„Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“ Jón Ísak Ragnarsson skrifar 19. maí 2024 15:55 Erpur er hæstánægður með tónleikan XXX Rottweilerhunda sem haldnir voru í Laugardalshöll síðastliðinn föstudag Vísir/Vilhelm „Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“ segir Erpur Eyvindarson um 25 ára afmælistónleika XXX Rottweilerhunda sem haldnir voru í Laugardalshöll á föstudaginn. Uppselt var á tónleikana sem fóru fram úr öllum væntingum, samkvæmt Erpi.
Öllu var tjaldað til á tónleikunum. Á útisvæðinu voru fjórir matarvagnar, útibar, borð og bekkir, vindlatjald, tónlist og almenn gleði. Framleiddur var Rottweiler varningur fyrir tónleikana, bolir, hálsmen, plaköt og fleira sem var til sölu á tónleikunum. Sex atriði voru á dagskrá á undan Rottweilerhundunum sjálfum. Dagskráin raðaðist svona upp: DJ Danni Deluxe Blaffi Ragga Hólm, Steinunn, Kíló og Balatron Kef Lavík Daniil Birnir XXX Rottweiler hundar Ísland eins og það leggur sig mætti Erpur Eyvindarsson, Blazroca, er meðlimur Rottweilerhundanna. Hann segir að tónleikarnir hafi bara verið þeir flottustu sem haldnir hafa verið á Íslandi, þetta hafi verið fullkomið. Höllin hafi verið stöppuð og allir með á nótunum. „Aldursdreifingin var líka geðveik, það var fullt af liði sem þurfti að vera með forráðarmann með sér af því þau voru undir aldri, og svo alveg upp í lið sem var bara fertugt fyrir tuttugu og fimm árum þegar við byrjuðum. Þetta var bara geðveikt, þetta var bara Ísland eins og það lagði sig,“ segir Erpur. Hann segir að allir hafi kunnað textana og öskrað með allan tímann. Laugardalshöllin var stöppuð og allir öskruðu með, segir ErpurSlakibabarinn Rottweilerhundar nutu liðsinnis margra gestaspilara. „Sesar A mætti. Hann byrjaði náttúrlega að rappa á íslensku, ég byrjaði svo að gera það því hann er náttúrlega bróðir minn. Svo kom Dóri DNA alveg klikkaður inn í Þér er ekki boðið,“ segir Erpur. Í því lagi hafi hann einnig fengið skólahljómsveit Kópavogs undir leiðsögn hans gamla klarinettukennara, Össurs, til að spila með. Hún telji um sjötíu manns, og kom „alveg full force“ inn í lagið. Útgáfan af laginu hafi verið „alveg klikkuð“. „Svo kom Kársneskórinn, gamli kórinn minn sem ég var í hjá Tótu Björns, hann kom inn í Allir eru að fá sér“ segir Erpur. Svo hafi Finni á Prikinu mætt, hann hafi líka verið að vinna á Priksbarnum sem sveitin lét smíða við sviðið. Sveitin hafi viljað taka Prikið með sér á tónleikana. „Svo kom Unnar Freyr, U-Fresh, úr hljómsveitinni Hæstu hendinni, og Svala Björgvins joinaði okkur í Botninn upp.“ Emmsjé Gauti hafi svo komið og tekið lagið Við elskum þessar mellur. Erpur naut sín vel á sviði á föstudaginnSlakibabarinn „Svo tókum við fullt af gömlum Rottweilerlögum sem við höfum ekki tekið í tuttugu ár, og þar á meðal tókum við Við erum topp, og Bassi Maraj kom inn í því, samdi bara vers fyrir kvöldið. Hann kom bara geðveikur á einhverjum níu metra hælum maður, í korsilettu, alveg þvílíkt sexí á því.“ Páll Óskar sjálfur hafi svo komið í uppklappslaginu, Viltu Dick. Blaffi, sem Erpur segir vera rappbarn Rottweilerhunda og besti ungi kötturinn í dag frá Njarðvík, kom líka. Svo hafi Helgi Björns komið í stað Ásgeirs Trausta í laginu Hvítir skór, og tekið það í sínum eigin stíl, eins og fyrir reiðmenn vindanna. Það hafi verið vel viðeigandi. Helgi Björns söng lagið Hvítir SkórVísir/Vilhelm Alþýðulistamenn en ekki poppræpur að máta sokkabuxur „Þetta var, þú veist, svona tónleikar... það voru allir bara, það skilur enginn hvað var að gerast þarna. Við erum náttúrulega bara alþýðuband, við erum með þjóðina alveg, við erum engar poppræpur, við erum bara alþýðulistamenn. Við erum ekkert að máta einhverjar sokkabuxur einhvers staðar í einhverjum kellingablöðum skilurðu. En þegar við mætum þá stappast allt,“ segir Erpur. Liðsmenn sveitarinnar eldast bara vel, og hafa þroskast með aldrinum að sögn Erps. „Jájá, við erum alltaf fávitar skilurðu, en við kannski reynum að eyðileggja ekki líf fólks með fíflalátunum sko. Þetta er kannski svona að vera villigrísir með ábyrgð.“ Samstarfið hafi aldrei verið betra, Bent sé til að mynda edrú og Lúlli kominn með tvo krakka. XXX Rottweilerhundar á tónleikum í mars. Þeir hafa þroskast með aldrinum og eru nú villigrísir með ábyrgð, segir Erpur.Vísir/Vilhelm Hann segir að það sem einkenni hljómsveitina XXX Rottweilerhunda sé að liðsmennirnir séu listamenn, ekki popparar. Engu máli skipti um það hvort að „einhver rappbylgja“ sé í tísku eða ekki, þeir séu alltaf sjálfum sér samkvæmir. Þeir geri það sem þeir gera af hreinni ástríðu, og þetta hafi verið gaman frá fyrsta degi. „Þetta er búið að vera brjálaður undirbúningur, en djöfull var þetta allt fullkomið maður. Maður er bara í vímu sko, ekki af því að ég er ennþá fullur, ég tímdi ekki að fá mér drykk á sviðinu, adrenalínið var svo mikið sko,“ en hann segist venjulega fá sér einn eða tvo þegar hann spilar. Stefnan er að fara halda tónleika um allt land í sumar, segir Erpur. Planið sé að taka helstu byggðarkjarnana í sumar, en það eigi eftir að skipuleggja það allt saman betur. Fréttastofa hitti liðsmenn sveitarinnar fyrir tónleikana á föstudaginn:
Tónleikar á Íslandi Tónlist Mest lesið Dóttir Annýjar og Heiðars nefnd í dag Lífið „Þetta er meiri háttar draumur að rætast” Lífið „Sagði börnunum að vondur maður hefði meitt mömmu“ Áskorun Hundur í hjólastól í Sandgerði Lífið „Hvað er Gísli Marteinn gamall?“ Lífið Stuð og stemning á opnun Einars Fals í Þjóðminjasafninu Lífið „Það getur enginn sært þig án þíns samþykkis“ Lífið Gerir upp tólf ára samband við barnsmóður sína með sýningu og bók Menning „Ég var kominn á þann stað að ég þorði ekki að vera með barnið mitt“ Lífið Slasaðist við tökur í Bretlandi Lífið Fleiri fréttir „Þetta er meiri háttar draumur að rætast” Dóttir Annýjar og Heiðars nefnd í dag Hundur í hjólastól í Sandgerði Stuð og stemning á opnun Einars Fals í Þjóðminjasafninu Slasaðist við tökur í Bretlandi „Ég var kominn á þann stað að ég þorði ekki að vera með barnið mitt“ „Það getur enginn sært þig án þíns samþykkis“ „Munnvatnskirtlarnir hættu að starfa, ég var svo hræddur“ Krakkatían: VÆB, páskaegg og vorið Svíar senda gríngrúppu í stað Måns í Eurovision Byrjaði að baka fjögurra ára og vann fyrstu kokkakeppnina í dag Fullt hús og mikið fjör á frumsýningu Þetta er Laddi „Hvað er Gísli Marteinn gamall?“ Hélt í sér að ræða indverska drauminn í meira en ár Fréttatía vikunnar: Öskudagur, þingfundarhlé og píla Öðruvísi pítsur sem kitla bragðlaukana Gleði þegar Unnur og Una frumsýndu loksins Storm Aníta og Hafþór tóku gamla íbúð í Vesturbænum í gegn Hæðst að þrútnum og afskræmdum varaforsetanum Lýsir hjartáfallinu: „Hringdu á sjúkrabíl, bara strax“ Sögð vera æf vegna myndanna af Ben Affleck Í beinni með Tom Holland í nokkrar góðar sekúndur Svona losnar þú við baugana Pamela Bach-Hasselhof látin Svona er umhorfs hjá Höllu á Bessastöðum Fimm heillandi heimili í höfuðborginni Háleit markmið Katrínar: Sparar í mat og greiðir 10 milljónir inn á húsnæðislánið „Fyrir mér snýst þetta ekki bara um að sækjast eftir kórónu“ Sex ára þegar hann var fyrst frelsissviptur Eldheitt hjá Þorvaldi Þórðar, Magneu og Jónsa í Hörpu Sjá meira