Efstar með ómarktækan mun á milli sín Jón Þór Stefánsson skrifar 8. maí 2024 18:34 Halla Hrund Logadóttir og Katrín Jakobsdóttir í Pallborðinu á dögunum. Vísir/Vilhelm Halla Hrund Logadóttir mælist með mest fylgi í nýrri skoðanakönnun Maskínu. Katrín Jakobsdóttir kemur á hæla henni, en ómarktækur munur er á þeim tveimur. Þar á eftir koma Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr, en marktækur munur er á stuðningi við Katrínu og Baldur annars vegar og við Baldur og Jón hins vegar.
Halla Hrund mælist með 29,7 prósenta stuðning samkvæmt könnuninni. Katrín Jakobsdóttir er með 26,7 prósent, Baldur með 18,9 prósent, og Jón Gnarr með 11,2 prósent. Þar á eftir koma Halla Tómasdóttir, sem er með 5,4 prósent, Arnar Þór Jónsson með 4,2 prósent, og síðan Ásdís Rán Gunnarsdóttir með 1,2 prósent. Aðrir frambjóðendur mælast með minna en eins prósent stuðning. Um er að ræða fyrstu könnuna þar sem spurt er út í stuðning við Viktor Traustason, en hann mælist með 0,6 prósent. Könnunin fór fram dagana 30. Apríl til 8. maí 2024 og voru svarendur 1.236 talsins. Svarendur voru spurðir út í hvern þeir myndu kjósa væri sá sem þau styðja nú væri ekki í framboði. Þá mældist Baldur Þórhallsson efstur með 22,1 prósent, Halla Hrund næst með 21,2 prósent, síðan Katrín með 14,5 prósent og Jón með álíka mikið, 14,3 prósent. Halla Tómasdóttir er ekki langt undan með 11,8 prósent. Þá var spurt út í hvern af þeim efstu fjórum (Höllu, Katrínu, Baldri og Jóni) viðkomandi myndi síst vilja kjósa. Af þeim sem tóku afstöðu til málsins vildu flestir síst kjósa Katrínu, eða 41,6 prósent, næstur mælist Jón með 32,4 prósent. Síðan er Baldur með 14,3 prósent og Halla Hrund með 11,8 prósent. Heimir Már Pétursson fréttamaður ræddi um niðurstöður þessarar kannanar í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Forsetakosningar 2024 Skoðanakannanir Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Sjá meira