Frá keyrslu í kulnun - og aftur til bata í betra líf Jón Þór Ólafsson skrifar 16. júlí 2023 20:00 Sem nýbakaður faðir í annað sinn, áður en ég datt inn á þing 2013, var ég á besta stað sem ég hef verið í lífinu. Með iðkun núvitundar og ákveðnum viðhorfsbreytingum varð ég nánast laus við stress og kvíða. Upplifði öryggi í flestum aðstæðum og frelsi og léttleika. Drifkrafturinn í lífinu varð sköpunargleði og velvilji. Það er dásamleg tilvera að upplifa öryggi á flestum sviðum lífsins og líka almennt vel við fólk og geta tekið því eins og það er. Fáar aðstæður voru streituvaldandi og aldrei áður hafði ég þolað vinnuálag betur. Án þessa ástands taugakerfisins hefði ég ekki komist á þing. En eins og vill gerast þá var ég á svo góðum stað að ég þurfti ekki að iðka núvitund, svo hún gleymdist, og þegar ég hefði þurft að iðka aftur þá varð ég ekki var við það, þar til eftir að ég keyrði mig í kulnun, en þá var ég ófær um að byrja að iðka aftur án aðstoðar. Kulnun er vítahringur streitu Kulnun er í eðli sínu vítahringur þar sem langvarandi streita gerir streitukerfi heilans viðkvæmara fyrir áreiti svo það er líklegra til að kveikja streituviðbrögð, og á sama tíma skaðar langvarandi streita getu framheilans til að slökkva streituviðbrögðin, sem þýðir enn meira stress sem veldur svo enn meiri skaða. Vísindin eru skýr að langvarandi streita skaðar getu framheilans, og þar sem viljastyrkur og sjálfstjórn búa í framheilanum, þá minnkar kulnun bæði getuna til að gera hluti almennt og getuna til að sleppa því sem er skaðlegt. Þó að fólk með þennan framheilaskort viti hvað sé best að gera og að forðast að gera, þá er það oft ófært um það. Kulnun og athyglisbrestur (ADHD) eru eins að þessu leyti. Á meðan ADHD er skilgreint sem meðfæddur skortur á framheilavirkni þá er kulnun áunnin skortur. Þetta er líkamlegur skortur, ekki persónulegir brestir, það er mikilvægt að vita. Til að vinna sig út úr kulnun þarf fólk því bæði stuðning og skilning. Án aðstoðar væri ég ekki á góðri leið út úr kulnun í dag. VIRK aðstoð fagfólks Með aðstoð fagfólks í VIRK, og fagfólks sem veitir þjónustu í gegnum VIRK, er áhuginn kominn aftur, sem er grundvöllur allrar minnar getu, því með ADHD keyri ég á áhuga frekar en viljastyrk. Minnið er að mestu komið líka og líkaminn yfirleitt laus við verki, en úthaldið er enn takmarkað og þegar batteríið er búið þá er það búið. Taugakerfið mitt þolir enn stress mjög illa, sem er eðlilegt, en sífellt færri aðstæður kveikja streituviðbrögðin og ég hef lært að verða fljótt meðvitaður um þau og að geta slökkt á þeim. Fyrir þau okkar sem lendum í kulnun er mikilvægt að vita að leiðin til bata hefst á því að stoppa og fá að raunverulega hvílast. Það er líka gott að vita að það að stoppa er tækifæri til að endurskoða lífið og hvað skiptir raunverulega máli, og já það er hægt að koma til baka í betra líf en áður, og til þess eru gagnreynd og vísindalega rannsökuð bjargráð. Hér eru nokkur sem gögnuðust mér. Bjargráðin eru svo öllum gagnleg til að þola stress betur (kallað: seigla) og til að forðast kulnun. Hreyfing Hot Yoga rúllaði bataferlinu af stað eins og ég fór yfir í nýlegri grein um að ég hefði verið byrjaður að venja mig við þá tilhugsun að ég væri bara að verða gamalmenni 45 ára. Konan mín var ekki að sætta sig við það og bauð mér með sér í Hot Yoga og svo alhliða líkamsrækt með sjálfsnuddi í lokin. VIRK bauð mér svo á námskeiðið Sigrum streituna í Primal sem er mjög gagnlegur inngangur í hreyfingu, teygjur, öndun og slökun. Öndun Ákveðin stjórn á öndun er lykill að „sjálfvirka“ taugakerfinu sem hefur mjög mikla stjórn á stressi og slökun. Hef ekki rekist á neitt eitt sem án nokkurrar þjálfunar er jafn aðgengilegt, jafn áreiðanlegt og jafn hraðvirkt til að slökkva á streituviðbrögðunum - fyrir utan áfengi. Svo þegar áfengi hætti að vera sjálfbær streitulosun prófaði ég fyrir tilviljun djúpöndun með teygjum sem samstundis slökkti streituverkina sem aðeins áfengi hafði virkað á. Ég lærði jafnframt að hægt er að virkja taugakerfið með öndun í stað fyrir koffíni, sem er gott að geta nota stundum þegar ég þarf að keyra upp orkuna. Núvitund Núvitund var lykilatriði fyrir mig í bataferlinu. Ég kunni að iðka núvitund og hafði iðkaði hana með hléum í tvo áratugi. En í kulnuninni gat ég ekki komið mér að því að iðka fyrr en Anna Dóra í Núvitundarsetrinu rétti mér líflínu til að komast af stað á námskeiðum hjá henni. Heilbrigðisyfirvöld og VIRK mæla með núvitund og segja rannsóknir sýna að iðkun geti dregið úr streitu, kvíða, þunglyndi og reiði, ásamt því að auka jákvæðni, lífsgleði og samkennd, með bein áhrif á virkni heilans. Vísindin sýna að iðkun núvitundar styrkir þá virkni framheilans sem hefur visnað við langvarandi streitu og kulnun. Streita og kulnun, birtingarmyndir og bjargráð Er nafn á mjög vel hannaðri hópmeðferð undir handleiðslu tveggja sálfræðinga sem eru sérfræðingar í streitu og kulnun. Þar er farið er yfir breidd vísindanna um kulnun og hvaða bjargráð eru sannreynd til að ná heilsu á ný. Það var gott að læra að kulnun hendir helst fólk sem er duglegara en því er hollt og að fá það skýrt að vísindin ráðleggja mér að stoppa og hvílast fyrst, og svo prófa mig áfram með önnur bjargráð til að róa streitukerfið. Sjalfs-góðvild og kærleikur Þegar ég var tilbúin að opna á þessar tilfinningar þá virkuðu þær eins ljósrofi á steitukefið. Fræðin í kringum samkennd í eigin garð og samkenndarmiðaða meðferð sýna að meðvitað er hægt að virkja svæði heilans sem láta okkur upplifa góðvild eða kærleika (parental care) og að þetta góðvildar-kerfi róar streitu-kerfið. Þau sem setja vanalega súrefnisgrímuna á aðra fyrst og gleyma sjálfum sér, geta lært að virkja góðvild í eigin garð og þau sem það kunna geta lært að lifa oftar í meiri kærleika og víkkað hann út til fleiri. - Þegar mér tekst þetta þá slökknar samstundis á öllu stressi og kvíða. Áfallameðferð EMDR er viðurkennd meðferð gegn áföllum, sem eru minningar af aðstæðum sem voru svo óþolanlegar að taugakerfið náði ekki að vinna úr þeim. Minningin verður því áfram óþolanleg þar til skapað er nógu öruggar aðstæður að þolanlegt sé að fara í minninguna svo heilinn geti klárað úrvinnsluna og tilfinningahleðsla minningarinnar minnkar eða jafnvel hverfur. Að geta róað streitukerfið með góðvild gagnvart mér sjálfum gerði mér fært að fara í þessa vinnu með Eddu Arndal EMDR meðferðaraðila þar sem ég fann öryggi á fleiri sviðum tilverunnar. Nætursvefn og miðdags blundur Kæfisvefninn sem ég mældist með síðasta sumar er næstum horfinn, en kæfisvefn hindrar djúpsvefn svo heilinn getur illa hreinsað sig og köfnunartilfinningin virkjar sífellt streitukerfið yfir nóttina. Það tók hálft ár að fá tæki sem stöðvar kæfisvefninn en fyrsta morguninn sagði konan mín mér að hroturnar væru horfnar. Læknirinn sagði mér brosandi að svona tæki hjálpa nefnilega fleiri en einum að sofa betur. Tveimur mánuðum síðar sýndu mælingar að tækið þarf lítið að hjálpa mér lengur og að ég væri næstum laus við kæfisvefninn. Svona skjótur bati er ekki venjan, og án efa spila mörg hin bjargráðin inn í betri svefn, þar með talið stuttur blundur eftir hádegi sem gjörbreytir orku og líðan og minnkar streitu þá daga sem ég fæ mér blund og þá virkar Yoga Nidra (svefn yoga) oft til að hjálpa mér að sofna hratt. Markþjálfun Já það er hægt að koma til baka úr kulnun í betra líf :) og færir markþjálfar geta hjálpað að hanna betra líf. Að geta stoppað og hvílast var fyrst, og svo önnur bjargráð til að róa streitukerfið. Þegar ég var tilbúinn bauð Heiða Björg VR ráðgjafinn mér til Arnórs Más markþjálfa sem var svo næmur fyrir mínum þörfum og hvernig ég gæti tengst nákvæmlega því sem er mér mikilvægast. - Tilgangur minnar tilveru er að finna sífellt betri leiðir til að upplifa öryggi á fleiri sviðum lífsins og meiri kærleika til sjálfs míns og annarra - og rannsaka svo hvernig vísindin útskýra þessa virkni og deila með öðrum. - Reebok fitness var svo að gefa mér tækifæri að nota infrarauðan heitan sal hjá þeim svo ég geti boðið ykkur að prófa með mér flest þessi bjargráð. Það er góðvild ykkar og VIRKri aðstoð að þakka að þessi dásamlega tilvera er byrjuð að birtast á ný. Verið velkomin að prófa með mér hvernig hægt sé að upplifa hana sem oftast. 💛 Höfundur er þjálfari og núvitundarleiðbeinandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jón Þór Ólafsson Mest lesið Glerbrotin í ryksugupokanum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Nokkur orð um sérlausn í flugi Birna Sigrún Hallsdóttir,Hrafnhildur Bragadóttir Skoðun Draghi-skýrslan og veikleikar Íslands Pawel Bartoszek Skoðun Túrverkir og hitakóf – má ræða það í vinnunni? Já endilega! Katrín Björg Ríkarðsdóttir Skoðun Er þetta virkilega svarið frá Þjóðkirkjunni? – þegar barn þarf að flýja úr helgidóm Hilmar Kristinsson Skoðun Átta mýtur klesstar inn í raunveruleikann - hvað er satt og hvað er logið um gervigreindina? Sigvaldi Einarsson Skoðun Iðjuþjálfun í verki Þóra Leósdóttir Skoðun Stóriðjutíminn á Íslandi er að renna sitt skeið Guðmundur Franklin Jónsson Skoðun Kirkjur og kynfræðsla Bjarni Karlsson Skoðun Geta öll dýrin í skóginum verið vinir? Steinar Bragi Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Er þetta virkilega svarið frá Þjóðkirkjunni? – þegar barn þarf að flýja úr helgidóm Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Átta mýtur klesstar inn í raunveruleikann - hvað er satt og hvað er logið um gervigreindina? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Glerbrotin í ryksugupokanum Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage skrifar Skoðun Túrverkir og hitakóf – má ræða það í vinnunni? Já endilega! Katrín Björg Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og veikleikar Íslands Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Nokkur orð um sérlausn í flugi Birna Sigrún Hallsdóttir,Hrafnhildur Bragadóttir skrifar Skoðun Geta öll dýrin í skóginum verið vinir? Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar Skoðun Iðjuþjálfun í verki Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Mannfræðingar á atvinnumarkaði: opið bréf til íslenskra atvinnuveitenda Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íbúðalán Landsbankans og fyrstu kaupendur Helgi Teitur Helgason skrifar Skoðun Að læra íslensku sem annað mál: ný brú milli íslensku og ensku Guðrún Nordal skrifar Skoðun Hamona Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ógn og ofbeldi á vinnustöðum – hvað er til ráða Gísli Níls Einarsson skrifar Skoðun Lesum meira með börnunum okkar Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Kynjajafnrétti á ekki að stöðvast við hurð heilbrigðiskerfisins Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar Skoðun Stóriðjutíminn á Íslandi er að renna sitt skeið Guðmundur Franklin Jónsson skrifar Skoðun Núll mínútur og þrjátíuogeittþúsund Grétar Birgisson skrifar Skoðun Barnvæn borg byggist á traustu leikskólakerfi Stefán Pettersson skrifar Skoðun Kirkjur og kynfræðsla Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Ójöfnuður í fjármögnun nýsköpunarverkefna Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun „Dánaraðstoð er viðurkenning á sjálfræði sjúklings og mannlegri reisn” Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þjóð án máls – hver þegir, hver fær að tala? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hvað vilja sumarbústaðaeigendur í Grímsnes- og Grafningshreppi? Bergdís Linda Kjartansdóttir skrifar Skoðun Lýðræði og samfélagsmiðlar Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun „Þú þarft ekki að skilja, bara virða“ Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Þetta er ekki tölfræði, heldu líf fólks Sandra B. Franks skrifar Skoðun Stjórnmálaklækir og hræsni Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Samfélag sem stendur saman Benóný Valur Jakobsson skrifar Skoðun Er biðin á enda? Halla Thoroddsen skrifar Skoðun Lífsstílsvísindi og breytingaskeiðið Harpa Lind Hilmarsdóttir skrifar Sjá meira
Er þetta virkilega svarið frá Þjóðkirkjunni? – þegar barn þarf að flýja úr helgidóm Hilmar Kristinsson Skoðun
Átta mýtur klesstar inn í raunveruleikann - hvað er satt og hvað er logið um gervigreindina? Sigvaldi Einarsson Skoðun
Skoðun Er þetta virkilega svarið frá Þjóðkirkjunni? – þegar barn þarf að flýja úr helgidóm Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Átta mýtur klesstar inn í raunveruleikann - hvað er satt og hvað er logið um gervigreindina? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Túrverkir og hitakóf – má ræða það í vinnunni? Já endilega! Katrín Björg Ríkarðsdóttir skrifar
Skoðun Mannfræðingar á atvinnumarkaði: opið bréf til íslenskra atvinnuveitenda Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Kynjajafnrétti á ekki að stöðvast við hurð heilbrigðiskerfisins Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar
Skoðun „Dánaraðstoð er viðurkenning á sjálfræði sjúklings og mannlegri reisn” Ingrid Kuhlman skrifar
Skoðun Hvað vilja sumarbústaðaeigendur í Grímsnes- og Grafningshreppi? Bergdís Linda Kjartansdóttir skrifar
Er þetta virkilega svarið frá Þjóðkirkjunni? – þegar barn þarf að flýja úr helgidóm Hilmar Kristinsson Skoðun
Átta mýtur klesstar inn í raunveruleikann - hvað er satt og hvað er logið um gervigreindina? Sigvaldi Einarsson Skoðun