Ég um mig frá mér til ég ræð Kristján Logason skrifar 24. nóvember 2023 09:01 Forkastanlegt bann það sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur af kunnuglegri ofurforsjárhyggju og fruntaskap sett á vegna núverandi atburða í Grindavík er ekki einvörðungu að verða okkur til atlægis úti í heimi heldur eru gjörðir hans og þvermóðska lílkleg til þess að valda landinu og ferðaþjónustunni stórum skaða sem hæglega getur hlaupið á miljörðum. Fréttir berast nú af því erlendis frá að fréttamiðlar sumir hverjir fjalli um núverandi atburði eins og um sé að ræða jarðskjálftavirkni og eldgos sem nær yfir allt Ísland og því sé ráðlegast að forðast ferðir hingað því það sé stór hættulegt. Það er mikil þörf á því í hverjum atburði að sagt sé sem greinarbest frá og skýringar fylgi svo almenningur fái sem besta mynd af atburði og sé ekki hræddur að óþörfu. Þar gegnir ljósmyndun og kvikmyndun mjög mikilvægu hlutverki og því fjölbreyttari sem þær eru og því betur sem þær gefa glögga mynd af stöðu mála og framvindu atburða því betra. Því betur gerir fólk sér grein fyrir hvað raunverulega gengur á. Þegar fréttist af því að hið heimsfræga rit National Geographic og sambærileg þýsk og evrópsk rit hafi gefist upp á því að eiga við þvermóðskufulla ofurbannista Íslendinga sem svara skilaboðum seint og ílla þá erum við stödd á frekar hættulegu sprungusvæði og mikil hætta á því að Ísland detti niður um sprungu á þeim fréttavegi og komist aldrei upp aftur þegar ljósmyndarar og fréttamenn hafa lýst því yfir að þeir nenni ekki til Íslands vegna flækjustigs við að komast að fréttaefni. Sem ljósmyndari kom ég bæði að gosinu á Fimmvörðuhálsi og að gosinu í Eyjafjallajökli 2010 og átti í báðum tilvikum góð samskipti við viðbragðsaðila jafnt sem lögreglu. Skilningur þá á veru okkar á svæðinu var til staðar og því hefur síðan verið hampað að Eyjafjallajökull og gosið þar eigi einn stærstan þátt í þeim uppgangi sem verið hefur innan ferðaþjónustunnar. Ef það er svo, er það vegna ljósmynda mín og annarra sem rötuðu um heim allan og greiddu götu ferðaþjónustunnar. Ljósmyndin er nefnilega það sem fólk rekur augun í, því næst fyrirsögn og ef hvoru tveggja vekur athygli þá les það textann. Ætla má að ég sem ljósmyndari hafi lagt mig í stórhættu við að mynda þessi tvö gos og það sé með því hættulegra sem ég hef gert sem ljósmyndari, því er ekki fyrir að fara og sætir það því enn meiri furðu en áður að mér og öðrum ljósmyndurum og blaðamönnum skuli meinaður aðgangur að svæði þar sem verulega hæpið er að við getum farið okkur að voða. Það að senda svo björgunarlið með ljósmyndurum í nafni öryggis er svo enn furðulegra því ef eitthvað kemur fyrir þá hverfur ekki einn ljósmyndari í eldhafið heldur hópur björgunarsveitarfólks líka. Þannig setur lögreglustjórinn á Suðurnesjum fleiri í óþarfa áhættu í nafni gerræðislegrar ákvarðana um falskt öryggi. Sem ljósmyndari og ferðalangur hef ég farið í gönguferð um Copper Canyon sem er eitt hættulegasta svæði í heimi, því þar fer fram helsta mariuana rækt Mexico og skemmst frá því að segja að stuttu eftir veru okkar í þorpinu Creel voru 30 manns drepin vegna gengjastríðs. Af hverju lifðum við af þessa för þrátt fyrir að hafa þurft samningaviðræður við El Loco í botni gilsins? Af því að við vorum undirbúin. Við höfðum talað við fólk og fengið útskýringar og af því við héldum haus og fríkuðum ekki út þegar mesta hættan steðjaði að og konan mín gekk óvænt beint í flasið á smyglurum meðan ég var á gilbarminum að mynda. Við héldum líka haus þegar í litla sæta þorpinu Atego á ruta des flores í El Salvador gekk að okkur drengur merktur með svaðalegu húðflúri S13 sem eru ein hættulegustu glæpasamtök í gervallri Mið-Ameríku og hótaði okkur og vildi peninga og bakpokann minn með myndavélum. Við komumst klakklaust frá þeirri reynslu af því við héldum haus og mér segir svo hugur að hann sé enn að sleikja sárin því yfirvöld náðu í skottið á honum mjög fljótlega á eftir. Eiginlega furðu fljótt. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum heldur ekki haus. Hann fríkar út í hvert skipti sem það er einhver viðburður af stærri gráðunni. Þannig hefur hann til dæmis eyðilagt ánægju mótorhjólamanna við að gera sér glaðan dag á Ljósanótt og í því sambandi ekki hikað við að brjóta lög og gefa skipanir sem eru hreint og klárt lögbrot og furðu sætir að ekki skuli hafa verið rannsakað til hlítar. Með kergju sinni og einstreingingshætti hefur hann þannig skaðað Ljósanótt og Suðurnesin. Nú er dæmið öllu alvarlegra því nú er hann farinn að skaða Ísland í heild, ímynd landsins sem og heimilda og fréttagerð frá þeim atburðum sem nú eiga sér stað. Einstaklingur á æðsta stigi stjórnsýslu sem ekki heldur haus þegar atburðir stærri en morgunverður hans gerast, á ekkert erindi í stjórnsýsluna og alls ekki þegar viðkomandi hefur verið staðinn að því að hundsa tilmæli ráðamanna og fara sínu fram í geðþótta þvert á heilbrigða skynsemi og með því kostað þjóðina bæði mikla fjármuni, menningarverðmæti og ánægjulegar stundir. Það að erlendir miðlar eins og National Geographic taki ákvörðun um að fjalla ekki um Ísland vegna kergju ráðamanna, stjórnsýslunnar og óstjórnlegrar stjórnsemi er graf alvarlegt mál sem á endanum getur kostað landið í heild milljarða. Einstaklingar í slíkri stöðu eins og Lögreglustjórinn á Suðurnesjum sem ekki geta sinnt mannlegum samskiptum ,ekki hafa yfirsýn yfir málin og ekki geta skipulagt sig með tilliti til mismunandi þarfa en fríka út og fyrirskipa aðgerðir af því að hann vill það, af því að hann segir það og af því að hann ræður, slíkir einstaklingar eiga, af því að hann ræður ekki við málið, að segja af sér þegar í stað. Höfundur er ljósmyndari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eldgos á Reykjanesskaga Lögreglan Ljósmyndun Mest lesið Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar