Laxar og hnúðlaxar í Ásgarði Karl Lúðvíksson skrifar 25. júlí 2023 08:41 Hnúðlaxi landað við Ásgarð í Soginu Mynd: Árni Baldursson Hnúðlaxinn er farin að sýna sig í Íslensku ánum en í minna mæli en flestir áttu von á en meðal þeirra veiðisvæða sem hnúðlaxinn er mættur í er Sogið.
Eitt besta veiðisvæðið í Soginu er Ásgarður en veiðin þar hefur verið ágæt í sumar þó flestir hafi búist við meiru. Bleikjuveiðin var mjög góð í vor og greinilegt að Veitt og Sleppt á bleikjunni er að skila árangri því sífellt stærri stórar bleikjur eru að veiðast. Fjögurra og fimm punda bleikjur eru að verða daglegt brauð við Ásgarð svo það er eftir meiru að slægjast en bara laxi. Nýgenginn lax í Soginu við ÁsgarðMynd: Árni Baldursson Laxveiðin hefur þó verið ágæt en besti tíminn í Soginu er yfirleitt frá seinni partinum í júlí og fram til loka tímabils. það ber þó smá skugga yfir veiðinni en hnúðlaxar eru farnir að taka flugur veiðimanna í Soginu og eru veiðimenn vinsamlegast beðnir um að drepa þann fisk strax. Árni Baldursson eigandi Ásgarðs gerir yfirleitt gott mót við svæðið og átti góðan dag í gær þegar nokkrum löxum var landað og einum hnúðlaxahæng. Eins og áður segir er minna af hnúðlaxi en menn áttu von á en það breytir því ekki að ekki er um auðfúsugest að ræða í árnar og er hann því réttdræpur hvar sem hann veiðist.
Stangveiði Mest lesið Veiðimenn óttast laxeldið Veiði Frýs í lykkjum og takan eftir því Veiði Innsend frétt frá veiðihóp sem var koma úr Veiðivötnum Veiði Formanninn vantar sárlega þrjá laxa Veiði Svipaður fjöldi umsókna og 2011 Veiði 20 punda lax úr Norðurá Veiði Birtingurinn mættur í Varmá Veiði Myndakeppni Veiðimannsins í sumar Veiði Veiðivötn búin að rjúfa 10.000 fiska múrinn Veiði Mikið af bleikju að sýna sig í Hraunsfirði Veiði