Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. júní 2024 09:40 Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík. Vísir/Egill Forsvarsmenn Hopp hafa ekki áhyggjur af minni notkun rafhlaupahjóla eftir nýjustu breytingar á umferðarlögum sem samþykktar voru af Alþingi þar sem ölvunarakstur rafhlaupahjóla er orðinn refsiverður. Þetta kemur fram í skriflegum svörum Sæunnar Óskar Unnsteinsdóttur framkvæmdastjóra Hopp Reykjavík.
Rafhlaupahjól voru áður í flokki með reiðhjólum þegar kemur að ölvunarakstri. Með breyttum lögum fara þau í flokk smáfarartækja og eiga þau sem nota rafhlaupahjólin nú undir áhrifum von á sektum fyrir athæfið. Miðað er við sömu mörk og akstur bíla og annarra vélknúinna ökutækja. Blönduð umferð sé framtíðin „Viðbrögð okkar við þessum nýju lögum eru bara mjög góð og sérstaklega að nú megi aka rafskútum á götum sem hafa 30 km hámarkshraða. Við trúum því að blönduð umferð sé best fyrir okkur öll og gerir borgarumhverfið okkar hægara og öruggara,“ segir Sæunn Ósk í skriflegu svari til Vísis. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafi ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða á rafskútum. Þeir fagni því að fólk hugsi sig nú tvisvar um áður en það aki af stað á farartæki sem það getur ekki valdið vegna áfengis. „Öryggi notenda okkar skiptir okkur miklu máli. Rafskútur eru einnig mikilvægar samgöngur fyrir næturhagkerfið okkar og öll þau sem þurfa að ferðast sérstaklega þegar engar almenningssamgöngur eru að finna. Svo erum við nú ekki öll undir áhrifum þótt komið sé yfir miðnætti!“ Hún segir leigubíla fyrirtækisins tilvalinn kost fyrir þau sem ferðast þurfi undir áhrifum, enda hafi forsvarsmenn Hopp alltaf talað fyrir því að áfengi og önnur vímuefni fari ekki saman við akstur. „Við búum í borg sem enn bíður eftir borgarlínu og öflugum almenningssamgöngum og á meðan við bíðum eftir þeim þá eru farartæki Hopp mikilvægt val fyrir fólk til að ferðast og til að breyta ferðavenjum.“
Samgöngur Rafhlaupahjól Umferðaröryggi Alþingi Umferð Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira