Lýsti hatri á forstjóra Samskipa en var með honum í vinahóp Kjartan Kjartansson skrifar 1. september 2023 15:24 Ásbjörn Gíslason og Gylfi SIgfússon voru forstjórar Samskipa og Eimskipa á árunum sem samráðið er sagt hafa átt sér stað. Þeir virðast hafa átt í góðum samskiptum en ólöglegum að mati Samkeppniseftirlitsins. Vísir Ein fyrstu viðbrögð forstjóra Samskipa við húsleit sem Samkeppniseftirlitið gerði árið 2013 voru að hafa samband við framkvæmdastjóra hjá Eimskipum. Samráð fyrirtækjanna sem Samskip sætir metsekt fyrir er sagt hafa gert þeim kleift að hlunnfara viðskiptavini sína. Forstjóri Eimskips lýsti hatri á forstjóra Samskipa en var með honum í vinahóp þar sem þeir spiluðu saman golf.
Samkeppniseftirlitið lagði 4,2 milljarða króna sektir á Samskip fyrir alvarleg brot á samkeppnislögum með ólöglegu samráði við Eimskip á árunum 2008 til 2013 í gær. Fyrirtækið var einnig sakað um að veita rangar, villandi og ófullnægjandi upplýsingar og gögn við rannsókn málsins. Sektin er sú hæsta sinnar tegundar og rannsókn Samkeppniseftirlitsins sú umfangsmesta sem það hefur ráðist í. Eimskip gerði sátt við eftirlitið vegna sömu brota árið 2021. Gekkst félagið undir 1,5 milljarða króna sekt. Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins telur fleiri hundruð blaðsíður en á þeim er rakið hvernig fyrirtækin tvö hafi að mati stofnunarinnar aukið við ólöglegt samráð sem þau áttu þegar í rétt fyrir efnahagshrunið árið 2008. Með ólöglegu samráði sínu hafi fyrirtækin dregið úr samkeppni á markaði sem þau höfðu saman yfirburðastöðu á og getað hækkað eða viðhaldið verði gagnvart viðskiptavinum sínum. Á meðal þess sem kemur fram í ákvörðuninni er að mjög stuttu eftir að fulltrúar Samkeppniseftirlitsins hófu húsleit í höfuðstöðvum bæði Samskipa og Eimskipa að morgni 10. september árið 2013 hringdi Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, í framkvæmdastjóra sölu og þjónustu hjá Eimskipum. Forstjóri Eimskipa var þá staddur erlendis. Þegar forstjórinn var spurður út í samskipti við stjórnendur Eimskipa síðar um daginn greindi hann ekki frá símtalinu. Samkeppniseftirlitið telur þetta benda til þess að forstjóri Samskipa hafi hringt í Eimskip til þess að vara við húsleitinni. Völdu samráð fram yfir harðari samkeppni Samráðið er sagt hafa hafist af fullum krafti árið 2008. Það hafi jafnvel fengið sérstakt heiti: „Nýtt upphaf“. Markmið þess var að raska samkeppni og var ólöglegt, að mati Samkeppniseftirlitsins. Samskip hafi á þessum tíma staðið frammi fyrir tveimur kostum til þess að bregðast við versnandi efnahagshorfum og minnkandi eftirspurn eftir innflutningi á fyrri hluta ársins 2008. Önnur leiðin var að fara í harðari samkeppni við Eimskip en hin að auka samráð sem hafi átt sér stað frá 2001. Samskip hafi valið seinni leiðina. Persónulegur kunningsskapur Ásbjörns, forstjóra Samskipa, og Gylfa Sigfússonar, nýs forstjóra sem tók við Eimskipum í maí 2008, er sagður hafa auðveldað Samskipum að nálgast samkeppnisaðilann um ólögmætt samráð fyrirtækjanna. Aðaleigandi Samskipa, forstjóri Samskipa, formaður stjórnar Eimskipa og nýr forstjóri Eimskipa eru sagðir hafa fundað í húsakynnum Kjalars, aðaleiganda Samskipa, og ákveðið samráðið í júní árið 2008. Í því hafi falist að fyrirtækin skiptust á viðkvæmum upplýsingum og metið ábata af því að auka samstarf í grunnþáttum starfsemi þeirra. Áður höfðu fyrirtækin átt í samráði um verð og markaðsskiptingu, meðal annars með sjóflutninga milli Íslands og annarra ríkja, landflutningum á Norðurlandi og skipaafgreiðslu. Alcoa var mikilvægur viðskiptavinur Samskipa. Með samráði við EImskip er fyrirtækið sakað um að hafa getað skert þjónustu og stórhækkað verð til Alcoa.Vísir/Vilhelm Næstu misserin og árin hafi stjórnendur félaganna tveggja átt fjölda funda og samtala. Á meðal þess sem samið á að hafa verið um á þessum fundum var ólögmæt skipting landflutningamarkaðar eftir landsvæðum. Með henni hafi Samskip annast flutninga fyrir Eimskip milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða og Eimskip stundaði þá ekki akstur á þeirri leið. Í staðinn fékk Eimskip að sitja eitt að flutningaleiðinni Reyðarfjörður-Eskifjörður og Nesskaupsstaður. Lýsti hatri á forstjóra Samskipa en var með honum í vinahóp Stjórnendur og lykilstarfsmenn hafi einnig hist á golfmótum, ferðalögum og matarboðum, alls 160 sinnum frá 2009 til 2013. Stjórnendur hafi reynt að fela þessi samskipti fyrir eftirlitinu. Þannig sagði Gylfi, forstjóri Eimskipa, að engin samskipti væru á milli hans og Ásbjörns, forstjóra Samskipa. „Það er svona hatur meira heldur en eitthvað annað sko,“ sagði hann fulltrúum Samkeppniseftirlitsins. Sagði hann að honum liði illa í návist starfsmanna Samskipa og forðaðist öll samskipti við þá. Hann færi aldrei í veiðiferð ef forstjóri Samskipa eða aðrir stjórnendur þess fyrirtækis væru með í för. Engu að síður eru forstjórarnir tveir sagðir hafa verið í hópi tólf manna sem léku golf saman, tefldu saman, veiddu saman og fóru saman í skemmtiferðir til útlanda. Hópurinn hafi ítrekað hist á árunum 2010 til 2013. Forstjórarnir tveir hafi meðal annars verið báðir í hópnum í golfferðum til Bretlands og Danmerkur 2010 og 2012 og veiðiferð í Selá árið 2012. Mikið ósamræmi í yfirlýsingum forstjóra skipafélaganna tveggja um samskipti þeirra í leik og starfi telur Samkeppniseftirlitið gefa til kynna að þeim hafi verið ljóst að samskipti þeirra væru ekki í samræmi við kröfur samkeppnislaga. Því hafi þeir lagt sig fram um að leyna samskiptum sínum og fyrirtækjanna. „Eruð þið eitthvað klikkuð?“ Samráðið er sagt hafa gert fyrirtækjunum tveimur kleift að hækka verð verulega, jafnvel á tíma þar sem erlend skipafyrirtæki lækkuðu gjaldskrár sínar vegna lækkandi olíuverðs og minni eftirspurnar, án þess að eiga á hættu að missa viðskiptavini sína. Samskip hafi til að mynda náð að skerða þjónustu til álvers Alcoa á sama tíma og fyrirtækið hækkaði verð um 131 prósent. Viðskiptavinir fyrirtækjanna tóku ítrekuðum verðhækkunum þeirra ekki þegjandi. „Eruð þið eitthvað klikkuð? Hver samþykkir 80 prósent hækkun?“, sagði í tölvupósti óánægðs viðskiptavins sem Eimskip krafði um hærra verð haustið 2008. Þá eru stjórnendur Eimskipa sagðir hafa sent á milli sín kvörtun Ölgerðarinnar yfir verðhækkunum „til skemmtunar“. Ölgerðin taldi verðlagninu Eimskipa á landflutningaþjónustu „fáránlega“. Samráð Eimskipa við Samskip á að hafa tryggt að útboð Ölgerðarinnar á flutningsviðskiptum hafi ekki skilað lægra tilboði.Vísir/Vilhelm Fyrirtæki eins og Ölgerðin reyndu að bjóða út flutningsviðskipti sín frekar en að sætta sig við verðhækkanirnar. Samráðið gerði það að verkum að stóru skipafélögin tvö reyndu ekki að keppa um stóra viðskiptavina hvors annars. Samkeppniseftirlitið segir þannig að tilboð sem Samskip sendu Ölgerðinni hafi verið sýndartilboð. Stjórnendur Samskipa og Eimskipa eru sagðir hafa lýst stöðunni á markaðnum sem „friðnum“ í samtímagögnum. Í þeim friði hafi falist gagnkvæm vissa um viðbrögð keppinautarins. Á meðan lögðu fyrirtækin áherslu á að hækka verð eða halda því uppi. „Sameiginleg yfirburðastaða Eimskips og Samskipa á markaðnum, samskipti stjórnenda fyrirtækjanna og aðrir þættir í samráði fyrirtækjanna sköpuðu kjöraðstæður fyrir fyrirtækin til að ná árangri í samráðinu og hagnast á kostnað viðskiptavina og samfélagsins alls,“ segir í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Sakamálarannsókn stendur enn yfir Fyrirtækin eru sögð hafa dregið úr samráði sínu á árinu 2013 vegna breyttra efnahagsaðstæðna. Efnahagsbati á Íslandi hafi myndað hvata fyrir þau til að auka flutningsmagn í siglingakerfum sínum og hverfa frá samráði um þau áttu í eftir hrunið. Á þeim tíma hafi Alcoa hætt útflutningsviðskiptum við fyrirtækin tvö og með því hafi umfangsmikið flutningsmagn horfið úr siglingakerfum þeirra, sérstaklega Samskipa. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari hefur haft mál stjórnenda Eimskipa og Samskipa á sínu borði í hátt í áratug.Vísir/Vilhelm Héraðssaksóknari hefur rannsakað meint brot stjórnenda Samskipa og Eimskipa í tengslum við samráðið frá árinu 2014. Fjórir núverandi og fyrrverandi stjórnendur eru enn með stöðu sakbornings í rannsókninni. Auk Gylfa og Ásbjörns eru það Pálmar Óli Magnússon, eftirmaður Ásbjörns á forstjórastóli Samskipa, og Bragi Þór Marinósson, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs Eimskipa. Ólafur Þór Hauksson, sértakur saksóknari, segir í samtali við Vísi að framhald málsins verði metið í ljósi ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins.
Skipaflutningar Samkeppnismál Eimskip Ólöglegt samráð Eimskips og Samskipa Tengdar fréttir Segir milljarða sekt koma til vegna samsæriskenninga Samskip ætla sér að kæra rúmlega fjögurra milljarða króna sekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á félagið í gær. Lögmaður Samskipa segir félagið vera sektað fyrir samsæriskenningar sem enginn fótur sé fyrir. 1. september 2023 12:05 Telja skipafélögin hafa valdið stórfelldu tjóni með samráði Sterkar vísbendingar eru um að ólöglegt samráð skipafélaganna Samskipa og Eimskipa hafi valdið fyrirtækjum í innflutningi og útflutningi stórfelldu tjóni, að mati Félags atvinnurekenda. Félagið hefur hvatt félagsmenn sína til þess að kanna hvort þau fái tjón sitt bætt frá félögunum. 1. september 2023 11:09 Sekta Samskip um 4,2 milljarða vegna samráðs Samkeppniseftirlitið hefur sektað Samskip um 4,2 milljarða og telur fyrirtækið hafa með alvarlegum hætti brotið gegn samkeppnislögum með ólögmætu samraði við Eimskip. Samskip hafnar niðurstöðu eftirlitsins. 31. ágúst 2023 18:07 Mest lesið „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Viðskipti innlent Sektuð fyrir að segjast vera best Neytendur Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Eldamennskan og jólaljósin algengasti brunavaldur um hátíðirnar Samstarf Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Viðskipti erlent Kilroy hafi veitt ferðamönnum rangar upplýsingar Neytendur Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Raforka til gagnavera snarminnkað Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Sjá meira
Segir milljarða sekt koma til vegna samsæriskenninga Samskip ætla sér að kæra rúmlega fjögurra milljarða króna sekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á félagið í gær. Lögmaður Samskipa segir félagið vera sektað fyrir samsæriskenningar sem enginn fótur sé fyrir. 1. september 2023 12:05
Telja skipafélögin hafa valdið stórfelldu tjóni með samráði Sterkar vísbendingar eru um að ólöglegt samráð skipafélaganna Samskipa og Eimskipa hafi valdið fyrirtækjum í innflutningi og útflutningi stórfelldu tjóni, að mati Félags atvinnurekenda. Félagið hefur hvatt félagsmenn sína til þess að kanna hvort þau fái tjón sitt bætt frá félögunum. 1. september 2023 11:09
Sekta Samskip um 4,2 milljarða vegna samráðs Samkeppniseftirlitið hefur sektað Samskip um 4,2 milljarða og telur fyrirtækið hafa með alvarlegum hætti brotið gegn samkeppnislögum með ólögmætu samraði við Eimskip. Samskip hafnar niðurstöðu eftirlitsins. 31. ágúst 2023 18:07