Væta um sunnan- og vestanvert landið Atli Ísleifsson skrifar 27. nóvember 2023 07:14 Gera má ráð fyrir að hiti verði á bilinu núll til fimm stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, átta til fimmtán metrum á sekúndu, en hægari austantil. Reikna má dálítilli vætu um sunnanvert landið en lengst af þurrt fyrir norðan.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það fari að rigna á vestanverðu landinu og þegar líður á daginn snúist þar í vestlæga átt, kólni og þá komi slydda líka við sögu, jafnvel snjókoma á heiðum. „Því má reikna með versnandi aksturskilyrðum á fjallvegum og eru ökumenn hvattir til að kynna sér vel veður og færð áður en lagt er af stað. Dregur úr vindi vestast með stöku éljum í kvöld. Hiti 0 til 5 stig. Á morgun verður veðrið mismundi eftir landshlutum. Suðaustan 8-13 m/s austantil en annars hægari. Allvíða slydda eða snjókoma en rigning á Suðausturlandi og úrkomulítið norðaustantil. Stöku él vestanlands. Hiti 0 til 6 stig, hlýjast syðst en nálægt frostmarki norðvestantil. Á miðvikudag verður austlæg átt 5-10 m/s og víða bjart með köflum, en skýjað og dálítil rigning eða snjókoma suðaustantil. Hiti um eða undir frostmarki en 0 til 4 stig sunnanlands,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðaustlæg átt 8-13 m/s en hægari vestantil. Víða snjókoma eða slydda en rigning á Suðausturlandi og úrkomuminna norðaustantil. Stöku él eða slydduél á vestanverðu landinu. Hiti víða 0 til 5 stig, en kringum frostmark norðvestantil. Á miðvikudag: Austlæg átt 5-13 og dálítil slydda eða rigning suðaustantil, bjartviðri á Vesturlandi, en annars él. Frost víða 0 til 5 stig, en frostlaust við sjávarsíðuna. Á fimmtudag: Norðlæg átt 5-13 og él, en bjartviðri sunnan heiða. Frost 0 til 7 stig. Á föstudag (fullveldisdagurinn): Norðlæg átt og él norðan- og austanlands, annars víða bjartviðri en líkur á snjókomu sunnanlands. Harðnandi frost. Á laugardag: Norðaustlæg átt með dálítlum éljum, en bjartviðri sunnan heiða. Talsvert frost um allt land. Á sunnudag: Útlit fyrir suðaustlæga átt. Snjókoma eða slydda með hlýnandi veðri um sunnan- og vestanvert landið og síðar rigning en þurrt og kalt norðaustantil.
Veður Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Innlent Fleiri fréttir Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Áfram kalt á landinu Óvenjulega hlýr desember Áfram kalt og lægðir sækja að landinu Hægir vindar og snjókoma norðan- og austantil Þykknar upp og snjóar Allt að tuttugu stiga frost en bjart víða Rólegt veður en kalt næstu daga Kólnar verulega á fyrstu dögum ársins Gular viðvaranir taka gildi Hvessir þegar líður á daginn Spáin fyrir gamlárskvöld að teiknast upp Frystir norðaustantil í kvöld Væta vestantil eftir hádegi Kuldaskil á leið yfir landið Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Sjá meira