna, ekki litlum typpum Bleikir og hollir molar að hætti Jönu Musk æstur í Reðasafnið Ása og Leo héldu tvöfalda skírnarveislu Tróð matnum upp í sig til að reyna fá andstæðinga sína til að hlæja „Verið ekki að sjúga lítil typpi því þið verðið hrukkóttar“ „Pylsusala“ á Lækjartorgi á kvennafrídaginn Lovísa Rós er Ungfrú Ísland Teen Gerðið verði besti staðurinn nálægt borginni til að skoða stjörnur Heitasta listapar landsins á djamminu „Er ekki hrædd við að vera ég sjálf“ Sveinn Andri og María Sigrún mættu á frumsýninguna „Sextán ára stelpa hefur lítið að gera við svona háa upphæð“ Sýna(r)brjóstin, sýna stuðning Brjánn ávarpaði alla áhorfendur leiksins rétt fyrir upphafsflautið Innlit í þriggja hæða veitingastaðinn Bryggjuhúsið sem er í húsi frá 1863 Björgvin Franz kaupir 36 fermetra íbúð í miðbænum Sjá meira
Einhver sagði að þau hefðu ekki talast við seinni árin, sem er ekki alveg rétt. Þau studdu hvort annað. Bæði voru þau fjárbændur og Sigurjón þótti afar fjárglöggur en hann þekkti kindurnar sínar með nafni þegar hann kom auga á þær þar sem þær voru á göngu í fjallshlíðunum í kring. Eitt af fjöllunum, Skeggi, er grasi gróið langt upp í hlíðar og Sigríði var illa við fjallið því að sumar kindurnar fóru of langt upp í hlíðar þess og komu sér í sjálfheldu. Þarna gerast verstu veður sem gerast á vetrum á Íslandi, en líka þau bestu á sumrin. Myndirnar frá heimsókn RAX í hinn fallega Lokinhamradal ásamt rithöfundinum Jóni Kalman má sjá í nýjasta þætti RAX Augnablik í spilaranum hér að neðan. Klippa: RAX augnablik - Síðustu ábúendur í Lokinhamradal Hér fyrir neðan má sjá fleiri þætti úr smiðju RAX. Árið 1986 var RAX í fréttaferð á Ströndum á Vestfjörðum þegar hann rakst á mann að nafni Axel sem bjó á Gjögri. RAX fékk að smella af honum mynd þar sem Axel sat í bátnum sínum og hundurinn hans, Týri, stóð á steini rétt hjá. RAX spjallaði svo við Axel sem hafði frá mörgu ótrúlegu að segja og RAX áttaði sig á því að það þyrfti að skrásetja sögur fólks eins og Axels. Þessi mynd átti eftir að hafa mikil áhrif á ljósmyndaferil RAX. Klippa: RAX Augnablik - Axel á Gjögri Eftir að RAX fór að mynda fólkið í landinu kynntist hann Guðjóni Þorsteinssyni, bónda sem bjó í Mýrdal ásamt bróður sínum Óskari. RAX heillaðist af týpunni sem Guðjón var og heimsótti hann oft til þess að mynda hann. Í einni af þeim ferðum varð myndin til af Guðjóni sem átti eftir að prýða forsíðu bókarinnar Andlit Norðursins, og átti eftir að breyta miklu fyrir feril RAX. Klippa: RAX Augnablik - Guðjón við Dyrhólaey RAX hefur hitt nokkra einbúa sem margir hverjir hafa fullt að segja en heyrist sjaldan í, eins og RAX kemst að orði. Meðal þeirra er Fríða í Dagverðargerði sem stundaði þar fjárbúskap ásamt móður sinni. Þegar RAX heimsótti hana bjó hún ein ásamt kettinum sínum og lá ekki á glettnum skoðunum sínum. RAX hitti líka ekkjumanninn Jón í Gautsdal sem hafði í gegnum tíðina orðið fyrir barðinu á vondum veðrum á bæ sínum innst í dalnum. Hann var ekki draughræddur þó hann byggi afskekkt og hefði ekki sjónvarp sér til félagsskapar, en hræðsluleysið kom sér vel þegar hann upplifið tveggja ára tímabil þar sem hann var skyggn. Klippa: RAX augnablik - Einbúar Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.
Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.
RAX Ísafjarðarbær Tengdar fréttir Skelkuð hross í sjálfheldu Í desember árið 2006 flæddu Hvítá, og Litla- og Stóra Laxá yfir bakka sína með þeim afleiðingum að stórt landsvæði á Suðurlandi var þakið vatni. Þá sást að það er engin tilviljun að bæjarstæði á þessu svæði eru jafnan á hæðum og hólum því að bæirnir litu margir út fyrir að standa á litlum eyjum. 28. maí 2023 07:01 „Nautið kom alltaf á fleygiferð“ Á einni af ferðum sínum um Færeyjar kom RAX auga á skjöldótt naut sem hann langaði að mynda. Það stóð við mosagróinn hlaðinn vegg og RAX sá fyrir sér mynd þar sem það liti út fyrir að vera hluti af veggnum. Nautið átti sér hins vegar enga drauma um fyrirsætustörf og brást hið versta við og reyndi að stanga RAX sem flúði upp á vegginn þar sem hann mátti dúsa í hálftíma. 21. maí 2023 07:01 Brotlentu á Eiríksjökli Tveir Bretar ætluðu að fljúga yfir Eiríksjökul á leið sinni til Grímseyjar árið 1984 en flugu á jökulinn og brotlentu á honum í kjölfarið. Hannes Hafstein, sem stýrði Slysavarnarfélaginu á þessum tíma, bað RAX að reyna að ná myndum af slysstað. RAX flaug af stað en þegar hann kom að flakinu leist honum ekki á blikuna. 14. maí 2023 07:00 Bílarnir sem Kaninn skildi eftir Að ramba á stað sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú í eyði er sérstök upplifun. Ikatek flugvöllur á Grænlandi er þannig staður. Hann var byggður af Bandaríkjaher í seinna stríði og notaður sem varaflugvöllur þar sem flugvélar á þessum slóðum gátu fengið olíu. Bílar, olíutunnur og leifar af flugskýlum og skálum standa á svæðinu innan um tignarleg fjöllin í kring og hafa ekki verið hreyfð eða notuð frá því að stríðinu lauk. 7. maí 2023 07:01 Mest lesið Þóttist ólétt, fæddi dúkkubarn og sagði það svo dáið Lífið Einar skipulagði eigin útför og bauð í partí Lífið Óttaðist um líf sitt í Delta-flugi sem nauðlenti á Íslandi Lífið Hver er uppáhalds bókin þín eftir Halldór Laxness? Menning Sextíu fermetrar og fagurrautt Lífið Musk æstur í Reðasafnið Lífið Fokk Laxness! Sjáðu allt hitt sem þú ert að missa Lífið „Loksins er öll fjölskyldan saman komin“ Lífið Plaströrum um að kenna, ekki litlum typpum Lífið Elva fann sjálfa sig aftur Lífið Fleiri fréttir Óttaðist um líf sitt í Delta-flugi sem nauðlenti á Íslandi Þóttist ólétt, fæddi dúkkubarn og sagði það svo dáið Sextíu fermetrar og fagurrautt Einar skipulagði eigin útför og bauð í partí „Loksins er öll fjölskyldan saman komin“ Allur tilfinningaskalinn á Ungfrú Ísland Teen Elva fann sjálfa sig aftur Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Komin með nýjan rappara í sigtið Kosning hafin um sjónvarpsefni ársins Fokk Laxness! Sjáðu allt hitt sem þú ert að missa „Svo gaman að ég steingleymdi að ég væri með annan kjól“ Líf, fjör og einmanaleiki Plaströrum um að kenna, ekki litlum typpum Bleikir og hollir molar að hætti Jönu Musk æstur í Reðasafnið Ása og Leo héldu tvöfalda skírnarveislu Tróð matnum upp í sig til að reyna fá andstæðinga sína til að hlæja „Verið ekki að sjúga lítil typpi því þið verðið hrukkóttar“ „Pylsusala“ á Lækjartorgi á kvennafrídaginn Lovísa Rós er Ungfrú Ísland Teen Gerðið verði besti staðurinn nálægt borginni til að skoða stjörnur Heitasta listapar landsins á djamminu „Er ekki hrædd við að vera ég sjálf“ Sveinn Andri og María Sigrún mættu á frumsýninguna „Sextán ára stelpa hefur lítið að gera við svona háa upphæð“ Sýna(r)brjóstin, sýna stuðning Brjánn ávarpaði alla áhorfendur leiksins rétt fyrir upphafsflautið Innlit í þriggja hæða veitingastaðinn Bryggjuhúsið sem er í húsi frá 1863 Björgvin Franz kaupir 36 fermetra íbúð í miðbænum Sjá meira
Skelkuð hross í sjálfheldu Í desember árið 2006 flæddu Hvítá, og Litla- og Stóra Laxá yfir bakka sína með þeim afleiðingum að stórt landsvæði á Suðurlandi var þakið vatni. Þá sást að það er engin tilviljun að bæjarstæði á þessu svæði eru jafnan á hæðum og hólum því að bæirnir litu margir út fyrir að standa á litlum eyjum. 28. maí 2023 07:01
„Nautið kom alltaf á fleygiferð“ Á einni af ferðum sínum um Færeyjar kom RAX auga á skjöldótt naut sem hann langaði að mynda. Það stóð við mosagróinn hlaðinn vegg og RAX sá fyrir sér mynd þar sem það liti út fyrir að vera hluti af veggnum. Nautið átti sér hins vegar enga drauma um fyrirsætustörf og brást hið versta við og reyndi að stanga RAX sem flúði upp á vegginn þar sem hann mátti dúsa í hálftíma. 21. maí 2023 07:01
Brotlentu á Eiríksjökli Tveir Bretar ætluðu að fljúga yfir Eiríksjökul á leið sinni til Grímseyjar árið 1984 en flugu á jökulinn og brotlentu á honum í kjölfarið. Hannes Hafstein, sem stýrði Slysavarnarfélaginu á þessum tíma, bað RAX að reyna að ná myndum af slysstað. RAX flaug af stað en þegar hann kom að flakinu leist honum ekki á blikuna. 14. maí 2023 07:00
Bílarnir sem Kaninn skildi eftir Að ramba á stað sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú í eyði er sérstök upplifun. Ikatek flugvöllur á Grænlandi er þannig staður. Hann var byggður af Bandaríkjaher í seinna stríði og notaður sem varaflugvöllur þar sem flugvélar á þessum slóðum gátu fengið olíu. Bílar, olíutunnur og leifar af flugskýlum og skálum standa á svæðinu innan um tignarleg fjöllin í kring og hafa ekki verið hreyfð eða notuð frá því að stríðinu lauk. 7. maí 2023 07:01