Hugtakið „vanvirkar fjölskyldur“ var ekki til Matthildur Björnsdóttir skrifar 21. mars 2024 18:31 EN VIÐ SJÁUM ÞAÐ GREINILEGA Í HINNI BRESKU KONUNGSFJÖLSKYLDU Ég heyrði aldrei hugtakið „Vanvirkar fjölskyldur“ þegar ég var á Íslandi. Svo fór ég að heyra orðin „Dysfunctional families“ hér í Ástralíu, og vissi auðvitað að það hafði verið og var líka að gerast á Íslandi. Það orð á við þegar foreldrar hafa ekki haft eiginleika til að tengja á öllum sviðum huga, tilfinninga, áhugamála og gefinna eiginleika barna sinna í langtíma samtölum í gegn um árin. Ég hef séð og heyrt dæmi um það bæði á Íslandi og hér. Auðvitað veit ekkert foreldri í raun hver kemur þegar barn fæðist. En sum koma með uppskrift sem fellur inn í þann hóp sem þau koma til, og virðast hafa getað valið það fyrirfram. Sem þá er eins og bara hitta gamla vini eftir langan aðskilnað. Svo eru það aðrar sálir sem einstaklingar sem droppa inn þar sem kynlíf gerist án getnaðarvarna, og engin sérstök hugsun er í þeim sem eru að því. Það er þá stundum eins og slæma happdrættið fyrir bæði barnið og foreldrana. Það eru næg dæmi um, og sögur af slíku í heiminum. Síðan eru það efnisgæðalegu atriðin sem geta verið fín, eins og við sem lifðum við að heyra í dæminu um í fjölskyldu Michaels Jackson, versus meðferðina á honum. Flott heit á efnislega sviðinu eru blekkjandi í hugum margra sem skynja ekki inn í það sem er að baki. Við í heiminum erum nú einnig að vitna frægustu vanvirku fjölskyldu heims, sem er hin Breska Konungsfjölskylda. Hópur einstaklinga sem hefur að því virðist verið rekin um aldir með því forgangsatriði innan fjölskyldu og utan að skapa formúlu um hvernig fjölskyldan eigi að virka. Og það án áherslu á mikilvægi tilfinninga. Það er kaldhjartað viðhorf að ætla öllum að lifa formúlu lífi sem virkar ekki fyrir neinn í raun og virkaði ekki fyrir Harry prins, og virkar ekki í dag heldur. Það er athyglisvert að sjá togstreituna í því veldi, sem ég sé í efni frá enskum blöðum með fyrirsögnum um að, á einn veg eru smá merki Karls nú orðinn konungur um viðleitni til að vilja laga dæmið. En starfsfólkið og ýmsir aðrir í höllinni eru skíthrædd við að gefið sé inn í pláss í hjartanu, af því að þau sjá gömlu íhaldsformúluna sem mikilvæga. Tilfinningar séu bara í lagi fyrir nokkra persónulega hluti, en ekki fyrir alla að skynja og sjá. Ann og Edward systkini Karls konungs hafa þó séð fyrir börn sín frá reynslu sinni í því veldi, að þau séu betur sett með að þurfa ekki að bera konunglega titla. Meghan blessunin sá allt það kerfi í gegn um linsu Bandaríska kvikmynda-heimsins. Þess vegna náði hún ekki að hafa skilið andrúmslofts þyngdina í andrúmslofti og viðhorfum þessa margra alda kerfis, sem hið Breska Konungsveldi hefur haldið uppi. En ég skynjað í líkama mínum hvernig væri. Svo að ég hafði strax skilning og samkennd með bæði Díönu þegar hún tjáði sig í því fræga viðtali árið 1995. Tjáning hennar sem í raun lyfti hinu mikla loki af því Pandóru Boxi sem hafði verið haldið lokuðu þangað til þann daginn. Svo bætti bróðir hennar um betur í ræðu sinni við jarðarför hennar tveim árum síðar. Fyrir mér var það engla-sending til að færa kerfið á nýtt stig viðhorfa. Og með sonunum Vilhjálm og Harry. Harry er yngri og ég sé hann vera sál með þann tilgang sem sé að reyna að létta á þeirri orku. Ég tengi svo við þörfina fyrir í honum. Samkennd sem er mjög hugsanlega frá bæði þessu og svo fyrri lífum í því landi. Ég hef séð einstaklinga í öðrum löndum heims langa til að hafa svoleiðis kerfi hjá sér. Bókin „Spare“ sem ég las, sýnir þetta svart á hvítu. Við að koma úr umhverfi þar sem tilfinningar voru séðar sem óæskilegar eins og haldið var að mér á Íslandi, er ljúft að koma þangað sem sagt er við fólk að það sé betra að tjá þær en bæla. Það gefur þá langtíma bældum atriðum tækifæri til að rísa úr sínu sökkva ástandi á botni sella líkamans. Orð Thomas Hubl í nýju bókinni hans sem hefur titilinn „Attuned“, Að vera stilltur inn á, lýsir því sem í raun allar mannverur eiga skilið að fá. Það er að fá nægan „Internal structure“ sem ég til að nýja orðið Bakland eigi að veita, til að geta staðið upp fyrir sjálfu sér gegn því sem er rangt fyrir það. Ég galt þess á áhrifamikinn hátt að slíkt var ekki í viðhorfum í uppeldi á mínum tímum svo að ég heyrði. Fullyrðing fyrr á tímum um að það mætti ekki gagnrýna foreldra af því að þau væru fullkomin var bjöguð af því að auðvitað gátu foreldrar ekki veitt meira en var í þeim þekkingarlega og tilfinningalega fyrir það hlutverk. Krafa um „fyrir-gefningu“ hljómaði alltaf sem að það ætti að afneita sársauka og sópa öllu undir teppið sem ég sá sem gagnlaust. Ég sneri því orði svo við í: Hvað á að gefa fyrir þá hegðun“? Þá kom mun betri hugsun um hvernig maður ynni það og er að laga afleiðingar í sjálfum sér fyrst. Ferli sem getur auðvitað tekið langan tíma. Svo löngu seinna heyrði ég að það væri ekki lengur útskýrt þannig um að sópa heldur að aðskilja afleiðingar í sér frá geranda sem er sú leið sem ég kom að á minn hátt eftir að koma hingað og fá svo samkennd með geranda fyrir það sem viðkomandi hafði sjálfur verið þolandi að. Það eru fleiri en ein hlið í ferlinu að „alast upp“. Líkamlegu atriðin að fá að borða og föt að klæðast, þak yfir höfuðið og svo framvegis og það eru atriði sem flestir sjá sem eðlilegt. Svo eru það atriði algerra dýpri grunnþarfa sem aldrei mátti tala um. Og er það sem ég í ellinni sé að opnun sé komin á frá því að lesa ótal greinar frá þeirri hlið í unga fólkinu sem hefur ekki fengið þeim grunn atriðum sinnt. Það er ekki um vanþakklæti fyrir hina fletina bara að sýna það sem svo lengi hefur verið þaggað. Höfundur er Íslendingur sem hefur verið búsettur til langs tíma í Ástralíu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matthildur Björnsdóttir Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar