Tímamót í örorku- og endurhæfingarmálum - takk VG, takk ríkisstjórn Steingrímur J. Sigfússon skrifar 24. júní 2024 18:01 Mjög hefur ágerst hin síðari ár að ræða um störf kjörinna fulltrúa, á Alþingi og í sveitarstjórnum eins og það sé sjálfgefið að þeir sem þar starfa eigi fátt skilið nema skít og skömm fyrir sín störf. Eru þetta þó þeir sem kjósendur sjálfir völdu til þessara verka. Í reynd eru hinir kjörnu fulltrúar að sinna samfélagsþjónustu, bjóða fram krafta sína til að vinna fyrir samfélagið í fjögur ár. Að sjálfsögðu þurfa hinir kjörnu fulltrúar aðhald og hafa gott af heilbrigðri gagnrýni, en það mætti stundum ætla af umræðunni að kjósendur hefðu verið einstaklega óheppnir í vali sínu með fulltrúa. Sökum þess að það gerist svo sjaldan, afar sjaldan að þessum hinu sömu kjörnu fulltrúum sé þakkað fyrir nokkurn skapaðan hlut. Það skal nú gert. Nú laugardaginn 22. júní urðu mikil og gleðileg tímamót í málaflokki örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Langþráðar breytingar á úr sér gengnu bótakerfi sem var stagbætt, flókið, með meira og minna öfugum hvötum til virkni, atvinnuþátttöku og náms, með götóttri framfærslu og óöryggi voru loks lögfestar á Alþingi. Þær taka gildi að ári og gefst því góður tími til að undirbúa og innleiða þessar miklu kerfisbreytingar vel. Mest um vert er að kjör nær allra sem eru í þeirri stöðu að hafa örorku-, sjúkra- eða endurhæfingargreiðslur sér til framfærslu, að minnsta kosti um tíma munu batna verulega og afkomuöryggi þeirra aukast til muna. Verður enda 18 milljörðum króna til viðbótar veitt til kerfisins. Félags- og vinnumarkaðsráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson hefur verið vakin og sofinn yfir því mikla verkefni að koma þessu máli í höfn. Það þekki ég undirritaður frá fyrstu hendi sem fulltrúi hans og formaður í stýrihópi fjögurra ráðuneyta sem hafði það verkefni að vinna að framgangi málsins í samræmi við ákvæði stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar. Með mér í stýrihópnum var öndvegis lið og við náðum vel saman, Eygló Harðardóttir fulltrúi heilbrigðisráðherra, Henný Hinz fulltrúi forsætisráðherra og Óli Björn Kárason fulltrúi fjármálaráðherra. Ekki skal þó gert of mikið úr okkar hlut, þungi vinnunnar mæddi á starfsfólki ráðuneyta, hagsmunasamtökum og fagfólki stofnana sem koma til með að bera hitann og þungann af framkvæmd breytinganna. Loks var það velferðarnefnd Alþingis og Alþingi sjálft sem afgreiddi málið í ánægjulegri sátt og er á engan hallað þó Steinunn Þóra Árnadóttir framsögumaður málsins sé nefnd sérstaklega í því sambandi. Árangur af ríkisstjórnarsamstarfi Hér skal það fullyrt að farsæl málalok í þessu risavaxna lífskjara- og mannréttindamáli megi þakka núverandi ríkisstjórnarsamstarfi og þó fyrst og fremst þátttöku Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í því. VG hefur haft þetta mál á oddinum frá upphafi núverandi stjórnarsamstarfs 2017, beitti sér fyrir ákvæðum um það í stjórnarsáttmálum bæði 2017 og 2021 og hefur svo haft forustu í málinu síðan þá. Þá er sérstaklega gleðilegt að Alþingi gerði einnig að lögum og þennan sama dag, þ.e. laugardaginn 22. júní sl. tilurð sjálfstæðrar og óháðrar mannréttindastofnunar, Mannréttindastofnunar Íslands sem mun ekki síst leika lykilhlutverk í mannréttindagæslu í þágu öryrkja og staðið hefur upp á Ísland að stofna til að geta fullnægt ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Fyrir því máli beitti fyrrverandi forsættisráðherra Katrín Jakobsdóttir sér sérstaklega eins og alkunnugt er og má því þakka henni og þátttöku VG í núverandi ríkisstjórn einnig því samhengi. Tugir þúsunda öryrkja, þeirra sem veikjast, lenda í slysum eða áföllum og verða af þeim sökum óvinnufærir og þurfa á endurhæfingu að halda munu á næstu árum og áratugum njóta góðs af þeim breytingum sem með þessum málum verða. Ekki svo að skilja að lífskjara- og réttindabarátta fatlaðs fólks og annarra þeirra sem höllum fæti standa er viðvarandi verkefni og langt í frá allt fengið með afgreiðslu þessara mál. Þau eru þó stórt skref, risastórt skref að mínu mati í rétta átt og höfum í huga að fyrri tilraunir til breytinga í sömu átt hafa aftur og aftur endað úti í skurði sl. tvo áratugi eða svo. Það er því ekki sjálfgefið að koma stórmálum í þessum vandasama og viðkvæma málaflokki í höfn. Takk Guðmundur Ingi Guðbrandsson, takk Katrín Jakobsdóttir, takk Steinunn Þóra Árnadóttir, takk VG, takk ríkisstjórnarsamstarf VG, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Höf. Er fyrrverandi alþingismaður, ráðherra og forseti Alþingis, í flokksráði VG og eindreginn stuðningsmaður hreyfingarinnar og núverandi ríkisstjórnarsamstarfs, en þó auðvitað ekki ánægður með allt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steingrímur J. Sigfússon Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Vinstri græn Mest lesið Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar