Kane og Rashford skutu Englendingum á EM Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. október 2023 20:42 Harry Kane og Marcus Rashford sáu um markaskorun Englendinga í kvöld. Richard Heathcote/Getty Images Englendingar eru búnir að tryggja sér farseðilinn á EM 2024 með 3-1 sigri gegn Ítölum á Wembley í kvöld. Fyrir leikinn var ljóst að enska liðinu nægði jafntefli til að tryggja sér sæti á EM og því var nokkuð mikið undir í þessum stórleik kvöldsins, þrátt fyrir að bæði lið eigi enn eftir að leika tvo leiki í C-riðli undankeppninnar. Það voru þó Ítalir sem tóku forystuna með marki frá Gianluca Scamacca eftir stoðsendingu frá Giovanni Di Lorenzo strax á 15. mínútu. Tæpum 15 mínútum síðar fengu Englendingar þó vítaspyrnu er áðurnefndur Di Lorenzo braut á Jude Bellingham innan vítateigs. Fyrirliðinn Harry Kane fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi framhjá Gianluigi Donnarumma í markinu og staðan var því jöfn í hálfleik, 1-1. Marcus Rashford kom Englendingum svo í forystu með marki á 57. mínútu eftir stoðsendingu frá Bellingham áður en Harry Kane gulltryggði sigurinn með hnitmiðaðri afgreiðslu tuttugu mínútum síðar. Niðurstaðan því 3-1 sigur Englendinga sem eru nú búnir að tryggja sér farseðilinn á EM í Þýskalandi næsta sumar. Enska liðið er með 16 stig á topi C-riðils eftir sex leiki, sex stigum meira en Ítalir sem sitja í þriðja sæti. EM 2024 í Þýskalandi