Segir að Ten Hag sé búinn að vera Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. apríl 2024 07:31 Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Eriks ten Hag hjá Manchester United. getty/Nigel French Stjórnartíð Eriks ten Hag hjá Manchester United er senn á enda. Þetta segir Chris Sutton, álitsgjafi hjá BBC.
United komst í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar, annað árið í röð, eftir sigur á B-deildarliði Coventry City eftir vítaspyrnukeppni á sunnudaginn. United var 3-0 yfir þegar tuttugu mínútur voru eftir en missti forskotið niður. Coventry-menn héldu svo að þeir hefðu skorað sigurmark í uppbótartíma framlengingarinnar en það var dæmt af vegna afar tæprar rangstöðu. „Ég veit ekki hvað tekur við hjá Ten Hag eftir þetta,“ sagði Sutton á BBC. „Þetta eru endalokin fyrir hann. Það er engin leið fyrir hann til baka úr þessu.“ Sutton setti spurningarmerki við skiptingarnar sem Ten Hag gerði í leiknum gegn Coventry en liðið missti tökin eftir að hinir ungu og efnilegu Alejandro Garnacho og Kobbie Mainoo voru teknir af velli. „Eftir leikinn horfir fólk á skiptingarnar sem Ten Hag gerði. En meira að segja hann hefði ekki getað séð þetta fyrir. Þeir voru í bílstjórasætinu,“ sagði Sutton. „Frammistaðan eftir sjötíu mínútur var lýsandi fyrir það hvernig United hefur spilað á tímabilinu. Þeir misstu tökin og náðu þeim ekki og það hefur verið vandamál allt tímabilið.“ United er í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og mætir botnliði Sheffield United annað kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Báðir þurfa bikar Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Löng bið Leeds eftir marki lengist Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Vandræðalegi markvörður Tottenham gæti átt strax endurkomu Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Býst við því að Salah jafni sig fljótt „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real „Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ Andy Carroll nýr stjóri Dagenham & Redbridge Mainoo, Maguire og Shaw eigi allir að fara á HM Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Vill verða varamaður Kane á HM í sumar Isak sást á æfingu Liverpool Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Sjá meira