Hvassast suðaustantil og kólnandi veður Atli Ísleifsson skrifar 13. mars 2024 07:13 Gera má ráð fyrir kólnandi veðri á landinu. Vísir/Vilhelm Lægð suðaustur af landinu og hæð yfir Grænlandi stýra veðrinu í dag og má gera ráð fyrir norðaustlægri átt, yfirleitt kalda, en allhvössu á Vestfjörðum og Suðausturlandi.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði él fyrir norðan, slydda eða rigning austanlands en yfirleitt bjart suðvestantil. Hiti verður á bilinu núll til átta stig að deginum og mildast syðst. „Á morgun dregur úr vindi og úrkomu, sums staðar lítilsháttar él og fremur hæg norðaustlæg átt annað kvöld. Þá kólnar í veðri, frost 1 til 7 stig fyrir norðan, en hiti 0 til 4 stig sunnanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðan og norðaustan 5-15 m/s, hvassast suðaustantil. Lítilsháttar él norðaustanlands, annars úrkomulítið en fer að snjóa suðvestantil um kvöldið. Frost 2 til 8 stig, en frostlaust syðst. Á föstudag: Suðaustan 5-13, hvassast suðvestantil, og snjókoma eða slydda, en bjart með köflum fyrir austan. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Suðaustlæg átt 5-13, og slydda eða rigning, en úrkomuminna um landið norðaustanvert. Hiti 0 til 5 stig að deginum. Snýst í norðaustan 10-15 á Vestfjörðum um kvöldið og kólnar í veðri. Á sunnudag: Gengur í norðaustan 10-18 norðan- og vestantil með snjókomu. Frost 0 til 8 stig. Annars hægari vindur með slyddu eða rigningu, hiti um eða yfir frostmarki. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir ákveðna norðlæga átt með snjókomu, einkum norðan heiða, en úrkomuminna vestanlands. Kólnar í veðri.
Veður Mest lesið Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Innlent Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Innlent Lést í sprengingunni Innlent Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Erlent Robert Mueller er látinn Erlent Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Innlent Framboðslisti Vinstrisins í Reykjavík kynntur Innlent Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Innlent Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Innlent Fleiri fréttir Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Skammt stórra högga á milli Gular viðvaranir um allt vestanvert landið til morguns Svæði rýmt á Ísafirði og beðið eftir illviðri Hvassviðri og talsverð rigning Holtavörðuheiði lokað á miðnætti og tvísýnt um Öxnadalsheiði Víða hægir vindar en hvessir í kvöld Enn viðvaranir og óvissustig vegna snjóflóðahættu Veðurviðvaranir vegna sterkra hviða og mikillar snjókomu Holtavörðuheiðin opin á ný Bætir í norðaustanáttina að nýju Loka heiðinni og opna fjöldahjálparstöð: Biðja „ALLA“ um að halda sig heima Önnur rúta fór út af og Hringvegi lokað að hluta „Blint í stórhríð á Vestfjörðum“ Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Hvessir á mestöllu landinu í kvöld Stífri norðanátt beint til landsins og vegir lokaðir Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Færð geti víða spillst hratt Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Gular veðurviðvaranir í kortunum Köldu lofti beint til landsins Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Appelsínugul viðvörun á morgun Vara við stórhríð á Austurlandi Sjá meira