Hviður gætu náð þrjátíu metrum á sekúndu Atli Ísleifsson skrifar 17. október 2023 07:16 Það eru blautir og vindasamir dagar framundan. Vísir/Vilhelm Hlýtt og rakt loft streymir nú til landsins úr suðri og má því reikna með suðaustanátt á landinu í dag, yfirleitt á bilinu tíu til átján metrum á sekúndu og þá hvassast í vindstrengjum við fjöll suðvestantil og á Snæfellsnesi.
Á vef Veðurstofunnar segir að líkur séu á vindhviðum að þrjátíu metrum á sekúndu á þeim slóðum og því gott fyrir vegfarendur á ökutækjum sem taki á sig mikinn vind að fara varlega. Talsverð rigning á Suðausturlandi, en von á rigningu í öllum landshlutum, úrkomuminnst á Norðurlandi. Reikna má með hita á bilinu eitt til níu stig, en hlýnar heldur er dregur nær helginni. „Í nótt dregur síðan heldur úr úrkomu, en von er á næstu rigningargusu á fimmtudag. Það eru því blautir og vindasamir dagar framundan í þessari viku,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðaustan og austan 10-18 m/s, hvassast við suðvesturströndina. Dálítil rigning, en þurrt og bjart með köflum norðanlands. Hiti 2 til 9 stig. Á fimmtudag: Suðaustan 13-20 m/s, hvassast við suðurströndina. Rigning, talsverð suðaustantil og hiti 5 til 11 stig. Á föstudag: Suðaustlæg átt, 8-13 m/s, en 13-18 norðaustantil. Rigning, talsverð suðaustanlands, en styttir upp um vestan- og norðanvert landið er líður á daginn. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Suðlæg átt og rigning, en þurrt að kalla á Norðurlandi. Hiti 6 til 11 stig. Á sunnudag: Útlit fyrir suðaustlæga átt með ringingu en að mestu bjart norðantil.
Veður Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Jólin verða rauð eftir allt saman Gengur í langvinnt hvassviðri seinni partinn Hiti geti mest náð átján stigum Vara við hættu á skriðuföllum og krapaflóðum Líklegt að hitamet verði slegið um jólin Appelsínugular og gular viðvaranir á aðfangadag Ákveðin suðaustanátt, milt og skúrir síðdegis Hiti að sjö stigum og mildast syðst Fer að lægja norðvestantil um hádegi Djúp lægð grefur um sig Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Tíðindalítið veður en bætir í vind í kvöld Dálítil snjókoma norðantil en þurrt sunnan heiða Lægðin á undanhaldi Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Sjá meira