Að skoða meira inn í sumar ástæður misnotkunar Matthildur Björnsdóttir skrifar 18. mars 2024 17:01 Er alla vega oft um að fara inn í líf þeirra sem fengu ekki að skilja hver þau væru eða hvað þau höfðu þráð að gera við líf sitt. Þá er ég að tala meira um þá tíma sem engar gagnlegar getnaðarvarnir voru í boði. Kristni vildi hafa kynin í hegðun einfaldrar formúlu þess að setja sem flest börn í heiminn. Samt bara eftir að hafa sagt já að einhverju altari. Konan átti að sjá um að ala börnin upp, en hann að afla viðurværis. Þeir skildu ekki að það væri ekki draumur allra um alla eilífð. Né að það væru einstaklingar sem upplifðu sig í einskonar hugrænu fangelsi. Sem var af því að það líf var ekki það sem brann í þeim að fá að lifa, þegar heilabúið var komið með það á hreint hvað líf hans eða hennar ætti að vera. Þeir skildu ekki að sálir koma til jarðar með allskonar drauma og tilgang. Þó að sem börn séu þau ekki alltaf meðvituð um það. Sum eru það þó. Við að vera heft í hlutverki sem viðkomandi hafði ekki þráð. Þá urðu börnin og konan ansi oft þolendur skaps fyrirvinnu. Kringumstæður sem um aldir var nær ógerlegt að sleppa vel frá að láta sig verða reyrðan til. Þá er það hvernig taugakerfin í einstaklingum virka sem er með mjög mismunandi hætti og þá líka eftir eðli og þyngd vonbrigða. Sumir fá pirringinn í gegn um vöðva og verða að lemja eða nota líkamlega hlið til að fá átrás. Aðrir fá það í gegn um það að tjá sig með allskonar slæmum orðum. Það var dæmi mitt og vinkonu minnar, sem voru samt frá tveim ólíkum ástæðum. Hennar var að amma hennar læsti hana í einn möguleika sem hún veitti þó enga gagnlega leiðbeiningu um hvernig ætti að virka. En mitt af því að tilvist mín var eilíf áminning um tapaðan draum. Uppskriftin sem ég fékk var frá því að hún og í raun engin kona þá gat fengið hjálp eða hlustun til að fá úrlausn á vonbrigðum sínum. Báðar uppskriftir leiddu til afvegaleiðandi áhrifa á að fá að upplifa innan frá í okkur hverjar við værum í raun, eða hvað líf okkar ætti að verða um frá okkar eigin innri rödd. Sú rödd var send í felur í langan tíma í mínu tilviki en ég fékk hana svo þegar ég var miðaldra. En vinkonan náði því aldrei og skildi ekki afleiðingar frá áhrifum ömmunnar fyrr en á ævikvöldinu. Það var engin almenn fræðsla í boði um hvað væri rétt leiðbeining til að börn fengu að vera það sem þau væru eða kæmu til að þjóna samfélaginu með. Sem betur fer voru þó til þeir foreldrar sem af einhverjum ástæðum voru betur í stakk búin með að byggja börn sín upp andlega og tilfinningalega, frekar en að rífa þau niður og tæta hvaða sjálfvirði sem hafi með þeim frá fæðingu niður á núll. Það þýddi sjálfvirkt að hvað sem hafði verið á undan, og þeir foreldrar fengið af góðu eða slæmu var oft meira og minna fært áfram á næstu kynslóðir sem Thomas Hubl og fleiri vita núna og bækur eru um. Svo voru og eru þeir sem hafa taugakerfi sem tengist mest við getnaðar- færa-kerfið sem þá er notað til kynlífs-misnotkunar, ef viðkomandi einstaklingur hefur ekki þroska og vit til að stjórna því betur. Við erum að sjá dæmi um það um allan heim og meira á Íslandi núna en ég vissi áður en ég flutti í burtu. Af því að slíkt var ekki sett eða séð sem frétt á mínum tímum á landinu til 1987. En var auðvitað að gerast eins og vitað er núna. Annarskonar dæmi um vanrækslu er þegar foreldri kúplar út hugrænt séð og fer inn í sinn eiginn heim, og sleppir því að eiga við tjáskipti við börnin. Áhugaleysi sem þá getur gefið þeim þá tilfinningu, að þau, líf þeirra og innri heimur skipti það foreldri engu máli. Þá missir barnið af þeirri mikilvægu heilaörvun sem nú í dag áratugum eftir að ég var ung, er séð sem mjög mikilvæg fyrir líf barna og framtíð þeirra. Atriði sem Julia Gilliard fyrrum forsætisráðherra Ástralíu talar um. Þessi og auðvitað ótal fleiri atriði eiga ábyggilega hlut í því sorglega ferli sem við erum að læra æ meira um í heiminum. Sem er um mikla þörf í ungu fólki til að deyfa heilabúið í sér með eiturlyfjum og víni. Vín hefur auðvitað verið notað um aldir til slíks, og afleiðingar af því óteljandi. En voru ekki í fréttunum nema kannski ef það að vera dauðadrukkinn var tengt við glæpi. Ef foreldrar verða að vera í vinnu allan daginn til að eiga fyrir lifibrauði, og enginn er einstaklingslega að sinna barninu. Þá er það spurning hvernig slíkt fer með, og inn í hugi þeirra um sjálf sig. Þegar ég fór í kvennagönguna um árið, þá var megin hugsun mín að börnum væri best sinnt og gætt fyrstu árin af báðum foreldrum. Þau myndu skipta með sér vinnu-vikunni og sinna öllum þörfum þeirra, tilfinningalegum sem líkamlegum. Með því myndu börn sjá bæði kyn gera allt heima elda og halda hreinu. Það reyndist því miður bara draumur. Hinn meiriháttar nú látni Ástralski „Sveita-söngva-söngvari“ hann Slim Dusty“ söng lagið „Looking forward, looking back“ sem er svo mikill og mikilvægur sannleikur. Ekki síst þegar árunum fjölgar, og við fengið það góða og erfiða frá fortíðinni. Svo sungu „The Seekers“ sungu lagið: „I will never meet another you“ sem er annar sannleikur um þau sem við höfum þekkt og elskað, eða ekki? Höfundur er Íslendingur sem hefur verið búsettur til langs tíma í Ástralíu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matthildur Björnsdóttir Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar