Innlent

Harma að ekki hafi fundist staður fyrir brennu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Smábátahöfnin í Sandgerði hvaðan flugeldum verður skotið upp á gamlárskvöld.
Smábátahöfnin í Sandgerði hvaðan flugeldum verður skotið upp á gamlárskvöld. Vísir/Vilhelm

Ferða-, safna- og menningarráð Suðurnesjarbæjar harmar þá erfiðleika sem komið hafa upp við að finna áramótabrennu staðsetningu í Sandgerði sem uppfylli skilyrði fyrir slíkar brennur. Framtíðarfyrirkomulag verði skoðað betur að ári en í ár fái íbúar kyndla í boði bæjarins.

Þetta kemur fram í fundargerð Ferða-, safna- og menningarráðs Suðurnesjabæjar frá fundi ráðsins þann 19. desember síðastliðinn.

„Þeir tveir staðir sem hafa verið notaðir fyrri ár eru því miður ekki nothæfir lengur fyrir slíkar brennur,“ segir í fundargerðinni.

Fulltrúar ráðsins harma að ekki hafi tekist að finna staðsetningu sem uppfylli skilyrði og mun á nýju ári skoða betur framtíðarfyrirkomulag varðandi áramótabrennur í Suðurnesjabæ.

„Til þess að koma til móts við íbúa hefur verið ákveðið að bjóða íbúum og gestum þeirra að raða sér við Sjávargötu með kyndla í boði bæjarins sem afhentir verða á staðnum og þannig mynda fallega eldröð meðfram sjónum.“

Þá er minnt á að flugeldasýningin sé að sjálfsögðu á sínum stað en hún verði við smábátahöfnina í Sandgerði sem er vel sýnileg frá Sjávargötu.

„Ráðið vill hvetja íbúa til að taka þátt í þessum skemmtilega viðburði og hvetur til varkárni með eld.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×