Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir einnig að miðgildi biðtíma eftir liðskiptaaðgerðum á Landspítala hafi farið úr 9,5 mánuðum í 4,6 mánuði frá byrjun til loka árs 2023.
Samhliða auknum afköstum og auknu aðgengi að liðskiptaaðgerðum innan heilbrigðiskerfisins hafi þeim fækkað um rúmlega helming sem leita út fyrir landsteinana í aðgerð, á grundvelli biðtímaákvæðis EES-samningsins um heilbrigðistþjónustu yfir landamæri.
Haft er eftir Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra að unnið sé að því að stytta bið og jafna aðgengi óháð efnahag og stefnt sé að því að engin þurfi að leita til útlanda til að komast í aðgerð.
„Á undanförnum tveimur árum hefur framleiðslutengd fjármögnun verið innleidd í auknum mæli í sjúkrahúsþjónustu hér á landi. Sem hluti af aðgerðum stjórnvalda til að fjölga liðskiptaaðgerðum og stytta bið eftir þjónustunni voru settir upp framleiðslutengdir hvatar fyrir liðskiptaaðgerðir á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Greitt er sérstaklega fyrir hverja framkvæmda aðgerð umfram fjármagnaða áætlun stofnununarinnar. Slík fjármögnun eykur skilvirkni og framleiðni ásamt því að tryggja að fjárveitingar taki mið af umfangi þjónustunnar og raunkostnaði við veitingu hennar,“ segir á vef Stjórnarráðsins.
Þá segir að í bráðabirgðauppgjöri Landspítala fyrir árið 2023 komi fram að skurðaðgerðum á spítalanum hafi fjölgað um átta prósent árið 2023.
„Í mars 2023 voru undirritaðir samningar um framkvæmd 700 liðskiptaaðgerða milli SÍ, Klíníkurinnar í Ármúla og Handlæknastöðvarinnar í Glæsibæ. Sjúklingar sem fara í aðgerð á grundvelli þessa samnings njóta greiðsluþátttöku hins opinbera í samræmi við almennar reglur.“