Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Kristján Már Unnarsson skrifar 12. júní 2024 21:12 Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, í viðtali við Stöð 2 í dag. Einar Árnason Hin umdeilda Hvalárvirkjun á Ströndum er aftur komin á fullt í undirbúningi. Samningur sem Vesturverk, dótturfélag HS Orku, og Landsnet gerðu á dögunum miðar við að virkjunarframkvæmdir geti hafist eftir tvö ár.
Í fréttum Stöðvar 2 voru deilurnar um Hvalárvirkjun rifjaðar upp. Frægt var fyrir sex árum þegar andstæðingar hennar gerðu misheppnaða tilraun til að ná meirihluta í hinum fámenna Árneshreppi með lögheimilisflutningum sem flestir voru úrskurðaðir ólögmætir. Árið eftir blossuðu deilurnar upp á ný þegar virkjunaraðilinn hóf að lagfæra vegslóða að fyrirhugaðri virkjun. Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Ásbjörn Blöndal, framkvæmdastjóri þróunar- og auðlindasviðs HS Orku og stjórnarformaður VesturVerks, skrifuðu í síðustu viku undir samkomulag vegna undirbúnings tengingar Hvalárvirkjunar við flutningskerfi Landsnets. Einng eru á myndinni Svandís Hlín Karlsdóttir frá Landsneti og Friðrik Friðriksson frá HS Orku.Landsnet Síðan hefur lítið heyrst af Hvalárvirkjun en núna er hún aftur komin á dagskrá. Í siðustu viku skrifuðu fulltrúar Landsnets, Vesturverks og HS Orku undir samning um næstu skref. „Við vorum að skrifa upp á samning við þá um að hefja undirbúning að því að tengja virkjunina við meginflutningskerfið,” segir Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets. Séð yfir Hvalárfoss og ósa Hvalár þar sem vegurinn endar núna. Ófeigsfjörður í baksýn.EGILL AÐALSTEINSSON Guðmundur Ingi segir Hvalárvirkjun verða nokkuð stöðuga vatnsaflsvirkjun. Tenging hennar inn á miðja Vesturlínu í Kollafirði í Reykhólahreppi með tengipunkti í Ísafjarðardjúpi þýði að draga muni úr truflunum á flutningi raforku til Vestfirðinga. „Og bætir í raun öryggið á Vestfjörðum verulega. Við þurfum þá að keyra minni olíu í varaaflsstöðvunum á Vestfjörðum á móti.” Yfir Ófeigsfjarðarheiði yrði annaðhvort lögð loftlína eða jarðstrengir að einhverju leyti, að sögn Guðmundar, en þessu gæti einnig fylgt vegtenging með línuvegi milli Djúps og Árneshrepps. Hvalárvirkjun gæti fylgt vegtenging yfir Ófeigsfjarðarheiði milli Ísafjarðardjúps og Árneshrepps.Garfík/Hjalti Freyr Ragnarsson „Það yrði hugsanlega ný leið sem gæti þjónað ferðamönnum ef hún er byggð upp með þeim hætti.” Þrjár virkjanir í Djúpinu, sem eru til skoðunar, gætu einnig fengið sama tengipunkt en þær eru Austurgilsvirkjun, Skúfnavatnavirkjun og Hvanneyrardalsvirkjun. Forstjóri Landsnets segir undirbúning þeirra á misjöfnu stigi. „Við vitum svo sem ekki hver niðurstaðan verður af þeim. En við horfum allavega það langt til framtíðar að við gætum orðið við verkefnum þar, ef á reyni.” Vinnuvélar á vegum Vesturverks lagfærðu slóðann um Ingólfsfjörð sumarið 2019.KMU Hvalárvirkjun upp á 55 megavött hefur þegar fengið grænt ljós í rammaáætlun stjórnvalda. En hvenær er stefnt á framkvæmdir? „Við miðum við það að fylgja HS Orku eftir og þeir tala um ´26 til ´28. Og við miðum bara við það,” segir Guðmundur Ingi Ásmundsson. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Deilur um Hvalárvirkjun Árneshreppur Orkumál Umhverfismál Orkuskipti Loftslagsmál Tengdar fréttir Hvalárvirkjun aftur á dagskrá og tvö ár gætu verið í framkvæmdir Framkvæmdir við Hvalárvirkjun á Ströndum gætu hafist eftir tvö ár, að mati forstjóra HS Orku. Það er þó háð því að tilskilin leyfi verði fengin fyrir nauðsynlegum háspennulínum. 2. júlí 2022 07:07 Skálaði í kampavín og fagnaði því að Hvalárvirkjun var slegið á frest Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir og náttúruverndarsinni, skálaði í kampavíni í gærkvöldi og fagnaði þeim fregnum sem bárust síðdegis í gær um að Hvalárvirkjun á Ströndum hefði verið slegið á frest um óákveðinn tíma. 8. maí 2020 09:05 Verða snarruglaðir fyrir sunnan ef eitthvað á að gera fyrir Vestfirði Skiptar skoðanir eru meðal íbúa Árneshrepps um hvort Hvalárvirkjun muni styðja við heilsársbyggð í hreppnum. Íbúar upplifa deilur um virkjunina þannig að fólk fyrir sunnan vilji taka völdin af heimamönnum. 11. febrúar 2019 20:00 Hvalárvirkjun ýmist sögð falleg eða hervirki gegn náttúrunni Hrafn Jökulsson kallar Hvalárvirkjun hervirki gegn náttúrunni sem aðeins erlendir auðkýfingar hagnist á. Oddviti Árneshrepps segir að þetta verði falleg virkjun sem komi öllum Vestfjörðum til góða. 30. maí 2018 23:15 Hrafn segir ögurstund í Árneshreppi og ekki annað í boði en að standa saman Eftir hatrammar deilur í Árneshreppi tóku fulltrúar andstæðra fylkinga hver utan um annan í dag, staðráðnir í að standa saman, þótt menn séu áfram ósammála um Hvalárvirkjun. 29. maí 2018 20:30 Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira
Hvalárvirkjun aftur á dagskrá og tvö ár gætu verið í framkvæmdir Framkvæmdir við Hvalárvirkjun á Ströndum gætu hafist eftir tvö ár, að mati forstjóra HS Orku. Það er þó háð því að tilskilin leyfi verði fengin fyrir nauðsynlegum háspennulínum. 2. júlí 2022 07:07
Skálaði í kampavín og fagnaði því að Hvalárvirkjun var slegið á frest Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir og náttúruverndarsinni, skálaði í kampavíni í gærkvöldi og fagnaði þeim fregnum sem bárust síðdegis í gær um að Hvalárvirkjun á Ströndum hefði verið slegið á frest um óákveðinn tíma. 8. maí 2020 09:05
Verða snarruglaðir fyrir sunnan ef eitthvað á að gera fyrir Vestfirði Skiptar skoðanir eru meðal íbúa Árneshrepps um hvort Hvalárvirkjun muni styðja við heilsársbyggð í hreppnum. Íbúar upplifa deilur um virkjunina þannig að fólk fyrir sunnan vilji taka völdin af heimamönnum. 11. febrúar 2019 20:00
Hvalárvirkjun ýmist sögð falleg eða hervirki gegn náttúrunni Hrafn Jökulsson kallar Hvalárvirkjun hervirki gegn náttúrunni sem aðeins erlendir auðkýfingar hagnist á. Oddviti Árneshrepps segir að þetta verði falleg virkjun sem komi öllum Vestfjörðum til góða. 30. maí 2018 23:15
Hrafn segir ögurstund í Árneshreppi og ekki annað í boði en að standa saman Eftir hatrammar deilur í Árneshreppi tóku fulltrúar andstæðra fylkinga hver utan um annan í dag, staðráðnir í að standa saman, þótt menn séu áfram ósammála um Hvalárvirkjun. 29. maí 2018 20:30