Þriðjungur gjaldeyristekna þjóðarinnar í fyrra kom af ferðaþjónustu og stóðu vonir til að þetta ár yrði jafnvel betra en það síðasta. En núna segir talsmaður ferðaþjónustunnar í fréttum Stöðvar 2 stefna í að myndin verði dekkri:
„Verði nær svörtu sviðsmyndinni í fjármálaáætlun heldur en þeirri björtu,” segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Tölurnar frá áramótum virðast á yfirborðinu lofa góðu með sex prósenta fjölgun ferðamanna. Gistinóttum frá áramótum fækkaði hins vegar um sex prósent og í apríl um fimmtán prósent. Þá fækkaði ferðamönnum í apríl um þrjú prósent.

„Þannig að af þessu má sjá að gistinætur á mann, þeim er að fækka nokkuð skarpt. Því fylgir að verðmæti á hvern ferðamann, þau eru einnig að minnka, sem eru hvort tveggja mjög vondar fréttir fyrir þjóðarbúið,” segir Jóhannes.
Og bókunarstaðan á gististöðum í sumar veldur áhyggjum:
„Um tíu til fimmtán prósentum lægri heldur en hún var á sama tíma í fyrra fyrir sumarmánuðina. Og sú staða er heldur slakari þegar komið er lengra frá höfuðborgarsvæðinu.”

Fækkun gistinátta er sérlega slæm fyrir landsbyggðina. Það þýðir að ferðamenn sem koma til landsins um Keflavíkurflugvöll fara síður langt út fyrir suðvesturhornið.
„Þá fara menn styttra um landið og styttra út frá hringveginum. Þannig að þetta bitnar kannski ekki síst á þeim sem eru kannski ekki í alfaraleið.”
Þegar spurt er um skýringar segir Jóhannes marga hafa nefnt eldgosin.

„En það er kannski ekki höfuðþátturinn. Verðlag hefur hækkað hér töluvert. Við höfum verið með þrálátari verðbólgu heldur en í samkeppnisríkjunum.
Þá hafi stjórnvöld slökkt á fjármagni til landkynningar.
„Við þekkjum þetta í öllum vörum. Ef við erum ekki að segja söguna okkar þá eru einhverjir aðrir að segja sínar sögur og þær komast betur til skila,” segir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: