Frjáls en samt í fjötrum Unnur Freyja Víðisdóttir skrifar 9. nóvember 2023 16:00 Við eigum mörg í afar eitruðu og meðvirku sambandi við snjallsímana okkar, og að týna þessum nútímatæknimaka okkar er svolítið eins og að lenda í skyndlegum en um leið frelsandi sambandsslitum. Nýlega stóð ég í slíkum sambandsslitum og það tveimur dögum fyrir langþráða ferð til útlanda. Síminn minn, sem hafði fram að þessu verið ágætis félagsskapur og trausturaðstoðarmaður í daglegu lífi mínu, hvarf eitthvert út í kosmósið og skildi mig eftir í hringiðu tilfinninga sem minntu óneitanlega á eftirmála stormasamra sambandsslita. Til að bæta gráu ofan á svart ákvað veskið mitt líka að fara í feluleik. Á þessum tímapunkti var mér farið að líða eins og ég væri stödd í skets í lélegri grínmynd og gat því ekki annað en hlegið að eigin óförum. Það eina sem ég átti eftir að tapa: kúlinu. Ekki lengur þræll stafræns drottnara míns, eða hvað? Aðskilnaðarkvíðinn sem ég fann í fyrstu var furðulegur tilfinningakokteill. Að losna undan áreitinu sem fylgir stöðugum tilkynningum úr símanum var eins og að losna úr klóm stjórnsams maka. Ég var laus við endalausar kröfur um athygli, tilkynningum sem stýrðu því hvernig mér leið, hvernig ég hugsaði og hegðaði mér. Ég var ekki lengur þræll stafræns drottnara míns. En var ég raunverulega frjáls? Eftir því sem tíminn leið og rykið af sambandsslitunum settist fóru að renna á mig tvær grímur. Allt í einu áttaði ég mig á því að það var engin leið fyrir mig að ná í annað fólk og engin leið fyrir það að ná í mig. Ég gat alveg eins verið strandaglópur á eyðieyju með engu símsambandi, einskonar Robinson Crusoe nútímans. Talandi um að finnast maður einangraður á stafrænni öld! Svo eru það praktísku afleiðingar þess að vera símalaus. Enginn snjallsími þýddi engin rafræn skilríki og engar snertilausar greiðslur. Þar sem mér hafði líka tekist að týna veskinu mínu hafði ég enga leið til að kaupa nauðsynjavörur fyrir heimilið eða eldsneyti á bílinn, hvað þá nýjan síma. Það sem stakk mest var tilhugsunin um einhverskonar neyðartilfelli. Hvað ef eitthvað hræðilegt kemur fyrir fólkið mitt á meðan ég er fjarri öðru fólki og þeirra símum? Þá er engin leið að ná í mig til að tilkynna mér það. Hvað ef ég lendi sjálf í slysi? Þá er engin leið fyrir mig til að hringja á hjálp. Ég upplifði mig berskjaldaða og hjálparlausa. Góð áminning um það hversu háð við erum orðin snjallsímunum Fátt er þó svo með öllu illt að eigi boði nokkuð gott. Þessi sambandsslit voru nefnilega góð áminning um það hversu háð við erum orðin snjallsímunum. Að týna þeim, þótt það sé bara í stuttan tíma, leiðir oft í ljós hversu fín línan er á milli þægindanna sem þeim fylgja og hve mikla stjórn þeir hafa yfir daglegu lífi okkar. Hvernig þeir veita okkur ákveðið frelsi en um leið festa okkur í fjötrum. Að lokum rataði ég í fangið á eldri og myndarlegri síma sem var áður í eigu elskulegrar tengdamóður minna. Heppilegt fyrir mig að hún hafi ákveðið að yngja upp. Þá var ekki annað en að bruna í farsímafyrirtækið mitt og fá þar nýtt símkort. Ekkert mál! Símkortið fékk ég en til að geta virkjað rafrænu skilríkin þurfti ég að geta sýnt fram á físísk skilríki. Var ég með þau? Nei, því ég hafði líka týnst veskinu mínu munið þið? „Ég þarf að fá að koma aftur á morgun með vegabréf“, sagði ég hálfskömmustuleg við starfsmanninn sem afgreiddi mig áður en ég gekk svo út með skottið á milli lappanna og keyrði heim. Þegar heim var komið steig ég út úr bílnum og rak upp stór augu. Mér til mikillar undrunar lá veskið mitt í bílsætinu. Ég hafði semsagt setið á því allan þennan tíma. Stundum sjáum við ekki það sem er beint fyrir framan nefið á okkur - eða í mínu tilfelli undir þjóhnöppunum. Sagan endar því vel, jafnvel þótt gamli síminn minn hafi ekki enn komist í leitirnar. Verandi tengd umheiminum á ný komst ég áhyggjulaus í útlandaferðina með síma og veski í farteskinu. Reynslan af þessari sjálfskapaðri ringulreið fékk mig til að endurskoða hið óreiðukennda samband sem ég átti við símann minn og hvatti mig til þess að skapa heilbrigðari venjur í kringum notkunina á honum. Hefðum við ekki verið aðskilin hefði ég ekki upplifað frelsið sem felst í því að aftengjast hinum sísuðandi stafræna heimi og finna friðinn í þögninni. Stundum eru sambandsslit nefnilega fullkomið tækifæri til að líta inn á við og finna betra jafnvægi í lífinu, jafnvel þótt þau séu bara tímabundin. Höfundur er sérfræðingur í miðlalæsi hjá Fjölmiðlanefnd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfélagsmiðlar Unnur Freyja Víðisdóttir Mest lesið Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir Skoðun Halldór 25.07.2026 Halldór Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Sjá meira
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun