Your own personal Jesus Gunnar Dan Wiium skrifar 2. apríl 2024 10:31 Bæklingur sem ég rakst á um ópíóda sem Lyfjafræðingafélag Íslands vann í samvinnu við Landlæknisembættið er alveg kostulegur. Hann er mjög vel unnin og allt er upp á borðum ólíkt því hvernig ástandið var fyrir 20 árum síðan. Þá var til dæmis Oxycodone kynnt sem ó-ávanabindandi ópióði og læknar með trega díluðu og víluðu á meðan menn í glansskóm hoppuðu hæð sína af kæti. Í greiningu Washington Post frá því árið 2019 sem fjallaði um ópíóðafaraldurinn kom fram að Actavis hafi verið næst stærsti framleiðandi ópíóðalyfja á bandarískum markaði á árunum 2006 til 2014. Á þessu tímabili nam markaðshlutdeild Actavis 32 prósentum en félagið seldi 32 milljarða pilla á tímabilinu. Bandaríska lyfjaeftirlitið nálgaðist Actavis í október 2012 og óskaði eftir því að það myndi minnka framleiðslu sína á ópíóíða lyfinu oxycodone um 30 til 40 prósent til að minnka magn þess í umferð. Stjórnendur Actavis urðu ekki við því og gáfu stjórnendur út að fyrirtækið bæri ekki á ábyrgð á misnotkun lyfjanna. Þó alríkislög þar í landi skyldi fyrirtækin til að fylgjast með mynstri, tíðni og magni lyfjapantana, þá geti Actavis ekki stjórnað því hvernig lyf þeirra væru á endanum notuð. Það voru skilaboðin. Actavis sem var keypt árið 2016 af ísraelska lyfjarisanum Teva var í eigu Íslendinga þegar faraldurinn stóð sem hæst. Róbert Wessman var forstjóri fyrirtækisins en Björgólfur Thor eignaðist það árið 2007. Þegar íslensku útrásarhetjurnar seldu lágu mörg hundrað þúsund í valnum en þeim var fagnað og baðaðir í konfetti. Rétt fyrir jól lenti ég í því að deila flugvél með einum svona lyfja-smákóng. Við vorum á leiðinni til London en í röðinni fyrir framan mig í ranann sagði hann við kunningja sinn sem hann hitti í röðinni að hann myndi örugglega eyða jólunum í Frakklandi og ég skil það vel því ég las að þar ætti hann kastala. Í Gucci frá toppi til táar var aðalmaðurinn, útrásarvíkingurinn á leið í kastalann sinn. Við fáum fréttir þegar þeir græða og þegar þeir tapa. Við lesum um þá þegar þeir hringja bjöllum í kauphöllum, það rignir yfir þá glimmer sem flýtur í hálffullum kampavínsglösunum, skiptir engu, því er bara hellt í vaskinn, þeir eiga nefnilega vínekrur þessir gæjar. Bjarni hringdi í mig byrjun 2017 viku áður en hann var myrtur. Hann var á einhverju hótelherbergi í slæmu ástandi. Hann hafði oft hringt í mig þrátt fyrir ungan aldur, hann var bara tvítugur. Hann sagði við mig í símann að honum vantaði hjálp, hann gæti ekki meira en ég hafði heyrt þetta svo oft og svo var föstudagur og ég á kafi í vinnu og heil vinnuhelgi framundan í skóla dóttur minnar svo ég hafði engan tíma til að díla við Bjarna. Ég bauð honum að ég gæti tekið hann með í vinnu á mánudeginum og hann þáði það. Ég sagðist samt ætla að hringja í hann þegar ég væri búin að vinna en ég gerði það ekki og mun alltaf sjá eftir því. Ég fann fyrir svo miklum vanmætti, mér fannst ég ekkert getað gert, ópíóðafíkn er bara rugl, maður getur ekkert gert, þeir deyja bara. Ég hringdi ekki í hann og hann hringdi ekki í mig og vikan leið og svo sé hann bara í dánartilkynningum meðan ég slafraði í mig Cherrios viku eftir að við töluðum saman. Hann hafði dáið á laugardagsmorgni, ópíóðar drápu hann á meðan einn eignaðist vínekru og ég hljóp á hamstrahjóli. Ég hef nokkrar svona sögur, farið í nokkrar svona jarðarfarir þar sem mæðrum er rúllað inn í hjólastólum. Þær eru lamaðar af sorg, í taugaáföllum. Meira að segja Jónas Oddur vinur minn til margra ára, hann var klettur og með mikið lyfjaþol, ég hélt að hann væri sá síðasti sem myndir hverfa þrátt fyrir að hann hafði dílað við ópíóðafíkn í örugglega 20 ár. Inn og út úr meðferðum og hann náði meira að segja að verða edrú nokkrum sinnum í nokkra mánuði og ár þess vegna. Þegar að hann hjálpaði mér með að grafa fyrir sólpallinum heima hjá mér var hann búin að vera edrú í smá tíma. Jónas var sjúklega duglegur, sjúklega fyndin og ógeðslega klár en hann var ópíóíða fíkill og eftir að hafa verið edrú í sirka ár stakk hann sig í handlegginn og hvarf. Ógeðslega skrítið þegar vinir manns hverfa svona, einn daginn sækir maður þá á fundi eða bíó og þeir sýna mér myndir af börnum og gæludýrum og allt í blóma og svo bara nokkrum vikum seinna eru þeir horfnir og skilja eftir sig ástvini í molum. Á Íslandi eru tugir íslendinga myrtir af ópíóðum og framleiðendum þeirra á hverju ári. Þessar tölur fara hækkandi með hverju ári þrátt fyrir alla fína bæklingana sem gefnir eru út. Bæklingar sem segja að ópíóðar séu sjúklega ávanabindandi og stórhættulegt efni. Bæklingar sem segja að sé ekkert annað í boði hvað varðar verkjastýringju nema ópíóðar, pilates og núvitund. Við veltum vöngum eins og hauslausar hænur yfir vanmætti okkar gagnvart ópíódafaraldri en horfum ekki á það augljósa. Ópíóðafaraldurinn er í boði skattgreiðanda, við kjósum þetta yfir okkur á meðan jakkafataklæddir menn á H.G.H hringja bjöllum, baðaðir í smjaðri og glimmer. Útrásarvíkingar og fjármála-hetjur út um allan heim með ósýnilegt blóð undir vel snyrtum nöglum. Höfundur starfar sem verslunarstjóri, hlaðvarpsstjórnandi Þvottahússins og umboðsmaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Gunnar Dan Wiium Mest lesið Í skjóli hvíta bjargvættarins Yousef Ingi Tamimi Skoðun Þegar fólkið okkar langar að deyja Sigurborg Sveinsdóttir,Svava Arnardóttir Skoðun 7 símtöl í röð - en ekkert fer í gegn Gró Einarsdóttir Skoðun Ríkisstjórn lobbýistanna Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Vörusvik Rafmenntar í nafni Kvikmyndaskóla Íslands og afleiðingar þeirra Böðvar Bjarki Pétursson,Friðrik Þór Friðriksson Skoðun Áttaviti í öldrunarþjónustu Gunnlaugur Már Briem Skoðun Reynslunni ríkari eftir fjárhagsleg áföll síðustu ára Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Í senn minning og ákvörðun um framtíð Elliði Vignisson Skoðun Why protest works Adam Daniel Fishwick Skoðun Hvert stefnir ráðherra? Aðalsteinn Árni Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Vörusvik Rafmenntar í nafni Kvikmyndaskóla Íslands og afleiðingar þeirra Böðvar Bjarki Pétursson,Friðrik Þór Friðriksson skrifar Skoðun Fleiri átök = verri útkoma í lestri? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Biðin sem (enn) veikir og tekur Guðlaugur Eyjólfsson skrifar Skoðun Stafrænt netöryggisbelti Hrannar Ásgrímsson skrifar Skoðun Hvert stefnir ráðherra? Aðalsteinn Árni Baldursson skrifar Skoðun Free tuition Colin Fisher skrifar Skoðun Þegar fólkið okkar langar að deyja Sigurborg Sveinsdóttir,Svava Arnardóttir skrifar Skoðun Why protest works Adam Daniel Fishwick skrifar Skoðun Í senn minning og ákvörðun um framtíð Elliði Vignisson skrifar Skoðun Reynslunni ríkari eftir fjárhagsleg áföll síðustu ára Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn lobbýistanna Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun 7 símtöl í röð - en ekkert fer í gegn Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Áttaviti í öldrunarþjónustu Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Í skjóli hvíta bjargvættarins Yousef Ingi Tamimi skrifar Skoðun Að gjamma á stóra grábjörninn getur haft afleiðingar! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Lokun Leo Seafood - Afleiðing tvöföldunar veiðigjalda Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Við getum öll stutt við lesskilning barna - Gleðilegan dag læsis Auður Soffía Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Allir geta hjálpað einhverjum Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Við erum ekki valdalausar. Við erum óbrjótandi Noorina Khalikyar skrifar Skoðun Vægið eftir sem áður dropi í hafið Hjörtur J Guðmundsson skrifar Skoðun Getur þjóð orðið of rík? – Ádeila frá Noregi sem getur átt við um Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Fólk í sárum veldur tárum Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson skrifar Skoðun Akademískt frelsi og grátur í draumum Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar - tékklisti fyrir stjórnvöld til að gera betur Unnur Helga Óttarsdóttir,Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Fjöldi kynja – treystir þú þér í samtalið með velferð barna að leiðarljósi? Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar Skoðun Ókeypis minnisblað fyrir Alþingi: Jafnrétti er ekki skoðun- en umræðan er það Sigríður Ásta Hauksdóttir skrifar Skoðun Segðu skilið við sektarkenndina Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius skrifar Skoðun Lög um vinnu og virknimiðstöðvar Atli Már Haraldsson skrifar Sjá meira
Vörusvik Rafmenntar í nafni Kvikmyndaskóla Íslands og afleiðingar þeirra Böðvar Bjarki Pétursson,Friðrik Þór Friðriksson Skoðun
Skoðun Vörusvik Rafmenntar í nafni Kvikmyndaskóla Íslands og afleiðingar þeirra Böðvar Bjarki Pétursson,Friðrik Þór Friðriksson skrifar
Skoðun Við getum öll stutt við lesskilning barna - Gleðilegan dag læsis Auður Soffía Björgvinsdóttir skrifar
Skoðun Getur þjóð orðið of rík? – Ádeila frá Noregi sem getur átt við um Ísland Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson skrifar
Skoðun Skóli án aðgreiningar - tékklisti fyrir stjórnvöld til að gera betur Unnur Helga Óttarsdóttir,Anna Lára Steindal skrifar
Skoðun Fjöldi kynja – treystir þú þér í samtalið með velferð barna að leiðarljósi? Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar
Skoðun Ókeypis minnisblað fyrir Alþingi: Jafnrétti er ekki skoðun- en umræðan er það Sigríður Ásta Hauksdóttir skrifar
Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius skrifar
Vörusvik Rafmenntar í nafni Kvikmyndaskóla Íslands og afleiðingar þeirra Böðvar Bjarki Pétursson,Friðrik Þór Friðriksson Skoðun