Norðlæg átt og él norðantil Atli Ísleifsson skrifar 7. febrúar 2024 07:19 Spáð er frosti núll til sex stig yfir daginn í dag. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag, þar sem él verða á norðanverðu landinu en léttir til norðvestantil. Léttskýjað verður sunnan heiða.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að það verði fimm til þrettán metrar á sekúndu en tíu til fimmtán metrar á sekúndu suðaustantil í dag. Spáð er frosti núll til sex stig yfir daginn, en herðir á frosti í kvöld. Það lægir svo víða á landinu í nótt „Breytileg átt 3-8 á morgun en 8-13 austast framan af degi. Stöku él um norðan- og norðvestanvert landið, en bjartviðri í öðrum landshlutum. Talsverð frost um mest allt land. Norðaustlæg eða breytileg átt 5-13 á föstudag. Víða létsskýjað en stöku él á víð og dreif, einkum á austanverðu landinu. Þykknar heldur upp á sunnanverðu landinu eftir hádegi en engin úrkoma fylgir því. Áfram kalt í veðri. Austlægar áttir og sum staðar dálítil él yfir helgina en yfirleitt bjart á vestanverðu landinu. Kalt í veðri. Svo er útlit fyrir smám saman hlýnandi veður í byrjun næstu viku, og dálitla snjókomu en einnig rigningu um miðjan viku,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 10 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Breytileg átt 3-8 m/s, en norðan 8-13 austast á landinu. Víða þurrt og bjart veður, en stöku él úti við ströndina. Frost 4 til 15 stig, minnst við sjóinn. Á föstudag: Austan og norðaustan 3-8. Skýjað og sums staðar dálítil él á austanverðu landinu og á Vestfjörðum, en annars víða léttskýjað. Áfram talsvert frost. Á laugardag: Austlæg átt 3-10. Víða skýjað og lítilsháttar él á víð og dreif en bjart suðvestantil. Dregur heldur úr frosti. Á sunnudag: Austan- og norðaustanátt. Bjart að mestu vestanlands en skýjað og stöku él fyrir austan. Frost 0 til 12 stig, kaldast inn til landsins norðantil. Á mánudag: Austlæg átt, en suðlægari seinnipartinn. Snjókoma með köflum í flestum landshlutum. Frost 0 til 6 stig en frostlaust við suður- og vesturströndina. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt. Stöku él eða slydduél vestanlands en bjart fyrir austan. Frost 0 til 10 stig en um eða yfir frostmarki suðvestantil.
Veður Mest lesið Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Innlent Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Innlent Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Erlent Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Erlent Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Innlent Ísland land númer 197 Innlent Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Fleiri fréttir Suðlægar áttir og úrkoma í flestum landshlutum Sunnan strekkingur og vætusamt Allhvass vindur sunnan- og vestanlands og rigning Fyrsta haustlægðin mætt til landsins Von á mesta vindinum í marga mánuði Búast við auknu álagi á fráveitu vegna mikillar úrkomu Röð lægða með hefðbundnu haustveðri Lægðagangur næstu daga býður upp á sígilt haustveður Strekkingsvindur og fremur vætusamt næstu daga Vaxandi vindur þegar líður á daginn Grunn lægð yfir landinu í dag en suðlægir vindar á morgun Víða kaldi og allhvasst en lægir smám saman í dag Gular viðvaranir og svalri norðanátt beint til landsins Slydduél norðantil en þurrt og bjart sunnan heiða Kólnar í kvöld og allvíða næturfrost Kólnar þegar líður á vikuna Milt veður og víða væta Rigning með köflum víðast hvar Blautt víðast hvar Dálítil rigning og lægðir á sveimi Væta með köflum og dregur úr vindi Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Hvasst og samfelld rigning austast Má reikna með vatnavöxtum suðaustantil Rigning í dag Víðast hægur vindur og hiti að fimmtán stigum Rigning norðan- og austantil en bjart suðvestanlands Léttskýjað vestan- og sunnantil en blautara annars staðar Hiti að tuttugu stigum og hlýjast sunnantil Sjá meira