„Ég átti ekki krónu“ Íris Hauksdóttir skrifar 14. september 2023 07:01 Helgi Ómarsson flutti til Íslands með báðar hendur tómar, segir mikilvægast að sýna sjálfum sér mildi. aðsend Þrjú ár eru nú síðan tískubloggarinn, hlaðvarpsstjórnandinn og ljósmyndarinn, Helgi Ómarsson fluttist hingað til lands slyppur og snauður. Hann segir ótrúlegt að líta til baka. „
Það er magnað að hugsa til þess hve margt hefur breyst síðan ég læddist út úr íbúðinni minni í Vesterbro. Ég átti íbúðina með fyrrverandi kærastanum mínum og vissi á þessari stundu að ég mundi aldrei snúa aftur til hans. Á þessum tímapunkti var ég gjörsamlega búinn á því á líkama og sál eftir að hafa verið blindur á hvað gengið hafði á síðustu átta ár.“ Hefði átt að fara í akút endurhæfingu Fyrsta skrefið eftir heimkomu var að finna íbúð. Hana fann Helgi í Hlíðunum þangað sem hann flutti inn ásamt litla bróður sínum. „Ég átti ekki krónu og gat oft ekki lagt bílnum mínum. Ég keypti það allra nauðsynlegasta fyrir íbúðina í góða hirðinum, eins og bolla, ostaskera og pott fyrir hafragrautinn. Ég tók síðan yfirdrátt fyrir rúmi. Þegar ég lít til baka er ég mjög stoltur af mér því ég kvartaði aldrei. Efst í huga var að búa til gott heimili fyrir okkur bræður og ég lagði hart að mér. Helgi segist enn vera að vinna í sér og laga soðinn heila. aðsend Eftir á að hyggja hefði ég átt að skrá mig í akút endurhæfingu en ég er enn að vinna í því að endurstilla og laga soðinn heila eftir öll þessi ár í Danmörku. Það er mikilvægt að klappa sjálfum sér á bakið af og til.“ Hef setið og grenjað yfir þessu öllu saman Í september 2021 fluttu bræðurnir í aðra íbúð þar sem þeir bjuggu í tvö ár. Núverandi kærasti Helga fluttist svo til þeirra í nóvember á síðasta ári og segir Helgi heimilið mikinn griðarstað fyrir alla fjóra, en fjórði íbúi heimilisins er hundurinn Nóel. Helgi mælir með mínímalískum lífsstíl.aðsend „Við Pétur höfum verið að gera upp nýju íbúðina okkar sem hefur verið skrautlegt, skemmtilegt og þolinmæðisverk. Á meðan við erum mjög spenntir að búa saman með hundinum okkar þá viðurkenni ég alveg að ég þarf svolítið að rífa tilfinningaböndin við íbúðina í Hlíðunum upp með rótum. Ég hef alveg setið og grenjað yfir þessu öllu saman. Skóf af sér þung andleg aukakíló Í ferlinu að koma undir mig fótunum á ný með báðar hendur tómar fann ég gríðarlega þörf að safna að mér veraldlegum hlutum. Ég er eins og svo margir aðrir, elska að hafa fallegt í kringum mig. En það má segja að ég sé kominn hringinn því í dag líður mér eins og ég sé að skafa af mér þung andleg aukakíló með því að losa mig við hluti og skilja hvað ég þarf í raun og veru lítið. Þegar maður á allt er eins og maður átti sig á því að maður þarf ekkert nema gott fólk í kringum sig, þak yfir höfuðið og nokkrar vel valdar spjarir. Ef maður sýnir sjálfum sér sjálfsmildi þá hefur maður allt sem raunverulega skiptir máli.“ Helgi þvertekur þó fyrir að með nýtilkomnum mínímalískum lífsstíl sé hann ekki að slökkva á sínum innri fagurkera. „Það er eins og þegar ég losa mig við veraldlegar eigur verði meira pláss í kerfinu mínu til að anda og líða vel. Ég get ekki mælt meira með því tilfinningin er æði.“
Tímamót Ástin og lífið Mest lesið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Menning Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Fleiri fréttir Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjá meira