Á vef Veðurstofunnar kemur fram að varasamar ferðaaðstæður geri skapast á þeim slóðum í dimmum éljum og skafrenningi.
Vegagerðin hefur varað við að margir vegir séu nú á óvissustigi á milli 9:00 og 20:00 og gætu lokast með stuttum fyrirvara. Vegfarendur eru beðnir um að vera ekki á ferðinni nema að brýna nauðsyn beri við.
„Á Austurlandi verður aftur á móti lengst af þurrt. Frost 0 til 7 stig. Undir kvöld fer að lægja og draga úr éljunum.
Á morgun sækir mildara loft að landinu og það hlýnar í veðri. Áttin verður suðvestlæg, 8-15 m/s og dálitlar skúrir eða él, en yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 0 til 6 stig síðdegis. Annað kvöld nálgast úrkomusvæði úr suðri og undir miðnætti má búast við rigningu eða slyddu víða um land.
Á föstudag er svo útlit fyrir suðvestan hvassviðri eða storm og það kólnar með dimmum éljum um landið sunnan- og vestanvert,“ segir í tilkynningunni.
Gulu viðvaranirnar taka gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Faxaflóa klukkan 12:30 og gilda fram á kvöld. Á Suðausturlandi tekur viðvörunin gildi klukkan 15:30 og er í gildi til klukkan 19.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag: Suðvestan 8-15 m/s og skúrir eða él, en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Hlýnandi, hiti 0 til 6 stig síðdegis. Hægari um kvöldið og allvíða rigning eða slydda undir miðnætti.
Á föstudag: Gengur í suðvestan 15-25 og kólnar með éljum, en styttir upp á Norðaustur- og Austurlandi. Frost 0 til 7 stig síðdegis.
Á laugardag: Snýst í norðan og norðvestan 5-15 m/s, en suðvestan 15-23 sunnantil fram eftir degi. Víða él og frost 0 til 9 stig.
Á sunnudag: Norðaustlæg eða breytileg átt og dálítil él, en yfirleitt þurrt vestanlands. Frost 2 til 15 stig, mildast syðst.
Á mánudag: Austlæg átt og snjókoma með köflum, en lengst af þurrt um landið norðanvert. Dregur úr frosti.
Á þriðjudag: Norðlæg eða breytileg átt og snjókoma eða él.